DiscoverÍ ljósi sögunnar
Claim Ownership
287 Episodes
Reverse
Fjallað um sögu Sádi-Arabíu, hvernig þetta ríki í eyðimörk Arabíuskagans varð og til og hvernig það komst til áhrifa á alþjóðavettvangi.
Aldarlöng saga eiturlyfjasmyglara í Mexíkó og rætur þeirrar vargaldar sem þar geisar á milli glæpagengja.
Fjallað um sögu írönsku kjarnorkuáætlunarinnar. Upphaf hennar má rekja allt til upphafs sjötta áratugarins, en fyrstu skrefin á kjarnorkubrautinni tóku Íranar með dyggri aðstoð og stuðningi Bandaríkjanna.
Fimm ár eru um þessar mundir síðan Hosni Mubarak Egyptalandsforseti hrökklaðist frá völdum eftir þriggja vikna fjöldamótmæli á götum egypskra borga. Í þættinum er rifjuð upp saga egypsku byltingarinnar og frásagnir Íslendinga sem voru í Kaíró þessa afdrifaríku daga í janúar og febrúar 2011.
Í þættinum er fjallað um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948, og ein óvæntustu kosningaúrslit bandarískrar stjórnmálasögu, þegar forsetinn Harry Truman kom öllum að óvörum og sigraði andstæðing sinn, Repúblikanann Thomas Dewey.
Í þættinum er fjallað um æsku og uppvöxt Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, feril hans í sovésku leyniþjónustunni KGB, afdrifarík augnablik í Dresden í Austur-Þýskalandi, og hvernig svo ólíklega vildi til að hann komst að lokum til æðstu metorða í Rússlandi.
Í þættinum er fjallað um morðið á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, og árangurslitla leit sænsku lögreglunanr að banamani hans, en þrjátíu ár eru um þessar mundir frá því að Palme var skotinn til bana á götu í miðborg Stokkhólms.
Síðari þáttur um morðið á sænska forsætisráðherranum Olof Palme, en um þessar mundir eru þrjátíu ár liðin síðan hann var skotinn til bana í miðborg Stokkhólms. Í þessum þætti er fjallað nánar um árangurslitla leit sænsku lögreglunnar að banamanni forsætisráðherrans og farið yfir ýmsar kenningar um það hver gæti hafa staðið að baki morðinu. Voru það kúrdískir hryðjuverkamenn, suðurafríska leyniþjónustan eða jafnvel lögreglan sjálf?
Í þættinum er fjallað um ættir bandaríska forsetaframbjóðandans og auðjöfursins Donalds Trump, og hvernig afi hans og faðir auðguðust á sínum tíma. Afinn, þýskur innflytjandi, rak meðal annars hótel og vændishús fyrir gullgrafara í gullæðinu í Klondike, og sonur hans, faðir Donalds Trump, byggði svo upp mikið fasteignaveldi í New York með stuðningi úr opinberum sjóðum, en var umdeildur bæði fyrir kynþáttamismunun og fjármálamisferli.
Fimm ár liðin frá náttúruhamförunum miklu og kjarnorkuslysinu í Japan 11. mars 2011, þegar sterkur jarðskjálfti, níu að stærð, reið yfir Japan, flóðbylgja skall á norðausturströnd landsins og alvarlegt bræðsluslys varð í kjarnorkuveri í Fukushima.
Í þættinum verður fjallað um æsku, uppvöxt og upphaf viðskiptaferils forsetaframbjóðendans og fasteignajöfursins Donalds Trumps.
Í þættinum er fjallað um héraðið Nagorno-Karabakh í Kákasus sem Armenía og Aserbaídsjan hafa eldað grátt silfur vegna frá falli Sovétríkjanna. Allt að 30 þúsund manns féllu í sex ára stríði um Nagorno-Karabakh sem lauk með vopnahléi árið 1994. Friðarviðræður hafa ekki skilað árangri og síðast kom til átaka í héraðinu fyrir örfáum dögum.
Í þættinum er fjallað um sögu Líbíu í Norður-Afríku á tuttugustu öld.
Í þættinum er fjallað um ævi Dilmu Rousseff Brasilíuforseta, sem nú er sökuð um spillingu og embættisglöp. Hún var skæruliði á dögum herforingjastjórnar í Brasilíu, sat í fangelsi og sætti þar hryllilegum pyntingum - en varð síðar forseti eins fjölmennasta og stærsta ríkis á jörðinni og ein valdamesta kona heims.
Um slysið í Tsjernóbyl-kjarnorkuverinu í Úkraínu 26. apríl 1986, alvarlegasta kjarnorkuslys sögunnar.
Fjallað um ævi og feril Recep Tayyip Erdogans, forseta Tyrklands.
Fjallað um bandarísku stjórnmálakonuna Hillary Clinton, æsku hennar og námsár og upphaf sambandsins hennar við Bill Clinton.
Í þættinum er fjallað um nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944, en lag um þá hörmungaratburði sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á dögunum. Jósef Stalín sakaði Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið að allt að fjörutíu prósent krímtatörsku þjóðarinnar hafi týnt lífi á fyrstu árunum eftir flutninginn.
Í þættinum er fjallað um sögu nígerísku öfgasamtakanna Boko Haram. Vígamenn samtakanna eru taldir hafa að minnsta kosti tuttugu þúsund mannslíf á samviskunni og meira en tvær milljónir manna hafa lent á hrakhólum vegna árasa þeirra, sem beinast jafnt gegn nígerískum stjórnvöldum og óbreyttum borgurum.
Í þættinum er fjallað um morðin á nepölsku konungsfjölskyldunni árið 2001, þegar krónprins Nepals skaut föður sinn og móður og fleiri ættingja til bana.
Top Podcasts
The Best New Comedy Podcast Right Now – June 2024The Best News Podcast Right Now – June 2024The Best New Business Podcast Right Now – June 2024The Best New Sports Podcast Right Now – June 2024The Best New True Crime Podcast Right Now – June 2024The Best New Joe Rogan Experience Podcast Right Now – June 20The Best New Dan Bongino Show Podcast Right Now – June 20The Best New Mark Levin Podcast – June 2024
United States
Frábær syrpa. Heimsótti safnið á Bygdøy sem drengur og skildi ekkert. Nú fer ég aftur.
Frábær þáttur 🙌 Mig langar svo að vita hvað lagið í lokin heitir?
hvað heitir lagið í lok þáttar
stórbrotið. takk fyrir mig.
mjog margir þættir sem virka ekki
hæ hæ munu koma fleiri þættir? :)