DiscoverFotbolti.net
Fotbolti.net
Claim Ownership

Fotbolti.net

Author: Fotbolti.net

Subscribed: 4,017Played: 392,824
Share

Description

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
2949 Episodes
Reverse
Fyrrverandi fjölmiðlamaðurinn Ingólfur Hannesson ræddi við Kára Snorrason og fór yfir feril og kynni sín af Guðjóni Þórðarsyni sem lést á dögunum. Ingólfur starfar jafnframt hjá ÍTF og var farið lauslega yfir stöðu Bestu deildarinnar undir lok þáttar.
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 11. umferð. Einar tæknimaður frá Livey kynnti nýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
Landsliðsútgáfa af Innkastinu. Ísland er komið aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar og goðsögnin Aron Einar Gunnarsson kvaddi í frostinu á Laugardalsvelli. U21 landsliðið tapaði á grætilegan hátt í Grikklandi og EM draumurinn er úti. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Thule jólabjór (léttöl) og Eimskip bjóða upp á þáttinn.
Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri þennan laugardaginn og fara yfir allt það helsta. Guðjón Þórðarson er fallinn frá. Hans er minnst í þættinum. Hringt er til Búlgaríu þar sem Ísland vann 5-0 stórsigur í gær og leikurinn verður gerður upp. Elvar Geir Magnússon og Arnar Gunnlaugsson á línunni. Farið er yfir fréttir vikunnar, bæði hér heima og úti. Mauricio Pochettino er að taka við Manchester United og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson ræðir um þá ráðningu.
Sérstakur aukaþáttur frá Plovdiv í Búlgaríu þar sem Ísland mun mæta heimamönnum. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Páll ræddu um komandi landsleik og aðrar fréttir úr boltanum. Þá er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við Andra Lucas Guðjohnsen. Thule léttöl og Eimskip bjóða þér upp á þáttinn.
loading
Comments