Eyþór Bender er íslenskur frumkvöðull, leiðtogi á sviði nýsköpunar og hinn mesti utanvegahlaupari. Hann starfaði í rúman áratug hjá Össuri / Emblu, þar sem hann var framkvæmdastjóri Ameríku deildarinnar en flutti síðan til Silicon Valley (Kísildal) þar sem hann kom að rekstri og stofnun fyrirtækja á sviði göngu vélmenna og þrívíddartækni. Núna ferðast hann um heiminn ásamt því að hjálpa sprotafyrirtækjum á sviði heilsu- og iþróttatækni. Eyþór býr i Andorra hefur lokið síðustu 3 árin nær 20 Ultra utanvega keppnum víða um heim, þar á meðal í UTMB mótaröðinni, og er nú í fremstu röð i sínum aldursflokki í hinum ýmsu hlaupum. ---------------------------------------------------------- Eyþór Bender https://www.instagram.com/eythorbender/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Daniel Snær Eyþórsson hefur bætt sig gífurlega í hlaupunum frá því hann byrjaði sinn hlaupaferill í 10 km Hólmsheiðarhlaupinu árið 2022. Daniel æfir með FH í dag undir handleiðslu Sigga P og á 16:14 í 5 km og 34:29 í 10 km. Sigurjón og Daníel ræða Hlaupin, þróun Sportvara þar sem Daníel vinnur (Sigurjón vann einnig), föðurhlutverkið sem er handan við hornið, slæm meiðsli í fótboltanum sem urðu til þess að Daníel nálgaðist þriggja stafa tölu í þyngd, fókus á heilsu og margt fleira. ------------------------------------------------------ Daníel Snær: https://www.instagram.com/danielsnaer__/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Karlotta Ósk er án efa einn af okkar öflugustu ultrakonum í dag. Í sumar gerði hún sér lítið fyrir og tók þátt í tveim hlaupum sem náðu bæði yfir 500 km takk fyrir. Siurjón kynntist Karlottu í fyrirtækjaþjálfun Arion banka þar sem hann heyrði fyrst af ofurlöngum gönutúrum hennar (100 km) sem hægt og rólega færðust yfir í ein mest krefjandi ultrahlaup í heimi. ------------------------------------------------------ Karlotta á instagram: https://www.instagram.com/direct/t/100551264679833/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Bergur gerði sér lítið fyrir og gekk með 170 kg sleða frá Akureyri til Reykjavíkur og fór seint auðveldustu leiðina þar á milli landshluta. Þar sem það var ekki nóg þá ákvað hann í miðri 12 daga göngu að hlaupa 55 km Laugavegshlaupið frá Landmannalaugum yfir í Húsadal. Mjöll Barkar tók einnig 12 daga áskorun meðan Bergur gekk með sleðann og fastaði í heila 12 daga sem varð hið mesta ævintýri. ------------------------------------------------------------ Skrefið hjá Berg: https://www.instagram.com/skrefid2025/ Bergur á Instagram: https://www.instagram.com/bergurvil/ Mjöll á Instagram: https://www.instagram.com/sonjasifj/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Gunnar Atli og Sonja Sif eru hin mestu ofurhjón og hafa lagt mikið kapp á hreyfingu allt sitt líf. Þau hafa sigrast á hinum ýmsu áskorunum og þrátt fyrir góðan/langan tíma í fjöbreyttri hreyfingu þá eru þau rétt að byrja (enda bæði á besta aldri til að toppa sig þessa dagana). Í spjallinu fórum allt frá æsku og uppeldi yfir í keppnir, æfingar, meiðsli, endurheimt, næringu, hugarfar og margt fleira. ------------------------------------------------------ Gunnar Atli: https://www.instagram.com/friduson/ Sonja Sif: https://www.instagram.com/sonjasifj/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Eftir utanvegahlaupið Kerlingafjöll Ultra náðum við nokkrum af öflugustu karla jafnt sem kvenna hlaupurum í stutt spjall þar sem við fórum bæði yfir hlaupið í Kerlingafjölunum jafnt sem næstu keppnir, æfingar og margt fleira. Við náðum spjalli við Stefán, Grétar og Þorstein Roy karla meginn og Andreu Kolbeinsdóttir og Elísu Kristinsdóttir kvenna meginn. ------------------------------------------------------ Kerlingafjöll Ultra: https://kerlingarfjoll.is/kerlingarfjoll-ultra ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Mari þarf ekki mikið að kynna til leiks fyrir hlustendum… Mari byrjaði að keppa í utanvegahlaupum hér á landi 2019 (Esjumaraþonið var hennar fyrsta hlaup) með mjög góðum árangri og færði sig svo fljótlega í Bakgarðshlaup þar sem hún náði fljótt árangri sem fáir hér á landi geta leikið eftir. Mari hefur lengst farið farið 57 hringi í Bakgarðshlaupum sem telur 382 km, hátt í 3 heila sólahringa á hlaupum !!! ------------------------------------------------------ Instagram hjá Mari: https://www.instagram.com/mari_jaersk/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Teitur hefur unnið, lifað og hrærst í líkamsræktarbransanum í mörg ár og starfar í dag sem einkaþjálfari hjá World Class. Teiti þykir gaman að skora á sjálfan sig og gerði sér lítið fyrir og keppti í hálfum járnkarli núna fyrir stuttu sem hann kláraði með stæl. Hálfur Iron man = 1.9 km sund - 90 km hjól og 21,1 km hlaup. Sigurjón og Teitur snerta á ansi mörgum þáttum tengt heilsu í góðu spjalli sem allir ættu að hafa gaman af. ------------------------------------------------------ Instagram hjá Teiti: https://www.instagram.com/teiturara/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Sigurjón Sigurbjörnsson byrjaði sinn hlaupaferil 42 ára gamall og hefur farið kringum 30 maraþon og þar af rúmmlega helming af þeim undir 3 klst. Sigurjón hefur einnig þrisvar keppt í 100 km götuhlaupi og er Íslandsmetahafi þar eftir að hann hljóp 100 km hér heima árið 2009 á 7 klst og 59 min sem er meðalpace uppá 4:48 min. Sigurjón og Sigurjón fara um víðan völl í spjallinu og snerta á hans hlaupaferli og fara í æfingar og æfingaáætlun fyrir maraþon jafnt sem 100 km hlaup. ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni: https://www.instagram.com/ssigur27/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Örvar Steingrímsson er með reyndari hlaupurum hér á landi og hefur keppt fyrir hönd Íslands í heimsmeistaramótum í utanvegahlaupum og náð virkilega flottum árangri í hinum ýmsu keppnum. Sigurjón og Örvar fara um víðan völl og ræða upphafið á hlaupunum hjá Örvari og ræða undirbúning og ýmsar æfingar sem hann, Guðni Páll og fleiri tóku til að undirbúa sig fyrir hinar ýmsar áskoranir. Örvar ræðir einnig hvað sé framundan en næsta stóra áskorun hjá honum er 100km í Rauðavatn Ultra 9.Ágúst þar sem hann ætlar að reyna að bæta núverandi Íslandsmet 7:59 klst sem Sigurjón Sigurbjörnsson á í dag. ------------------------------------------------------ Instagram hjá Örvari: https://www.instagram.com/orvars/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
María Krista eða Kristaketo eins og hún er betur þekkt á Instagram hefur fylgt ketónísku og lágkolvetna mataræði til lengri tíma með góðum árangri og bættri líðan andlega jafnt sem líkamlega og er þessa dagana að prófa sig áfram með carnivore mataræði. Sigurjón og Kristín fóru um víðan völl í næringuni og snertu á ýmsum atriðum tengt næringu og heilsu. María er dugleg að deila uppskriftum og ýmsum fróððleik á samfélagsmiðlum undir krisstaketo. ------------------------------------------------------ Instagram hjá Maríu: https://www.instagram.com/kristaketo/ Heimasíða Maríu: https://kristadesign.myshopify.com/?fbclid=PAZXh0bgNhZW0CMTEAAae_F_oF0WiZ1SV9HHLIgqRZYYzAYZZOLXGUmJ74Z7kvpuKRUpNWLS76cW2Dxg_aem_Lqk4J6nLPsYu5SNeEPQNBg ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Ævintýramaðurinn Guðmundur Freyr Jónsson kíkti í gott spjall þar sem hann fór yfir hina ýmsu fjallgöngur og ævintýri sem hann og hans félagar hafa farið í gegnum yfir undanfarin ár. Guðmundur er hinn mesti fjallagarpur og hefur samhliða fjallabrölti lag kapp á utanvegahlaup jafnt sem styrktarþjálfun í UltraForm. Sigurjón og Gummi fara um víðan völl og snerta á ýmsum þáttum sem fólk ætti að hafa virkilega gaman að heyra af. ----------------------------------------------------- Instagram hjá Gumma: https://www.instagram.com/gummi_st/ Sportmyndir hjá Gumma: https://sportmyndir.is/ Fjallateymið: https://c.climbing.is/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Rakel og Gummi eru seint að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur !! Milli þess sem þau sigrast á hverju Ultrahlaupinu á fætur öðru þá ferðast þau um heiminn á framandi staði og skoða mismunandi menningarheima út um allan heim. Sigurjón fer yfir vinnu, æfingar, hlaupin, ferðalögin og meira til með þeim Rakeli og Gumma. Þessir ultra hlauparar kunna bæði að þjást og njóta sem eru jú tveir mjög miklir kostir og hálf nauðsynlegt að kunna að gera í okkar nútímasamfélagi. ------------------------------------------------------------------- Instagram hjá Rakel: https://www.instagram.com/rakelmariah/ Instagram hjá Gumma; https://www.instagram.com/gummilu/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
í Hlaðvarpsþætti 90 komum við til ykkar frá Tenerife þar sem fjölmargir Íslendingar kepptu í fjallahlaupinu Bluetrail þar sem keppt er í 24 km, 47 km, 73 km og 110 km með mismikilli hækkun. Í hlaðvarpinu spjölluðum við við keppendur fyrir hlaupið, Sigurjón fór yfir stöðuna á hlaupurunum yfir hlaupið sjálft (á/gegnum drykkjarstöðvum) og svo heyrðum við loks í keppendum eftir áskorunina og spurðum þau út á keppnina.------------------------------------------------------------------- Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir og Sigurjón kynnast í Boot Camp og keppa svo í einstaklings, para og líðakeppni í þrekmótaröðinni í allnokkur ár. Arnfríður gerði sér lítið fyrir og sigraði þrekmótaröðina í kvenna flokki 2015 og hlaut þar titilinn hraustasta kona landsins. Líkt og Sigurjón þá kemur Arnfríður Gígja úr sveitinni þar sem lífið snérist mikið um hreyfingu samhliða því að sinna helstu störfum tengt sveitalífinu. Arnfríður starfar innan lögreglunar í dag þar sem ekki vantar verkefnin.------------------------------------------------------------------- Instagram hjá Arnfríði: https://www.instagram.com/gigja64/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Martha Lind var alltaf öflug í hreyfinu á yngri árum og í raun svo öflug að hún æfði fullmargar íþróttir samtímis þar til hún var vinsamlegast beðin um að velja sér færri greinar til að æfa :P Líkt og gengur og gerist þá dróg hægt og rólega úr hreyfingu þegar Martha færðist yfir á fullorðinsárin og fyrir rest var lítil hreyfing samhliða ekki svo góðu mataræði og aukakílóin fóru að læðast á hana hægt og rólega. Áður en Martha sneri við blaðinu missti hún mjög góða vinkonu langt fyrir aldur fram og gekk svo sjálf í gegnum ótrúlega lífsreynslu/veikindi sem gekk svo nærri henni að hún hélt að það væri hennar síðast...
Sigurjón og Jóhanna kynnast í íþróttafræði á Laugarvatni og deila saman miklum áhuga á hreyfingu og heilsu. Líkt og gengur og gerist þá skildu leiðir eftir námið og lífið tók við hjá bæði Sigurjóni og Jóhönnu. Jóhanna Marín var hinn sannkallaða ofurmóðir sem var með allt á hreinu, alla bolta á lofti og sló hvergi slöku við. Hún var í námi, í vinnu, hreyfði sig alla daga, borðaði öllu jafna hollt og tikkaði bara í öll boxin. Hægt og rólega fór líkaminn þó að gefa vísbendingar að allt væri ekki með feldu og að lokum kom skellurinn sem Jóhanna hélt að væri endalokin á sínum tíma hér. Jóhanna er þó seint mikið fyrir að gefast upp og í dag er hún komin á góðan stað og verður betri með hverjum deginum þrátt fyrir að eiga aðeins í land enþá. ------------------------------------------------------------------- Instagram hjá Jóhönnu: https://www.instagram.com/johannamb92/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Erlu Guðmundsdóttur þarf vart að kynna fyrir mörgum þar sem hún hefur hjálpað fjölmörgum að bæta heilsu sína með hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum, með heilsumarkþjálfun í Sjúkrasport, og heilsumolum á Instagram, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Erla leitar stöðugt leiða til þess að bæta eigin heilsu og heilsurútínu og eftir smá burnout tengt mörgum þáttum lífsins tók hún heilsuna ennþá fastari tökum en þó með aðeins annarri nálgun en bara meiri hreyfingu og hollara mataræði. Sigurjón og Erla fóru um víðan völl í skemtilegu spjalli sem engin ætti að láta framhjá sér fara. ------------------------------------------------------------------- Instagram hjá Erlu: https://www.instagram.com/heilsuerla/ Heimassíða og Heilsumarkþjálfun Erlu: https://www.heilsuerla.is/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Melkorka Árný Kvaran hefur unnið við hreyfingu og lífstíl meira og minna allt sitt líf og klárað nám í íþróttafræði, næringafræði og hjúkrunarfræði og hefur því mikla þekkingu á mörgu sem viðkemur heilsu. Sigurjón og Melkorka fara um víðan völl og ræða hennar nám, vinnu, hreyfingu og alveg yfir í hryðjuverkaáras í maraþonhlaupi sem breytti hennar fókus á hreyfingu og yfir í starf hennar í dag sem hjúkrunarfræðingur í dag. Melkorka og Sigurjón ræða andlega jafnt sem líkamlega heilsu, ástandið í okkar samfélagi, hraða Íslendinga í lífinu og þyngdarstjórnunarlyf sem eru að verða gríðarlega vinsæl ásamt þyngarstjórnunaraðgerðum. ------------------------------------------------------------------- Instagram hjá Melkoru: https://www.instagram.com/mkvaran/ Heilsu Instagram hjá Melkorku: https://www.instagram.com/kjarnaorka/ ------------------------------------------------------ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/
Helgi Halldórsson og Hlynur Þór Þorleifsson hafa báðir áhugaverða sögur að segja frá sinni heilusvegferð. Þeir voru báðir komnir á frekar slæman stað sem rekja má til margra þátta en það er óhætt að segja að þeir sneru alveg við blaðinu og komu sér í ótrúlega gott stand líkamlega jafnt sem andlega á stuttum tíma með réttum áherslum. Þeir eru svo sannarlega komnir í mikið UltraForm í dag og sigrast á erfiðum áskorunum í dag líkt og að drekka vatn. Likt og svo margir eiga til að gera í dag þá gleymdu þeir sér aðeins í amstri dagsins (Ef svo má að orði komast) og settu á sama tíma heilsuna aðeins til hliðar. Þeir hafa heldu betur breytt um gír í dag og hafa á stuttum tíma komist á ótrúlega góðan stað andlega jafnt sem líkamlega. ------------------------------------------------------------------- Instagram hjá Helga: https://www.instagram.com/helgih87/ Instagram hjá Hlyni: https://www.instagram.com/htt82/ Instagram hjá Sigurjóni Erni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/ultraform.is/