Discover
Hádegið
Hádegið
Author: RÚV
Subscribed: 166Played: 7,909Subscribe
Share
© RÚV
Description
Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.
385 Episodes
Reverse
Fréttaþátturinn Hádegið hóf göngu sína á Rás 1 í dag. Í fyrri hluta þessa þáttar er rætt við Pál Melsted prófessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands og deildarstjóra hjá Íslenskri Erfðagreingu, um hugtakið smistuðul. Að loknum hádegisfréttum er rætt um aukin mótmæli úti í heimi vegna sóttvarnaraðgerða. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði um hvers vegna Íslendingar virðast upp til hópa styðja aðgerðir ríkisstjórnarinnar í sóttvarnarmálum.
00:40 = Hádegið, fyrri hluti.
08:10 = Hádegisfréttir.
30:10 = Hádegið, síðari hluti.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta fjallar Katrín Ásmundsdóttir um Eron-hneykslið, en í dag eru 19 ár frá því fyrirtækið Enron, sem byggði á hugmyndafræði um viðskipti með orkugjafa, varð gjaldþrota. Rætt er við hann Þórð Víking Friðgeirsson, lektor við Háskólann í Reykjavík. Að loknum hádegisfréttum ræðir Guðmundur Björn við Kristínu Benediktsdóttur, dósent í lögfræði, um dómsstigið Landsrétt, sem hefur verið í fréttum að undanförnu. 00:40 = Hádegið, fyrri hluti. 07:20 = Hádegisfréttir. 29:50 = Hádegið, síðari hluti. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta fjallar Katrín Ásmundsdóttir um baráttukonuna Jane Fonda. Í síðari hluta þáttarins ræðir Guðmundur Björn við Helga Steinar Gunnlaugsson stjórnmálafræðing um nýlegar handtökur stjórnarandstæðinga í Hong Kong, og mótmælin sem þar hafa staðið yfir undanfarið ár.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta fjallar Guðmundur Björn um ungverska Evrópuþingmanninn József Szájer sem komst í hann krappan í síðustu viku þegar hann var staðinn að verki í kynsvallsveislu í Brussel. Szájer er þingmaður Fidzes flokksins í Unverjalandi sem hefur ötullega unnið gegn réttindum LGBTQ fólks þar í landi.
Í síðari hluta þáttarins fjallar Katrín um berkla á Íslandi, í ljósi frétta um að grunur reyndist um berklasmit hér á landi. Það vilji stundum gleymast að berklar eru ennþá til og við förum yfir sögu og þróun berkla hér á landi.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins fjalla Guðmundur Björn og Katrín um vendingar helgarinnar í kórónuveirufaraldrinum og ræða um næsta skref sóttvarnaryfirvalda.
Að loknum hádegisfréttum ræðir Guðmundur Björn við Einar Örn Jónsson íþróttafréttamann, um viðbrögð íþróttahreyfingarinnar við ströngum sóttvarnaraðgerðum hér á landi.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta fjallar Katrín Ásmundsdóttir um trúfélagið Zúista. Í síðari hluta er rætt um nýtt bóluefni Pfizer og BionTech. Bólusetningar hófust í Bretlandi í dag.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrra hluta Hádegisins ræðir Guðmundur Björn við þá Hannes Jónsson, formann KKÍ og Guðmund B. Ólafsson, formann HSÍ, um nýja reglugerð yfirvalda og hvernig hún breytir umhverfi afreksíþróttamanna. Þeir Hannes og Guðmundur eru sammála um að nauðsynlegt sé að iðkendur á unglingsaldri þurf að fá að æfa.
Að loknum hádegisfréttum höldum við áfram að fjalla um það að byrjað er að bólusetja forgnagshópa í nokkrum löndum. En hverjir tilheyra þessum forgangshópum, hver ákveður það og hvers vegna er það mismunandi milli ríkja? Við ræðum um forgangsröðun innan heilbrigðisþjónustunnar og siðferðileg álitamál tengd henni, við Jórunni Maríu Ólafsdóttur, hjúkrunarforstjóra.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta hádegisins skoðum við dularfullar málmsúlur - eða súlur sem virðast vera gerðar úr málmi, sem helstu fjölmiðlar hafa fjallað um af ákafa að undanförnu. Súlurnar hafa poppað upp án fyrirvara hér og þar um heiminn og þótt enginn kunni almennilegar skýringar á þessu hafa ýmsar kenningar verið á milli tannana á fólki - svo sem að hér séu geimverur að verki. Sumir myndu kannski telja það ólíklegustu útskýringuna, en þrátt fyrir það eru fylgjendur hennar margir - En hvað er það við okkur mennina, sem lætur okkur dragast að hinu dularfulla og óþekkta? Að loknum hádegisfréttum fjöllum við Brexit söguna endalausu, en fundur Ursulu von der Leyen og Boris Johnson í gærkvöldi bar lítinn árangur. Þrátt fyrir margar tilraunir og langa fundarsetu samningsnefnda undanfarið ár, og sér í lagi síðustu vikur, hefur ekki tekist að semja um framtíðarsamband Bretlands og Evrópusambandsins og líkurnar á að viðskipta- og fríverslunar náist ekki fyrir 31. desember aukast með hverjum deginum sem líður. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins í dag verður rætt um aftökur í Bandaríkjunum. Bandaríkjaforseti hefur brotið130 ára gamla hefð með að taka fanga af lífi eftir að búið er að kjósa nýjan forseta. Önnur aftaka er áætluð í dag, en þá hefur ríkisstjórn Donalds Trump tekið tíu fanga af lífi á þessu ári.
Að loknum hádegisfréttum við um manneskju ársins hjá bandaríska tímaritinu Time - bæði um þau Biden og Harris en einnig um unga vísindamanninn Gitanjali Rao - ungmenni ársins hjá Time sem unnið hefur ötullega að því að gera heiminn að betri stað með uppfinningum sínum.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins í dag verður rætt helstu fréttaefni helgarinnar, meðal annars aðra umræðu um fjárlög á Alþingi, partýstand í miðborginni og fleira. Þá fjöllum við um það að kjörmannaráð Bandaríkjaþings hittist í dag og ákveður í eitt skipti fyrir öll, hver verður næsti forseti Bandaríkjanna.
Að loknum hádegisfréttum er rætt við Einar Örn Jónsson um evrópumót kvenna í handbolta, en þar þykja þær norsku sigurstranglegastar. En hvers vegna er Ísland ekki með? Einar Örn svarar því og mörgu öðru.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalny, en sannað þykir að rússneska leyniþjónustan FSB hafi eitrað fyrir honum í ágúst síðastliðnum. Rætt er við Dagnýju Huldu Erlendsdóttur, fréttamann.
Í síðari hluta Hádegisins fjöllum við það hvernig peningar koma inn í góðgerðar- og hjálparsamtök. SÁÁ tilkynnti á dögunum að samtökin drægu sig úr þátttöku á rekstri spilakassa, en Rauði krossinn og Landsbjörg ekki. Rætt er við Henrý Alexander Henrýsson siðfræðing um hvort tilgangurinn helgi meðalið.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins í dag er fjallað um arabaíska vorið, en tíu ár eru frá því Mohamed Bouazizi kveikti í sér á götum borgarinnar Ben Arous á norðurströnd Túnis til að mótmæla óréttlæti. Í kjölfarið brutust út mikil mótmæli víða um Norður-Afríku og í Mið-Austurlöndum.
Að fréttum loknum fjöllum við um það hvort gervigreind geti verið fordómafull, eftir nýlegt hneyksli hjá Google. Katrín ræðir við Stephan Schiffel lektor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins í dag ræðir Katrín við Gunnar Theódór Eggertsson dýrasiðfræðing um það hvort fjarlægð okkar við dýr hafi áhrif á neysluvenjur okkar. Er betra geta horfst í augu við matinn sinn áður en hann endar á disknum eða viljum við frekar fjarlægðina við framleiðsluferlið?
Í síðari hluta fjöllum við um frumvarp landbúnaðarráðherra um breytingar á reglum um innflutning á búvörum, sem verður líklega samþykkt á Alþingi í dag, eða að minnsta kosti fyrir árslok. Með þessu hækkar verð á influttum landbúnaðarvörum að öllum líkindum á næsti ári. En markmiðið er að létta undir með innlendri landbúnaðarframleiðslu. Við spyrjum, eru slæmar fréttir fyrir neytendur í vændum, en góðar fyrir íslenskan landbúnað? Guðmundur Björn ræðir við Ólaf Stephensen, formann félags atvinnurekenda um málið.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um nýtt afbrigði kórónuveirunnar, sem hefur gert Bretum lífið leitt síðustu daga. Óttast er að þetta sérstaka afbrigði sé talsvert meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar. Auk Bretlands hefur það þegar greinst í Danmörku, Hollandi, Suður-Afríku og á Ítalíu og sérfræðingar óttast að það hafi þegar borist víðar.
Að loknum hádegisfréttum ræðir Guðmundur Björn við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamann, um næstu landsliðsþjálfara í fótbolta. Bæði A-landslið karla og kvenna eru án þjálfara.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins ræðir Katrín við Esther Hlíðar Jensen um aurskriður. Sérfræðingar hjá Veðurstofunni hafa, í kjölfar hörmulegra náttúruhamfara á Seyðisfirði, unnið hörðum höndum undanfarna daga, eðli málsins samkvæmt kannski. En hvað nákvæmlega eru aurskriður.
Að loknum hádegisfréttum kemur Bogi Ágústsson til okkar og við ætlum að ræða um stöðuna í Bretlandi. Það styttist í áramót og ekkert bólar á viðskipstasamningi Breta og ESB, og allt stefnir í samingslausa útgöngu. Þá greindist nýtt afbrigði af kórónuveirunni þar í landi nýverið sem þykir einkar smitandi, eins og við ræddum um í gær. Semsagt, það er allt í skrúfunni í Bretlandi.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins rekjum við tímalínuna í heitasta fréttamáli síðustu daga; frá því fregnir bárust af því á aðfangadag að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sótt veislu í Ásmundarsal þar sem sóttvarnarreglum var ekki framylgt að mati lögreglu. Málið hefur dregið dilk á eftir sér, og stjórnarandstæðingar hafa krafist afsagnar ráðherra á meðan ríkisstjórnin styður hann.
Að loknum hádegisfréttum fjöllum við um hitt stóra fréttamál síðustu viku, Brexit, og hvernig samningar náðust milli Evrópusambandsins og Breta um hvernig framtíðarviðskiptum milli Bretlands og Evrópusambandsins verður háttað.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Hvernig getum við sett okkur raunhæf áramótaheit og af hverju eigum við til að klúðra þeim fyrir janúarlok? Katrín ræðir við Erlu Björnsdóttur sálfræðing fyrir fréttir.
Að loknum hádegisfréttum er rætt við Evu Heiðu Önnudóttur dósent í stjórnmálafræði um stöðu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, en hann var gestkomandi í veislu á þorláksmessu þar sem sóttvarnarreglum var ekki framfylgt. Hvaða áhrif hefur þetta mál fylgi Vinstri-grænna og ríkisstjórnarsamstarfið?
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um nýja þungunarrofslöggjöf í Argentínu, sem var samþykkt í gær. Ákvörðun argentíska þingsins markar tímamót, og Argentína er nú komið í hóp fárra ríkja sem heimila þungarrof í Suður-Ameríku.
Í síðari hluta þáttarins er fjallað um bóluefnið Comirnaty, sem hefur verið samþykkt til notkunar hér á landi. Byrjað var að bólusetja í gær, en hvaða bóluefni er þetta? Hvað er vitað um það? Og vitum við eitthvað um aukaverkanir? Katrín ræðir við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar um það og fleira til.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Landsréttur sneri við sakfellingum í þriðjungi nauðgunarmála á nýliðnu ári. Rætt er við BrynhildiGunnarsdóttur Flóvenz, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, í fyrri hluta Hádegisins, um hvað getur hugsanlega útskýrt það mál.
Í síðari hluta þáttarins er farið yfir helstu vendingar á nýju ári hvað varðar Covid-19 heimsfaraldurinn en fjöldi ríkja boða hertar aðgerðir um þessar mundir. Bólusetningar eru þá hafnar víðs vegar um heim en enn langt er í land og tafir á afhendingu bóluefnis og framkvæmd bólusetninga gangrýndar.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Ekkert hefur spurst til kínverska viðskiptajöfursins og stofnanda Alibaba netfyrirtækisins, Jack Ma, í um tvo mánuði, eða síðan hann gagnrýndi kínversk stjórnvöld og hvatti til frjálsara markaðshagkerfis. Fjallað er um þetta dularfulla mál í fyrri hluta þáttarins.
Í seinni hlutanum er rætt við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, þingmann Viðreisnar og fyrrverandi saksóknara, um mildun dóma í kynferðisbrotamálum í Landsrétti. En Landsréttur sneri við sakfellingum í þriðjungi nauðgunarmála á nýliðnu ári, nánar tiltekið í sex af sautján nauðgunardómum, þegar málum sem varða brot gegn börnum er sleppt, líkt og við fjölluðum nánar um í Hádeginu í gær. En það er ekki allt og sumt. Í sjö tilvikum staðfesti Landsréttur sakfellingu héraðsdóms en mildaði refsinguna, oftast nær með vísun í drátt á málsmeðferð.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.



