DiscoverTvær á floti
Tvær á floti
Claim Ownership

Tvær á floti

Author: Fanney & Sara

Subscribed: 31Played: 215
Share

Description

Tvær á floti er hlaðvarp fyrir konur yfir þrítugt sem halda mörgum boltum á lofti en vilja gefa sér meira rými og tíma til að rækta sjálfa sig, finna jafnvægi og njóta lífsins.


Í hlaðvarpinu taka þáttastjórnendur samtalið á opinskáan og einlægan hátt og deila eigin reynslusögum. Í framhaldi verður leitað til sérfræðinga þar sem kafað verður dýpra í það sem skiptir máli. Markmiðið er að hlustendur fái innblástur, hvatningu og verkfæri til að fljóta í gegnum lífið.


Instagram: @tvaerafloti
TikTok: @tvaerafloti

18 Episodes
Reverse
Stuttur þáttur þar sem við förum yfir þessa fyrstu seríu af Tvær á floti. Við rifjum upp góða og mikilvæga punkta sem við fengum frá þeim gestum sem komu til okkar í heimsókn. Við þökkum hlustendum og samstarfsaðilum kærlega fyrir stuðninginn þessa fyrstu seríu. Önnur sería er væntanleg haustið 2025. Þátturinn er í boði: VILA IcelandEldum RéttHÚÐIN skin clinicNÚTRÍ Health Bar
Í þessum þætti fá Fanney og Sara kírópraktorinn og áhrifavaldinn Gumma Kíró í heimsókn. Þær fara um víðan völl, hvernig Gummi hefur byggt upp sterkt persónulegt vörumerki, áhrifavaldaheiminn, kosti og galla þess að vera opinber persóna. Gummi opnaði fyrir ekki svo löngu umboðsskrifstofuna Atelier Agency og fara þær yfir hvað fólk þarf að hafa í huga sem hefur áhuga á að stíga sín fyrstu skref í þessum bransa. Einlægt og áhugavert spjall sem allir ættu að hlusta á! Þátturinn er í boði: Eldum...
Í þessum þætti fara Fanney og Sara yfir það hvernig það er að byggja upp sitt persónulega vörumerki, af hverju fólk ætti að gera það og hvernig það getur hjálpað til við að koma sér á framfæri og sækja sér ný tækifæri. Persónulegt vörumerki er eitthvað sem við öll ættum að hafa bakvið eyrað hvort sem það er tengt atvinnulífinu, samfélagsmiðlum, viðskiptahugmyndum eða daglega lífinu. Stutt og þægilegt spjall um persónuleg vörumerki og hvernig það getur hjálpað þér að skara framúr og koma þér á...
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara við Ragnheiði, mannauðssérfræðing og markþjálfa hjá Lóu markþjálfun. Við förum dýpra ofan í það hvernig við setjum okkur raunhæf markmið, mikilvægi þess að lifa í núinu og að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum akkúrat núna. Ragnheiður fer einnig yfir starfsánægju, starfsumhverfi og hvernig við getum stuðlað betur að því að líða vel í lífi og starfi. Fróðlegt og hvetjandi spjall sem allir ættu að hlusta á! Þátturinn er í boði: Eldum RéttNÚTRÍ Healt...
Í þessum þætti fjalla Fanney og Sara um markmiðasetningu og hvernig best er að setja sér raunhæf markmið, algeng mistök í markmiðasetningu og lykilatriði sem hjálpa til við að ná markmiðum sínum. Fanney gefur okkur smá innsýn inn í það hvernig markþjálfun fer fram þar sem hún tekur stutt og einfalt markþjálfa samtal við Söru. Léttur en fróðlegur þáttur sem um leið gefur smá innblástur í það af hverju það er mikilvægt að setja sér markmið í lífinu. Þátturinn er í boði: Eldum RéttNÚTRÍ Health B...
S01 E13 - Gerða INSHAPE

S01 E13 - Gerða INSHAPE

2025-06-1101:06:34

🎙️ Í þessum þætti ræða Fanney og Sara við Gerði Jónsdóttir, þjálfara og stofnanda Inshape, um hvernig við getum tengst líkamanum á nærandi og heilbrigðan hátt. Þær kafa í hreyfingu sem verkfæri fyrir andlega heilsu, mikilvægi jafnvægis í næringu og hvernig við sleppum útlitskröfunni og mætum okkur sjálfum af virðingu. Gerður deilir sinni sýn, persónulegri reynslu og hagnýtum ráðum fyrir konur sem vilja hreyfa sig fyrir vellíðan – ekki útlit. Einlægt, praktískt og hvetjandi spjall um líkama, h...
Í þessum þætti fara Fanney og Sara á léttu nótunum yfir heilsu og næringu. Þær spjalla um það sem þær hafa prófað, hvað hefur virkað fyrir þær og hvernig þær huga helst að heilsunni. Í næsta þætti kemur sérfræðingur sem fer dýpra ofan í þetta mál. Þátturinn er í boði: Eldum RéttNÚTRÍ Health BarHÚÐIN skin clinicVILA Iceland
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara við Áslaugu Kristjánsdóttur, kynlífs- og sambandsráðgjafa um kynlíf, ást, tengingu og raunveruleikann í parasamböndum. Þær kafa í hvernig streita, áföll og foreldrahlutverkið hafa áhrif á nánd og kynlíf og hvernig hægt er að byggja upp traust og tengingu á ný. Einlægt og opinskátt spjall um hvernig við nærum sambandið þegar lífið reynir á. Þátturinn er í boði: VILA IcelandNÚTRÍ Health BarHÚÐIN Skin ClinicEldum Rétt
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara um raunveruleikann í parasamböndum, flækjur, fegurð og áskoranir. Þær ræða um það hvernig daglegt líf og streita geta haft áhrif á sambandið ásamt því að skoða hvað veldur því að kynlöngun detti niður. Í lok þáttarins er farið í nokkrar djúsí hvort myndir þú spurningar. Í næsta þætti fá þær sérfræðing í settið sem segir þeim frá öllu sem tengist kynlífi í parasambandi! Þátturinn er í boði: NÚTRÍ Health BarHÚÐIN skin clinicEldum RéttVILA Iceland
Í þessum þætti fá Fanney og Sara til sín Valdísi Hrönn Berg, fjárhagsmarkþjálfa. Hún hefur sérhæft sig í fjármálum og rekstri heimilisins og hjálpar fólki að ná árangri, setja sér raunhæf markmið og að breyta viðhorfi sínu til peninga. Stútfullur þáttur af fróðleik og skyldu hlustun fyrir þau sem vilja taka fjármálin sín í gegn! Þátturinn er í boði: Eldum RéttHÚÐIN skin clinicNútrí Health BarVILA Iceland
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara um fjármál og rekstur heimilisins. Þar er farið í almennar pælingar um viðhorf og þekkingu á fjármálum og af hverju það er oft svona mikið feimnismál að ræða svona mikilvægan part af lífinu sem fjármálin eru. Í næsta þætti fá þær til sín sérfræðing í heimsókn sem kafar enn dýpra í málið. Þátturinn er í boði: Nútrí Health Bar HÚÐIN skin clinic Eldum Rétt VILA
Í þessum þætti fá Fanney og Sara til sín Söru Pálsdóttir, dáleiðara og leiðbeinanda í núvitund sem sérhæfir sig í kvíða og streitu – bæði í eigin lífi og í starfi. Hún heldur námskeiðið „Frelsi frá kvíða“ og deilir með okkur aðferðum sem hún hefur notað til að hjálpa fólki að losna við kvíða. Í seinasta þætti deildum við okkar persónulegu reynslu af kvíða, en nú förum við dýpra ofan í fræðin: Hvað er kvíði í raun? Hver er munurinn á streitu og kvíða? Og hvenær verður kvíði eitthvað sem við ...
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara um eigin reynslu af kvíða og hvernig hann birtist í líkama og huga. Þær skoða algengar mýtur um kvíða, furðulegustu ráðleggingarnar sem fólk gefur, og áhrif samfélagsmiðla á andlega heilsu. Í næsta þætti fá þær til sín sérfræðing í heimsókn sem kafar enn dýpra í málið.
Í þessum þætti fá Fanney og Sara til sín Láru og Sigríði Örnu, eigendur og stofnendur HÚÐIN skin clinic - einnar vinsælustu húðmeðferðarstofu landsins. Þær fara með okkur dýpra ofan í heim húðmeðferða, virkra innihaldsefna og hvernig við getum raunverulega bætt húðina okkar. Við kíkjum líka á vinsælustu meðferðirnar og nýjustu tæknina í húðheiminum... t.d. meðferð sem nýtir silunga-svil (eða laxasæði eins og við köllum það!) - virkar hún og sýnir hún raunverulegan árangur? Fróðlegur og skemmt...
Í þessum þætti kafa Fanney og Sara ofan í heim húðumhirðu, skoða stærstu mýturnar og furðulegustu fegurðarráðin sem fólk trúir enn á. Frá geislavirkum kremum til tannkrems á bólur - hvað virkar í raun og hvað er algjört bull? Þær deila eigin húðsögum, velta fyrir sér áhrifum samfélagsmiðla og skoða hvað vísindin segja um vinsælustu húðtrendin. Í næsta þætti fá þær til sín sérfræðinga í heimsókn sem kafa enn dýpra í málið. Þátturinn er í boði: Húðin skin clinicEldum RéttNútrí Health BarVila I...
Eva Matta kemur í heimsókn og kafar dýpra með okkur ofan í lífsgæðakapphlaupið og hvernig við getum tekist á það innra með okkur. Eva Matta er markþjálfi, rithöfundur og hélt úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins um árabil. Hún er með alþjóðleg þjálfararéttindi frá Dale Carnegie og hefur þjálfað fjölda fólks í sjálfstrausti, samskiptum og hugarfari. Stútfullur þáttur af fróðleik og góðum punktum til að taka með út í lífið. Þátturinn er í boði: Nútrí Health BarHÚÐIN skin clinicEldum RéttVila ...
Í þessum þætti fara Fanney og Sara yfir pressuna sem mörg okkar finna fyrir, að hafa allt á hreinu í lífinu og almennt kröfuna um að allt þurfi að vera "fullkomið". Er þetta raunhæft eða bara samfélagsleg hugmynd um það hvernig þú átt að lifa lífinu? Þær deila sinni eigin reynslu og vangaveltum en í næsta þætti verður kafað dýpra ofan í viðfangsefnið með skemmtilegum viðmælanda! Þátturinn er í boði: Húðin skin clinicNútrí Health BarEldum RéttBestseller Fylgdu Tvær á floti á samfélagsmiðlum: ...
S01 E01 Pilot

S01 E01 Pilot

2025-03-1137:531

Í þessum fyrsta þætti deila Fanney og Sara markmiðum hlaðvarpsins, segja frá því sem framundan er og gefa hlustendum tækifæri til að kynnast sér aðeins betur. Instagram: @tvaerafloti TikTok: @tvaerafloti
Comments