DiscoverFávitar Podcast
Fávitar Podcast
Claim Ownership

Fávitar Podcast

Author: Fávitar Podcast

Subscribed: 6Played: 64
Share

Description

Fávitar er átak gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi stofnað af Sólborgu Guðbrandsdóttir. Fávitar Podcast er feminískt hlaðvarp sem ræðir mismunandi vinkla jafnréttis við áhugaverðar fyrirmyndir í íslensku samfélagi. Hægt er að fylgjast nánar með átakinu sjálfu á Instagram-síðunni Fávitar.
Sérstakar þakkir til Víkurfrétta og Hilmars Braga Bárðarsonar sem sá um upptöku þáttanna og listamannsins Ethorio sem græjaði logo-ið.
3 Episodes
Reverse
Druslugangan eru grasrótarsamtök sem einblína á baráttu gegn kynferðisofbeldi í öllum kimum samfélagsins. Síðan 2011 hefur gangan verið gengin ár hvert til að minna á að enn á kynferðisofbeldi sér stað í samfélaginu og því þarf að útrýma. Með Druslugöngunni er ábyrgð kynferðisafbrota færð frá þolendum yfir á gerendur. Markmið hennar er að sýna brotaþolum kynferðisofbeldis samstöðu og krefjast betra réttarkerfis og bætts samfélags. Gengið verður í níunda sinn frá Hallgrímskirkju kl. 14 þann 27. júlí næstkomandi. Viðmælendur þáttarins eru þær Stella Briem og Eva Sigurðardóttir, tvær af skipuleggjendum Druslugöngunnar. Fávitar er átak gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi stofnað af Sólborgu Guðbrandsdóttur. Fávitar Podcast er feminískt hlaðvarp sem ræðir mismunandi vinkla jafnréttis við áhugaverðar fyrirmyndir í íslensku samfélagi. Hægt er að fylgjast nánar með átakinu sjálfu á Instagram-síðunni Fávitar.
Stígamót eru grasrótarsamtök sem berjast gegn kynferðisofbeldi og veita aðstoð fyrir fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir er verkefnastýra Stígamóta og sinnir fjáröflun og fræðslu fyrir samtökin. Stígamót standa einnig á bakvið verkefnið Sjúkást sem snýr að ofbeldi í samböndum ungmenna en verkefnið er forvörn gegn ofbeldi með því að fræða ungt fólk um mörk og samþykki og í ár fengu um 4500 ungmenni fræðslu um þau málefni. Öll þjónusta Stígamóta er ókeypis fyrir brotaþola og er opin öllum þolendum kynferðisofbeldis eldri en 18 ára. Fávitar er átak gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi stofnað af Sólborgu Guðbrandsdóttur. Fávitar Podcast er feminískt hlaðverp sem ræðir mismunandi vinkla jafnréttis við áhugaverðar fyrirmyndir í íslensku samfélagi. Hægt er að fylgjast nánar með átakinu sjálfu á Instagram-síðunni Fávitar.
Sigga Dögg kynfræðingur hefur ferðast um landið og frætt Íslendinga um kynlíf síðastliðinn áratug. Samhliða því er hún rithöfundur og fræðir fólk á hinum ýmsu viðburðum. Í þættinum ræddum við meðal annars um kynlíf, líkamshár, samskipti og kynfræðslu. Fávitar er átak gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi stofnað af Sólborgu Guðbrandsdóttir. Fávitar Podcast er feminískt hlaðvarp sem ræðir mismunandi vinkla jafnréttis við áhugaverðar fyrirmyndir í íslensku samfélagi. Hægt er að fylgjast nánar með átakinu sjálfu á Instagram-síðunni Fávitar.
Comments