Discover
Ymur
Ymur
Author: RÚV
Subscribed: 13Played: 62Subscribe
Share
© RÚV
Description
Óhefðbundnir útvarpsþættir þar sem fjallað var um tónlist út frá sambandi hljóðs og skynjunar. Kafað er ofan í djúpstætt samband tónlistar við önnur svið menningar og hvernig það samspil hefur mótað líf okkar og list í þúsundir ára.
Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.
Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.
10 Episodes
Reverse
Í þessum fyrsta þætti af sex er talað um mjög stutt lög, mjög löng lög og hvernig við heyrum. Viðmælandi er Kristbjörg Pálsdóttir heyrnarfræðingur.
Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson.
þessum öðrum þætti af sex er talað um yfir tóna. Viðmælandi er Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari.
Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson
Samsetning: Guðni Tómasson
Ymur er útvarpsþáttur sem fjallar um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima.
Í þessum þriðja þætti af sex er talað um falska og velstillta tónlist. Viðmælendur er Ragnar Pétur Jóhannsson söngvari og Þormóður Eiríksson upptökustjóri.
[Lokalag: Florence Foster Jenkins syngur aríu næturdrottningarinnar úr Töfraflautu Mozarts.]
Fjallað um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima.
Í þessum fjórða þætti er fjallað um rythma.
Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson.
Samsetning og lestur með umsjónarmanni: Guðni Tómasson
Fjallað um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima.
Í þessum fimmta og næst síðasta þætti er fjallað um hávaða, óhljóð og læti.
Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson.
Viðmælandi í þessum þætti er Kjartan Hólm.
Samsetning: Guðni Tómasson
Ymur 6. og síðasti þáttur (af sex): Merking tónlistar
Fjallað um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima.
Í þessum sjötta og síðasta þætti er fjallað um merkingu tónlistar.
Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson.
Um samsetningu sá Guðni Tómasson sem einnig var lesari í þættinum.
Í fyrsta þætti annarar seríu er kafað ofan í samband tónlistar og tungumáls en þessi tvö menningarfyrirbæri má finna í öllum samfélögum manna. Við heyrum frá niðurstöðum rannsókna á sambandi talrythma og tónlistarrythma og heyrum hvernig laglínur tónfalls hafa áhrif á tungumál.
Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.
Í þættinum verður fjallað um samband tónlistar og arkitektúrs. Við heyrum hvernig hönnun á kirkjum hefur mótað tónlistarhefð Evrópu og hlutverk siðbótarinnar í klassískri tónlist. Einnig verður rýnt í notkun enduróms í upptökum.
Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.
Tónlist og myndlist eiga sér marga snertifleti þrátt fyrir að vera gjörólík listform. Litið verður á nokkur tilvik þar sem sögur þessara forma hafa skarast ásamt því að kafað verður ofan í eðli lita og hljóðs. Í þættinum er rætt við Lilju Maríu Ásmundsdóttur um hljóðskúlpturinn hennar Huldu.
Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.
Fjallað verður um noktun tónlistar til að segja sögur og ýta undir dramatíska framvindu. Allt frá leikhúsi Forn-Grikkja til kvikmyndatónlistar dagsins í dag hefur verið deilt um aðferðafræði og réttmæti tónlistar til noktunar í dramatískum tilgangi.
Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson



