Einstaklega skemmtilegur þáttur þessa vikuna gjörsamlega smekkpakkaður af frösum.
Til þess er málið varðar. Gott að koma eftir frí. Skoðum kónginn sjálfan, King Cobra. Það eru slöngur sem verða 5.5(!!!!!!) metrar að lengd. Georg fer með okkur víða einnig. Baráttan um brauðið er lýsandi titill fyrir margar sakir. Eru berklar the real fordæmalausu tímar?
Í aukavakta vikunnar fáum við til okkar Sigurð Hrannar Hjaltason en hann er sá sem bjó til karakterinn Ingva í Fangavaktinni.
Risa þáttur. Rooney, Ronaldo og Darius Vassell. Skoðum Gharial og snertum á frægasta íþróttaleik sögunnar. Það í faglegri yfirferð.
Kæru vinir. Þátturinn þessa vikuna er jafn fræðandi og hann er skemmtilegur. Kvíðaköst, eitur, útrýming og kjólar. Takk.
Kæru vinir Mikil veisla framundan. Georg vantar aðstoðarmann og færum vel og vandlega yfir hvaða hættur leynast á vinsælustu sumaráfangastöðum íslendinga. Njótið vel kæru vaktarbrósar.
Fyrsti þáttur í yfirferð okkar á seríu 3. Skriðdýrahornið á sínum stað og við förum "back to the roots" Skoðum linoleum dúka og dyslexíu. Njótið vel kæru vinir.
Kæru vaktarbrósar og brósur. Loksins er komið að því. Ný syrpa að hefjast og í þætti dagsins leggjum við á borð fyrir veisluna sem framundan er. Förum yfir skemmtilega keppni sem haldin var í Kringlunni á sínum tíma og heyrum í skipuleggjendum og sigurvegara. Skriðdýrahornið fékk frí þessa vikuna og verður því tvöfallt í næsta þætti. Njótið vel kæru vinir.
Loksins er komið að þeim eftivænta. Ragnar Bragason leikstjóri Vaktarseríanna fer með okkur eins langt á bakvið tjöldin og mögulegt er.
Guðjón Smári er útvarpsmaður á FM957 og mikill aðdáandi vaktarseríanna. Guðjón Smári hefur líkt og Ólafur Ragnar tekið þátt í söngvakeppni á Stöð 2 og unnið í útvarpinu á FM. Hann mætir til okkar með faglega yfirferð sína á Dagvaktinni og kynnumst við honum og hans tengingu við þættina vel. Minnum á Pubquiz á fimmtudag næstkomandi kl. 21:00
Þorvar og Grétar einir bestu vinir okkar vaktarbrósa eru mættir í settið og eru tilbúnir til að gefa okkur nýja sýn á seríuna. Við förum í verðlaunaafhendinguna frægu og síðasta skriðdýrahorn seríunnar þar sem við kynnumst manninum Professor Alfred Romer en hann var langt á undan sinni samtíð. Takk fyrir samfylgdina í gegnum Dagvaktarseríuna og heyrumst fljótt aftur.
Í þessum grand final förum við yfir margt. Skoðum ræðuna hans Georgs og hvaðan hún sótti innblástur. Förum yfir Phoenix Reptile Expo 2018 og til hvers eru snúningsprikin sem börn og fáránlingar veifa á 17. júní? Síðast en ekki síst svörum við að sjálfsögðu spurningunni sem allir spurðu sig um eftir síðasta þátt, er Gugga að rísa upp eins og fönix? Framundan er að sjálfsögðu Viðhafnarútgáfan og njótið vel þessara lokaþáttar af Dagvaktinni kæru vinir.
Loksins er komið að næsta þáttarþætti. Margt, mjög margt, sem þarf að fara yfir í dag. Bolsévikar og Romanov, hvað er það eiginlega? Hver er munurinn á hrísmóðir og ljósmóðir og heyrum í Bergþóri stórsöngvara. Þessi þáttur er einfaldlega úr efstu hillu. Vægast sagt. Góðar stundir.
Kæru hlustendur, í Oranjeboom þætti vikunnar fáum við í heimsókn systkinin Kristínu og Starkað í Georgstof stúdíóið. Þau eru mun dýpri í vaktarheimum en flestir og var einstaklega gaman að fá þeirra sýn á seríurnar. Glöggt er gests augað eins og sagt var fyrir hart nær 50 árum og þau orð eru jafn sönn í dag og þau voru þá. Njótið einstaklega vel.
Í þætti dagsins skoðum við dýnamíkina sem ríkir á milli Georgs og Óðins auk þess sem við reynum að kafa í baksögu Óðins. Hefur hann jafnvel unnið á Bjarkarlundi áður? Hvað er merkilegast við kameljón? En og aftur ströndum við á umræðu um Aristóteles og Alexander þar sem við höfum ekki kynnt okkur fræði Hómers nægilega vel og lofum við góðri skýrslu í næsta þætti.
Okkar kæru félagar í Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb með okkur að vana. Förum yfir skröltorma, Aristótales og Alexander. Sláum auðvitað á þráðinn í góða einstaklinga og skoðum eldhúsið hans Víglunds á Saurum. Að ógleymdri umræðu um hnit og þá sérstaklega austur og vestur.
Okkar bestu vinir eru Oranjeboom - Coolbet - Álfurinn - Skúbb Í þessum þætti förum við yfir ýmislegt. Kynnumst Tokay Gecko-um og hvað eru eiginlega gular vatnsmelónur. Hvetjum ykkur til að biðja herra hótelstjóra að slaka á ykkur einum ísköldum meðan þið hlustið.
Þráinn Orri og Arnar Þór kíktu í Georgstof stúdíóið. Þeir félagar eru pungdjúpir í Vaktarheimum og þekkja alla frasa og öll atriði út og inn. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna en einnig þökkum við Coolbet, Oranjeboom, Álfinum og Skúbb.
Okkar allra bestu vinir eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Nú færum við inn í mikið breytingaskeið Dagvaktarinnar. Hvernig er sú upplifun að koma til fyrirheitna landsins, Komodo? Förum yfir Battle Royale - Animal edition og kynnumst föðurást. Njótið vel kæru vinir.
Okkar ástsælustu eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Í þessum þætti er mikið sem þarf að kryfja. Hlustendur fá að kynnast Komodo drekum loksins og við ræðum sveitaböll. Sólinn Sandó upp með hendur allir saman. Gleymum auðvitað ekki að ræða Æsufellið og skoðum betur skattstjórann. Góðar stundir.