Sagt frá áhugaverðum rannsóknum og Verkjaendurferlun eða PRT (Pain Reprocessing Therapy) kynnt til sögunnar.
Miðlægir verkir eru læknanlegir. Hér segi ég frá aðferðum sem ég og fjöldi annarra höfum nýtt til að ná bata. Þarna er reyndar ekki komið inn á þær fljótvirku aðferðir sem tilheyra PRT sérstaklega svo sem Somatic Tracking enda var ég ekki orðin viðurkenndur PRT meðferðaraðili þegar þessi þáttur kom út. Takk fyrir að hlusta!
Greining á verkjum - eru verkirnir þínir vegna vefjaskemmda eða eru þetta miðlægir verkir?
Krónískir verkjasjúkdómar hrjá allt að 20% mannkyns í dag. Hér skoðum við verkjasjúkdóma með öðrum gleraugum en við erum vön og veltum upp orsökum verkja og byrjum að skoða lausnirnar því þó þú sért með verki í dag þýðir það ekki að þú þurfir að hafa verki á morgun. Í Ástralíu eru vísindamenn að kalla þessa nýju nálgun á verkjasjúkdóma verkjabyltingu (e. pain revolution) og miðað við þann fjölda sem er að þjást af verkjum í dag þá er kominn tími á byltingu.
Ýmislegt um verki en fræðsla um verki og verkjasjúkdóma getur verið mjög gagnleg fyrir þá sem þjást af verkjum.