Ymur

Óhefðbundnir útvarpsþættir þar sem fjallað var um tónlist út frá sambandi hljóðs og skynjunar. Kafað er ofan í djúpstætt samband tónlistar við önnur svið menningar og hvernig það samspil hefur mótað líf okkar og list í þúsundir ára. Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.

1. þáttur: Stutt og langt

Í þessum fyrsta þætti af sex er talað um mjög stutt lög, mjög löng lög og hvernig við heyrum. Viðmælandi er Kristbjörg Pálsdóttir heyrnarfræðingur. Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson.

11-09
39:27

2. þáttur: Yfirtónar.

þessum öðrum þætti af sex er talað um yfir tóna. Viðmælandi er Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari.

11-24
40:00

3. þáttur: falskt?

Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson Samsetning: Guðni Tómasson Ymur er útvarpsþáttur sem fjallar um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima. Í þessum þriðja þætti af sex er talað um falska og velstillta tónlist. Viðmælendur er Ragnar Pétur Jóhannsson söngvari og Þormóður Eiríksson upptökustjóri. [Lokalag: Florence Foster Jenkins syngur aríu næturdrottningarinnar úr Töfraflautu Mozarts.]

12-01
40:00

4. þáttur: Rythmi.

Fjallað um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima. Í þessum fjórða þætti er fjallað um rythma. Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson. Samsetning og lestur með umsjónarmanni: Guðni Tómasson

12-08
40:00

5. þáttur: Hávaði, óhljóð og læti.

Fjallað um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima. Í þessum fimmta og næst síðasta þætti er fjallað um hávaða, óhljóð og læti. Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson. Viðmælandi í þessum þætti er Kjartan Hólm. Samsetning: Guðni Tómasson

12-15
40:00

6. þáttur: Merking tónlistar

Ymur 6. og síðasti þáttur (af sex): Merking tónlistar Fjallað um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima. Í þessum sjötta og síðasta þætti er fjallað um merkingu tónlistar. Umsjón: Friðrik Margrétar- og Guðmundsson. Um samsetningu sá Guðni Tómasson sem einnig var lesari í þættinum.

12-22
40:00

Ymur 2, þáttur 1: Tónlist og tungumál

Í fyrsta þætti annarar seríu er kafað ofan í samband tónlistar og tungumáls en þessi tvö menningarfyrirbæri má finna í öllum samfélögum manna. Við heyrum frá niðurstöðum rannsókna á sambandi talrythma og tónlistarrythma og heyrum hvernig laglínur tónfalls hafa áhrif á tungumál. Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.

12-07
40:00

Ymur 2, þáttur 2: Tónlist í rými

Í þættinum verður fjallað um samband tónlistar og arkitektúrs. Við heyrum hvernig hönnun á kirkjum hefur mótað tónlistarhefð Evrópu og hlutverk siðbótarinnar í klassískri tónlist. Einnig verður rýnt í notkun enduróms í upptökum. Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.

12-14
40:00

Ymur 2, þáttur 3: Tónlist og myndlist

Tónlist og myndlist eiga sér marga snertifleti þrátt fyrir að vera gjörólík listform. Litið verður á nokkur tilvik þar sem sögur þessara forma hafa skarast ásamt því að kafað verður ofan í eðli lita og hljóðs. Í þættinum er rætt við Lilju Maríu Ásmundsdóttur um hljóðskúlpturinn hennar Huldu. Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson.

12-21
40:00

Ymur 2, þáttur 4: Tónlistardrama

Fjallað verður um noktun tónlistar til að segja sögur og ýta undir dramatíska framvindu. Allt frá leikhúsi Forn-Grikkja til kvikmyndatónlistar dagsins í dag hefur verið deilt um aðferðafræði og réttmæti tónlistar til noktunar í dramatískum tilgangi. Umsjón: Friðrik Margrétar-Guðmundsson

12-28
40:00

Recommend Channels