DiscoverSkuggavaldið
Skuggavaldið
Claim Ownership

Skuggavaldið

Author: skuggavaldid

Subscribed: 757Played: 13,060
Share

Description

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.

Framleitt af Tal.
56 Episodes
Reverse
Dó Paul McCartney árið 1966 og var honum skipt út fyrir tvífara? Samkvæmt einni frægustu samsæriskenningu poppsögunnar lést hann í bílslysi en dauða hans var haldið leyndum. Svo var að sagt að hinir Bítlarnir hafi skilið eftir dularfullar vísbendingar í lögum sínum og á plötuumslögum. Eiríkur og Hulda rekja söguna af meintum dauða McCartneys, leyniskilaboðunum og fjölmiðlaæðinu sem fylgdi. Um leið fjalla þau um Bítlana sem tákn menningarbyltingar sjöunda áratugarins. Hvernig varð orðrómur að einni lífseigustu samsæriskenningu tónlistarsögunnar – og hvers vegna trúði fólk honum? Eða trúði það því kannski bara alls ekki neitt? Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
#54 - Langamma njósnari

#54 - Langamma njósnari

2026-11-0953:231

Hylmdi breska leyniþjónustan yfir sovéskum njósnara í London? Í áratugi var Melita Norwood, elskuleg langamma sem sauð sultu og ræktaði epli í úthverfi borgarinnar, einn mikilvægasti útsendari KGB í Bretlandi. Hún afhenti Sovétmönnum leyniskjöl úr kjarnorkuvopnaáætlun Breta, en þrátt fyrir að MI5 kæmist ítrekað á sporið var hún látin óáreitt. Í þessum þætti af Skuggavaldinu rekja Hulda og Eiríkur ótrúlega sögu Melitu og velta því fyrir sér hvernig staðalmyndin af hinni skaðlausu eldri konu reyndist hennar besti skjöldur.
#53 - Mitrokhin skjölin

#53 - Mitrokhin skjölin

2026-10-2656:191

Vasilí Mitrokhin var skjalavörður hjá sovésku leyniþjónustunni KGB. Í tólf ár afritaði hann þúsundir skjala á laun og kom safninu að lokum með ævintýralegum hætti til Vesturlanda eftir hrun Sovétríkjanna. Skjölin ollu jarðskjálfta í leyniþjónustuheiminum og komu upp um njósnara víða um heim. Við rekjum sögu hans og spyrjum hvað rak hann áfram: hugsjónir, hefnd eða fjölskyldan? Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Voru leiðtogar Rauðu herdeildanna myrtir af vestur-þýska ríkinu inni í Stammheim-fangelsinu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar rekja Eiríkur og Hulda hina blóðugu lokakafla sögunnar um Baader-Meinhof gengið og ræða fangavistina í Stammheim, dauða Meinhof, Þýska haustið 1977, flugránið í Mogadishu og hina dularfullu nótt þegar Baader, Ensslin og Raspe fundust látin í klefum sínum. Var um samhæfð sjálfsvíg að ræða – eða ríkismorð?   Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Var Vestur-Þýskaland eftirstríðsáranna í raun fasistaríki í dulargervi? Eiríkur og Hulda rekja vegferð Ulrike Meinhof inn í Rauðu herdeildina, RAF, og skoða þá heimsmynd sem varð til þess að hópur ungra róttæklinga taldi vopnaða baráttu ekki aðeins réttlætanlega heldur nauðsynlega. Fjallað er um óuppgert uppgjör við nasismann, morðið á Benno Ohnesorg, Andreas Baader og Gudrun Ensslin og örlagastundina þegar Meinhof yfirgaf borgaralegt líf sitt og fór í felur. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
loading
Comments