DiscoverRæðum það...
Ræðum það...
Claim Ownership

Ræðum það...

Author: Andrés Jónsson

Subscribed: 17Played: 31
Share

Description

Atvinnulífsspjallþáttur þar sem við fjöllum um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum
6 Episodes
Reverse
Sterkur en ekki harður, ríkur en vill ekki að lífið sé of léttReynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo og höfundur sjálfsævisögunnar Fjórar árstíðir, er gestur sjötta þáttar í fimmtu seríu Ræðum það... Rætt er um karlmennsku, syndir feðranna, viðhorf kynslóðanna, gildi peninga og hvaða áhrif það hafi að segja fólki hvernig manni raunverulega gengur, bæði á orðsporið, eigin líðan og mögulega líðan annarra sem tengja. Bókin rokselst um þessar mundir og margir sem senda Reyni skilaboð um að þau sjái sig sjálf í frásögn hans.Atli Stefán Yngvason, markaðs- og framtíðarstjóri Mílu, er gestastjórnandi í þessum þætti af Ræðum það... ————Ræðum það er í boði Góðra samskiptaStjórnandi: Andrés JónssonStef: Ræðum það - Dire & Nolem
Fundur, fiskeldi og fargufurGauti Geirsson, framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Háafells og Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, eru gestir fimmta þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… spjallþáttar um atvinnulífið þar sem við fjöllum um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum.Farið er yfir væntanlega atvinnustefnu stjórnvalda sem kynnt var á fjölmennum fundi í morgun, orkuöflun, sjávarútveginn og fiskeldi ásamt því sem fargufur, ísfirsk lífsgæði, náttúra Hornstranda og norsk stjórnmál koma við sögu.————Ræðum það er í boði Góðra samskiptaStjórnandi: Andrés JónssonStef: Ræðum það - Dire & Nolem
Staðan í gervigreindStefán Baxter, stofnandi Snjallgagna, Gunnar Hólmsteinn, stofnandi Quest Portal og Berglind Einarsdóttir lögfræðingur og stofnandi Bentt gervigreindarráðgjafar eru gestir fjórða þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti.Farið er yfir víðan völl um stöðu gervigreindar, samfélagsleg áhrif hennar, áhrif á rekstur fyrirtækja og á daglegt líf okkar allra.————Ræðum það er í boði Góðra samskiptaStjórnandi: Andrés JónssonStef: Ræðum það - Dire & Nolem
Afhverju fara ekki fleiri íslensk fyrirtæki í útrás til Skandinavíu?Andri Árnason, framkvæmdastjóri Takk og einn eigenda Tefélagsins og Einar Örn Einarsson, eigandi Zocalo og Wok to Walk og stjórnarmaður Haga, eru gestir þriðja þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti.Báðir gestirnir hafa fært út kvíarnar til hinna Norðurlandanna og velta því upp með okkur hvers vegna íslensk fyrirtæki eru óvön því að fara þessa leið.————Ræðum það er í boði Góðra samskiptaStjórnandi: Andrés JónssonStef: Ræðum það - Dire & Nolem
Viðskiptafréttir sumarsinsÞorsteinn Friðrik Halldórsson, viðskiptablaðamaður og ritstjóri Hluthafans, er gestur annars þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti.Rætt er um Aldin Dynamics, Quest Portal, Dranga, Skel, Sýn, Nova, Farice, gagnaverin, orkumál, Jökulsárlón ferðaþjónustufyrirtækið, Adalvo, Alvotech, Róbert Wessman og Björgólf Thor Björgólfsson.————Ræðum það er í boði Góðra samskiptaStjórnandi: Andrés JónssonStef: Ræðum það - Dire & Nolem
Í nýrri seríu af Ræðum það... fáum við fjölbreytta gesti úr atvinnulífinu. Fyrstu gestirnir eru Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds sem rekur Bílaleigu Akureyrar/Europcar en sem á einnig hluti í ýmsum öðrum fyrirtækjum og Gylfi Ólafsson sem er að horfa til vaxtar í komu skemmtiferðaskipa til Vestfjarða, bæði sem pólitíkus en líka sem fyrirtækisstofnandi sem reynir nú í annað sinn að safna fé frá fjárfestum.Rætt var um fjárfestingar bílaleiga sem er einn stærsti bransinn í ferðaþjónustugeiranum, skattlagningu og ívilnanir og áform stjórnvalda að hamla of miklum vexti greinarinnar. Einnig var rætt um sveiflur í greininni og hvort þær fæli fjárfesta mögulega frá henni.Þáttastjórnandi er Andrés Jónsson.
Comments 
loading