DiscoverFrjálsar hendur
Frjálsar hendur
Claim Ownership

Frjálsar hendur

Author: RÚV

Subscribed: 3,744Played: 216,788
Share

Description

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
283 Episodes
Reverse
Karvel Ögmundsson 2

Karvel Ögmundsson 2

2026-11-1501:03

Framhald af síðasta þætti. Hér segir einkum frá kynnum hins unga Karvels af hestum og lesnar bæði mögnuð frásögn af hrossasmölun sem hann tók þátt í á barnsaldri þegar vana átti fola í sveitinni og síðan frá því er hestarnir voru látnir synda fyrir nes eitt og brugðust afar misjafnlega við því.
Karvel Ögmundsson 1

Karvel Ögmundsson 1

2026-11-0850:00

Karvel Ögmundsson (1903-2005) var sjómaður, útgerðarmaður og allrahanda athafnamaður. Hann skrifaði æviminningar í þremur bindum og í þessum þætti segir frá bernskudögum hans, veikindum í æsku og síðan kindum á heimili foreldra hans og ýmsu fleiru.
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena birtist og skýrir út fyrir honum ástandið.
Framhald af síðasta þætti. Hér segir frá því þegar móðir Svetlönu er fallin frá og Stalín á að annast uppeldi Svetlönu og bróður hennar en kemur því æ meira yfir á sístækkandi hersveit starfsfólks og leyniþjónustumanna. Og ódámurinn Lavrentí Bería birtist á sjónarsviðinu.
Eftir fjögurra ára hlé gluggar umsjónarmaður aftur í æskuminningar Svetlönu, einkadóttur Stalíns, einræðisherra Sovétríkjanna. Hér segir einkum frá því þegar Svetlanda missti móður sína aðeins 6 ára gömul en móðir hennar virðist ekki hafa þolað kuldann og hráslagann í hjónabandi hennar og Stalíns.
loading
Comments