Discover
Rauða borðið

Rauða borðið
Author: Gunnar Smári Egilsson
Subscribed: 57Played: 12,368Subscribe
Share
© 2024 Samstöðin
Description
Róttæk samfélagsumræða.
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
1101 Episodes
Reverse
Mánudagur 15. september
FRÉTTATÍMINN
Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Mánudagur 15. september
Erlendir fangar, mótmæli í London, nýr þingmaður, verkfall og friðaraktivismi
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, lögmaður og formaður Siðmenntar ræða Mohammed Kourani og málefni erlendra fanga í íslensku fangelsismálakerfi almennt við Maríu Lilju. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og fréttaritari Samstöðvarinnar í London segir Gunnari Smára frá mótmælum helgarinnar þegar stórir hópar manna kröfðust breytinga á innflytjendastefnu stjórnvalda. Sigurður Helgi Pálmason þingmaður Flokks fólksins, segir frá lífi sínu í persónulegu spjalli við Björn Þorláks. Meiri líkur en minni eru að óbreyttu á verkfalli hjá langstærstum hluta starfsmanna Fjarðaáls fyrir vestan, álverksmiðju Alcoa. Atkvæðagreiðsla um verkfallið hófst í dag. Hjördís Þórs Sigurþórsdóttir verkalýðsleiðtogi hjá Afli fer yfir stöðuna með Birni Þorláks. Rannsókn er að hefjast á friðaraktívisma hér á landi. Guðrún Sif Friðriksdóttir sem starfar í Reykjavíkurakademíunni ræðir við Björn Þorláks.
Sunnudagurinn 14. september
Synir Egils: Morð, menningarstríð, Alþingi, fjárlög, stríð og refsitollar
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Andrea Sigurðardóttir blaðakona og Valur Gunnarsson sagnfræðingur og ræða fréttir vikunnar og ástandið í samfélaginu og heiminum. Síðan koma þau Hulda Þórisdóttir stjórnmálasálfræðingur, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur, Magnús Helgason sagnfræðingur og Gunnlaugur Jónsson frumkvöðull og ræða skautun og menningarstríð í Bandaríkjunum og hvort það sama muni gerast á Íslandi. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Laugardagur 13. september
Helgi-spjall: Helen Ólafsdóttir
Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur segir okkur frá vondum stöðum sem hún hefur ratað á, góðu fólki og sterkri fjölskyldu, stríðsátökum, hvernig mannskepnan bregst við gagnvart hryllingi, ástinni og voninni um að heimurinn skáni.
Föstudagur 12. september
Vikuskammtur: Vika 37
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, , Freyr Eyjolfsson öskukarl, Ragnar Þór Pétursson kennari og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af menningarstríði og þjóðarmorði, þingsetningu og voðaverkum, ógn, átökum og litlum friðarvilja.
Fimmtudagur 11. september
FRÉTTATÍMINN
Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Fimmtudagur 11. september
Ungt fólk í basli, upplausn í Frakklandi, fangelsi, fólk sem heyrir raddir, fátækt og Innkaupapokinn
Sérstök ástæða er til að gefa hlutskipti ungra Íslendinga gaum er kemur að menntun þeirra og misjöfnum ávinningi. Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur hjá BHM ræðir við Björn Þorláks hvort það borgi sig að vanmeta menntun. Einar Már Jónsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um stjórnarkreppu í Frakkandi, upplausn, mótmæli og vaxandi vantrú landsmanna á stjórnmálafólki. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Þóru Björg Sirrýjardóttur námsmaður og Ingólf Snæ Víðisson stuðningfulltrúa og starfsmann Afstöðu. Stjórnarmenn í Hearing Voices Iceland og starfsmenn Hugarafls, þau Sigrún Huld Sigrúnar, leikari, raddheyrari og Grétar Björnsson félagsfræðingur segja Gunnari Smára frá fólki sem heyrir raddir sem aðrir heyra ekki og sjá sýnir sem aðrir ekki sjá. Sæunn Guðmundsdóttir, einn stofnenda Norðurhjálpar á Akureyri, segir fátækt mjög falið mein og að fátækir eigi sér fáa málsvara. Fólk á leigumarkaði og öryrkjar eru í hópi hinna verst stöddu. Björn Þorláks ræðir við Sæunni. Gunnar Smári ræðir við Friðgeir Einarsson um Innkaupapokann sem leikhópurinn Kriðpleir setur upp í Borgarleikhúsinu og Elísabetu Jökulsdóttur, en inn í Innkaupapokanum er flutt leikrit hennar Mundu töfrana.
Miðvikudagur 10. september
Gaza, sjálfsvíg, reynsluboltar, Fjallabak og söngkennsla
Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um kröfur á íslensk stjórnvöld um aðgerðir gegn Ísrael vegna þjóðarmorðsins á Gaza. Metur ríkisstjórnin það svo að Bandaríkin muni beita okkur refsingum ef við beitum Ísrael aðgerðum sem geta bitið? Gunnar Smári ræðir við fjóra karla af mismunandi kynslóðum, Anton Ísak Óskarsson, Ármann Örn Bjarnason, Baldvin Frederiksen og Bjarni Karlsson, um sjálfsvíg og áhrif þeirra á aðstandendur. Hvernig glíma karlar við sorg og dauða? Sigurjón fékk til sín þrjá góða gesti; Steingerði Steinarsdóttur, Lárus Guðmundsson og Ólaf Arnarson. Þau töluðu um margt. T.d. Hvað Rússum gengur til að ógna Póllandi, Miðflokkinn og Snorra Másson, fjárlagafrumvarpið, ræðu forseta Íslands við þingsetninguna og sitt hvað fleira. Gunnar Smári fór á Fjallabak og í Borgarleikhúsinu, leikrit kl byggt á smásögu sem líka gat af sér bíómyndina Brokeback Mountain. Valur Freyr Einarsson leikstjóri og leikararnir Hjörtur Jóhann Jónsson og Björn Stefánsson koma að Rauða borðinu og ræða erindi og inntak þessarar sögu af ungum mönnum sem fella saman hugi í samfélagi sem vill ekki viðurkenna ást þeirra. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona og skólastjóri Söngskólans ræðir leiðir til að minnka efnahagslega stéttaskiptingu í tónlistarnámi barna og koma fleiri börnum í nám. Björn Þorláks ræðir við hana.
Miðvikudagur 10. september
FRÉTTATÍMINN
Gunnar Smári og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Þriðjudagur 9. september
Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Þriðjudagur 9. september
Lagaleg álitaefni, heimsmálin, fjárlög, flughávaði og listrænir feðgar
Við hefjum leik á liðnum Réttur er settur. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir fréttir í samhengi við lagaleg álitaefni. Í dag verður drepið á Eurovision, rétti rjúpnaveiðimanna til veiða, ólíkra stjórnarskráa nágrannalanda og fleira. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku ræða við Gunnar Smára um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, það sem er gott í því og vont og það sem vantar í frumvarpið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um heimsmálin við Gunnar Smára og afstöðu ríkisstjórnarinnar til þeirra. Er það hagur Íslands að setja á refsitolla á Kína og Indland? Hvaða áhrif munu ólíkar áherslur Bandaríkjanna og Evrópuríkjanna innan Nató hafa? Það er ekki á hverjum degi sem fjölskyldumeðlimir leika listir sínar í sama galleríi. Feðgarnir Hlynur Hallsson og Númi Hlynsson setja upp sameiginlega myndlistarsýningu fyrir norðan á Akureyri, við ræðum við þá. Við endum þáttinn á umræðu um stóraukið einkaflug við Reykjavíkurflugvöll, ekki síst þyrluflug. Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur segir mörg álitamál í þeim efnum, rannsóknir sýna að viðhorf til flugs skiptir miklu hvernig íbúar í grennd upplifa hávaða. Þannig er ekki ólíklegt að úrsýnisflug vegna eldgoss valdi meiri pirringi og annars konar líðan hjá íbúum en björgun mannslífs.
Mánudagur 8. september
FRÉTTATÍMINN
Gunnar Smári, María Lilja, Björn Þorláks og Kristinn Hrafnsson segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Mánudagur 8. september
Þjóð gegn þjóðarmorði, stjórnmálaveturinn, örorkukerfið og barnafátækt
Ragnheiður Steindórsdóttir, leikkona og stjórnarkona hjá Vonarbrú, Arna Magnea Danks, kennari, Sara Stef Hildar, baráttukona, Ólafur Ólafsson, myndlistamaður og einn skipuleggjenda fundarins „þjóð gegn þjóðarmorði“ sem haldin var um helgina ræða framhaldið við Maríu Lilju. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, sem skipaði oddvitasæti hjá sósíalistum, telur rétt að stofna nýtt vinstri sinnað stjórnmálaafl þar sem kjósendur VG, pírata og sósíalista gæti hagsmuna sinna. Þetta kemur fram í umræðu um stjórnmálaveturinn fram undan í umsjá Björns Þorláks. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, pírötum, lýsir sig jákvæða gagnart nýju afli - fremur en sameiningu hinna eldri. Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar, Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og Unnur Helga Óttarsdóttir formaður Þroskahjálpar ræða við Gunnar Smára um breytingarnar sem gerðar voru á örorkulífeyri fyrir viku.
Tótla I Sæmundsdóttir hjá Barnaheillum ræðir mál sem varða velferð barna, mismunum eftir efnahag og mikilvægi þess að aðgát skal hörð í nærveru sálar svo nokkuð sé nefnt. Björn Þorláks ræðir við hana.
Sunnudagurinn 7. september
Synir Egils: Trans, pólitísk átök og sviptingar, mótmæli, samstaða
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þingmennirnir Arna Lára Jónsdóttir frá Samfylkingu, María Rut Kristinsdóttir frá Viðreisn og Sigurður Örn Hilmarsson frá Sjálfstæðisflokki og ræða fréttir vikunnar, stöðuna í pólitíkinni og þingveturinn fram undan. Þá mun fólk ræða þá miklu samstöðu sem kom fram í gær meðal þjóðarinnar með Palestínumönnum og kröfur sem gerðar voru á stjórnvöld um raunverulegar aðgerðir gagnvart þjóðarmorðinu á Gaza. Arnfríður Guðmundsdóttir prestur og prófessor, Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands, Fjölnir Sæmundsson formaður Landssambands lögreglumanna, Hólmfríður Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ræða hvernig þjóðarmorðið snertir almenning og hvernig hann getur brugðist við. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Laugardagur 6. september
Helgi-spjall: Lára Pálsdóttir
Lára Pálsdóttir félagsráðgjafi segir frá fólkinu sínu, Jesús ömmu sinnar og sósíalisma afa, frá þolinmæði mömmu sinnar og alkóhólisma föðurs, frá uppreisnum sínum sem unglingur, ást á bókum, æskulýðsskóla í Sovét, sárum missi og að fá að fæðast á ný.
Föstudagur 5. september
Vikuskammtur: Vika 36
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Bollason myndlistarmaður, Brynja Cortes Andrésdóttir þýðandi, Hye Joung Park myndlistarkona og kennari og María Hjálmtýsdóttir kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af upphlaupum, hneykslun, pólitískum hræringum, stríði og engum frið.
Fimmtudagur 4. september
FRÉTTATÍMINN
María Lilja, Björn Þorláks og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Fimmtudagur 4. september
Fjárhagslegt ofbeldi, Alzheimer, Neytendur, Flokkur fólksins, Tónlist
Sæunn Marínósdóttir, þolandi fjárhagslegs ofbeldis af hendi fyrrum maka segir sögu sína og hvernig kerfið býður uppá og hjálpar beinlínis gerendum ofbeldis. María Lilja ræðir við hana. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Kristínu Kristófersdóttur um alzheimer. Hún er eiginkona manns með sjúkdóminn sem greindist 52ja ára gamall. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir gríðarháa stjórnvaldssekt á norskum matvörumarkaði, færslugjöld, rétt sundlaugargesta til bóta ef viðhald kallar á lokun sundlauga, ofurvexti og fleira í Neytendahorninu með Birni Þorláks. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, ræðir stöðu eigin flokks og þingveturinn fram undan. Stefnir í átakatímabil? Björn Þorláks ræðir við Sigurjón. Björn Þorláksson ræðir við Tryggva M Baldvinsson tónskáld um tónsköpun, listina og lífið.
Miðvikudagur 3. september
FRÉTTATÍMINN
Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Miðvikudagur 3. september
Kastljósumræðan, hafstraumar, Sjálfstæðisflokkurinn, Reynsluboltar og mótmælendur
Það veldur umtalsverðri vanlíðan hjá aðstandendum trans fólks að hlusta á vanstillta orðræðu Snorra Mássonar og sjá undirtektirnar. Þetta segir Þórgnýr Dýrfjörð, faðir transeinstaklings í samtali við Björn Þorláksson. Stefán Jón Hafstein sem hefur skrifað mikið um umhverfismál ræðir ögurstundina sem nú er uppi. Miklu varðar að Íslendingar ekki síður en aðrar þjóðir breyti hegðun sinni til að vernda hlýja hafstrauma og fleira. Björn Þorláks ræðir við Stefán.
Reynsluboltar Sigurjóns Magnússonar verða á dagskrá en þar ræðir folk þjóðmálin. Gestir þáttarins eru Guðmundur Þ. Ragnarsson, Vilborg Oddsdóttir, Margrét Sanders og Þorsteinn Sæmundsson. Lögregluaðgerðir við Hlemm-Mathöll. María Lilja ræddi við vitni. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður segir sinn gamla flokk, Sjálfstæðisflokkinn óþekkjanlegan. Hann segir minnkandi ítök valdaflokkanna gömlu eiga sér skýringar sem hann ræðir í samtali við Björn Þorláksson. Og við endum þáttinn á ofbeldi gegn mótmælendum. Daníel Thor Bjarnason, Helga Ögmundardóttir og Margrét Baldursdóttir eru öll virk í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu. Þau lýsa fyrir Maríu Lilju hvernig þau hafa öll orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á mótmælum undanfarið og hvernig lögregla og fjölmiðlar eiga þátt.
"vímuefnaraskanir" ? ...