Discover
Trivíaleikarnir

Trivíaleikarnir
Author: Daníel Óli
Subscribed: 55Played: 1,163Subscribe
Share
© Daníel Óli
Description
Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni.
Fáðu þrjá þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
Fáðu þrjá þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
53 Episodes
Reverse
Já það er komið að fertugasta og áttunda þætti Trivíaleikanna. Í sjóðblautt stúdíóið mættu Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi. Hart var barist og mikið svitnað, ekki missa af þessari veislu! Hvort var það Benito Mussolini eða Voldemort sem sagði "Mikilleiki vekur öfund, öfund elur illsku, illska elur lygar"? Hvað hétu ræningjarnir þrír í leikverkinu um Kardemommubæinn? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.
Fertugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni brá hópurinn sér í stúdíó Sánu að nýju og okkar allra besti Kristján settist í fyrsta sinn í spyrils- og dómarasætið. Tvö þungarvigtarlið tókust á í kjölfarið en Daníel og Ingi mættu Arnóri og Jóni í títanískum hamfaraslag vitsmuna og fræðimennsku. Ekki missa af þessari veislu. Hvaða leikari fór með hlutverk Blade í Blade þríleiknum. Frá hvaða heimsálfu koma tómatar upprunalega? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Daníel Óli, Arnór Steinn, Jón Hlífar og Ingi.
Já það er komið að fertugasta og sjötta þætti Trivíaleikanna og að þessu sinni var þátturinn algjör negla. Marín Eydal og Daníel Óli mynduðu stórskemmtilegt teymi sem tókst á við hörkusterkt lið Ödda og Kristjáns á meðan að Arnór Steinn vermdi þáttastjórnendasætið. Júlí markar tímamót í sögu Trivíaleikanna þar sem við munum héðan í frá vera að gefa út þrjá þætti í hverjum mánuði og lækkuðum einnig áskriftargjaldið okkar á Patreon úr 10$ í 8$. Það þýðir að allir sem eru í áskrift munu vera að fá þrjá þætti í hverjum mánuði fyrir litla 8$. Ekki missa af þessari veislu, kíktu inn á www.patreon.com/trivialeikarnir og vertu með! Hvað heitir síðasta kvikmyndin í Dollars trilógíunni? Úr hvaða stöðuvatni rennur Laxá í Aðaldal? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Marín Eydal, Daníel Óli, Haraldur Örn og Kristján.
Já þú last rétt! Við erum að fjölga fjölda þátta af Trivíaleikunum sem við gefum út í hverjum mánuði og lækka áskriftargjaldið sömuleiðis, sturlað! Hlustaðu á kynninguna, skelltu þér á Patreon og vertu með okkur í veislunni!
Við vildum leyfa ykkur öllum að prófa að hlusta á einn af þeim fjölmörgu frábæru þáttum sem við erum að bjóða upp á inni á Patreon þessa dagana. Kíktu á Patreon vef okkar, komdu í áskrift og fáðu hátt í 20 þætti sem eru þar inni nú þegar! Heyrst hefur að áskriftargjaldið hafi lækkað á síðustu dögum, mæli með að tékka á því!Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ingi & Haraldur Örn.
Fertugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján í gamla góða stúdíó 9A seint á þriðjudagskvöldi. Chi-húa-húa og Lanmótið Lana Del Reykjavík - ekki missa af þessari veislu. Nafn hvaða eftirréttar merkir á ítölsku „eldaður rjómi.” Hvaða land á flesta páfa á eftir Ítalíu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján.
Fertugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Kristján og Hnikarr þeim Inga og Ödda í títanískum reginslag í gamla góða stúdíói 9A. Ekki missa af þessari skyrþöktu veislu! Hver var fyrsta skáldsagan sem var skrifuð í allri heild sinni á ritvél? Hvaða tæknirisi framleiddi fyrsta örgjörvann sem var seldur almenningi? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Kristján, Ingi, Hnikarr Bjarmi og Öddi.
Fertugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María í upprunalega stúdíó hlaðvarpsins, hið yndislega Stúdíó 9A. Ekki missa af þessari Imodium veislu. Hvert er fjölmennasta landlukta land heims? Hvað gefur verðmætasta prikið í Míkadó mörg stig? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María
Já þið lásuð rétt, það er loksins komið að þemaþætti! Að þessu sinni vorum við með kosningu á Instagram þar sem hlustendur sendu inn tillögur og níundi áratugurinn (80's) var valinn úr þeim uppástungum. Magnús Hrafn og Jón Hlífar tóku á móti Daníel Óla og Kristjáni í gamla góða stúdíó 9A en í dómarasætið brá sér okkar allra besti Arnór Steinn. Fyrir hvaða Bond kvikmynd samdi Duran Duran þemalag? Hve langur var Berlínarmúrinn? Hver lék eltihrellinn ógurlega í Fatal Attraction? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Daníel Óli, Jón Hlífar, Kristján og Magnús Hrafn.
Já þið lásuð rétt - við ætlum að leyfa ykkur að prófa einn af Patreon þáttunum okkar frítt. Heima Quiz er í rauninni Pub Quiz sem þú getur spilað heima hjá þér eða hvar sem þú ert. Þú getur ýmist keppt á móti Inga og Kristjáni eða keppt við maka, vin, foreldra eða hvern sem er - þú ræður algjörlega ferðinni. Daníel ber upp 16 flokkaspurningar, eina textabók og þríþraut og þú svarar á blað (við bjóðum upp á blað sem þú getur prentað út á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net) og svo förum við yfir spurningarnar og svörin í lokin. Hefur þig alltaf langað að prófa að spreyta þig á Trivíaleikaspurningunum sjálfur? Langar þig að skora hærra en keppendur Trivíaleikanna? Núna er tækifærið, helltu þér upp á drykk, komdu þér fyrir með blað og byrjaðu að svara!
Fertugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þennan kyngimagnaða þátt mætti Haraldur Örn frá hlaðvarpi Fótbolti.net þar sem hann er með spurningakeppnisþáttinn "Fótbolta nördinn." Í liði með Haraldi var enginn annar en okkar allra besti Stefán Geir en á móti þeim tveimur keppti eitt kunnuglegasta lið hlaðvarpsins "Heiðingi" eða Heiðdís María og Ingi. Hvaða þrjú ríki kallaði George W. Bush, Öxulveldi hins Illa? Hvaða norræni rithöfundur skrifaði ævintýrið um Snædrottninguna? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Haraldur Örn, Heiðdís María og Ingi.
Fertugasti þáttur Trivíaleikanna en að þessu mættu Marín Eydal og Ingi þeim Kristjáni og Hnikarri sem létu vel um sig fara í Stúdíó Frystikistu. Hvert er enska og þekktara heiti eitursins Kristspálma? Hvaða íslendingur lék stórt hlutverk í lokaseríu sjónvarpsþáttanna um Dexter? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Ingi, Kristján og Hnikarr Bjarmi.
Já þið lásuð rétt! Þann 05. desember 2024 klukkan 21:00 verða Trivíaleikarnir með Pub Quiz í Arena Kópavogi. Hlustaðu á kynninguna og ekki láta þig vanta á fimmtudaginn næsta!
Þrítugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni rændum við tónlistarmanninum og spurningaþáttagoðsögninni Vilhelm Antoni eða Villa Naglbít eins og hann er kallaður og buðum honum sæti í ísköldu stúdíó Sána. Auk hans mættu til leiks Trivíaleikakempurnar Arnór Steinn, Ingi og Kristján í einhverjum eftirminnilegasta þætti hlaðvarpsins. Nafn hvaða pastategundar merkir einfaldlega „litlar tungur” á ítölsku? Hvað byrja spilarar með mörg spil á hendi í Ólsen Ólsen? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Áríðandi tilkynning: Við viljum minna ykkur öll á að Trivíaleikarnir verða með fyrsta Pub Quizið í sögu hlaðvarpsins þann 5. desember nk. í Arena (turninum) í Kópavogi klukkan 21:00. Ekki missa af þessari veislu og láttu sjá þig á Arena 5. des!
Keppendur: Vilhelm Anton, Arnór Steinn, Kristján og Ingi.
Þrítugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti stórgott lið Jóns Hlífars og Kristjáns sterku liði Arnórs Steins og Inga í Stúdíó Sánu. Ekki missa af þessari rjúkandi heitu skemmtun af hlaðvarpsþætti, komdu þér fyrir, ýttu á play og njóttu vel. Hvaða land sem liggur ekki að sjó (er landlukt) er stærst allra landluktra landa að flatarmáli? Hvers konar dýr er persónan fræga Tom Nook sem kemur fyrir í Animal Crossing tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ingi, Jón Hlífar og Kristján.
Þrítugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni hefur lukkudýr hlaðvarpsins snúið aftur í framhaldsþætti sem allir hafa beðið eftir! Marín Eydal og Arnór Steinn tókust á við sterkt lið Ástrósar Hindar og Kristjáns í gígantískum vitsmunaslag í hinu gamla og góða stúdíói 9A. Hvert er algengasta orðið í enskri tungu? Hvert er háværasta dýr jarðarinnar? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ástrós Hind og Kristján.
Þrítugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján til leiks í stúdíó Sána. Ekki missa af þessari veislu og hlustaðu á hundrað mismunandi leiðir til að mjálma vitlaust. Undir hvaða listamannsnafni er tónlistarmaðurinn Richard Starkey betur þekktur? Hvað er Cosa Nostra? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján.
Þrítugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna en Daníel er mættur aftur og tók á móti Stefáni Geir, Jóni Hlífari, Kristjáni og Inga í meðalheitu stúdíó Sána. Er ælubogi færeyskt orð yfir hringtorg eða regnboga? Hvaða land hefur flesta staði á heimsminjaskrá? Hvaða áfengi drykkur er notaður þegar búið er til Sangria? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.
Þrítugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, Daníel er ennþá týndur en það er víst góð ástæða fyrir því samkvæmt spurningahöfundi þáttarins Arnóri Steini. Að þessu sinni mættu Marín Eydal, Ástrós Hind, Heiðdís María og Ingi í löðrandi heitt stúdíó undir súð í Grafarvoginum þar sem spænskunni var slett óspart og ekkert var tilsparað. Í hvaða borg er að finna hina frægu Karlsbrú? Hvaða fyrirtæki kom með fyrstu stafrænu myndavélina á almennan markað árið 1999? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Ástrós Hind, Heiðdís María og Ingi.
Þrítugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni brá Arnór Steinn sér í dómarasætið þar sem Daníel er stunginn af út á land yfir sumarið. Kristján og Jón Hlífar tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu í löðrandi sveittu stúdíói 33 þar sem engu var til sparað. Hvers konar matvæli er Paneer? Hvernig eru skeljarnar á litinn sem skjóta má á fremsta ökumann í Mario Kart tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María.
Comments