39. Halloween þáttur - Draugagangur á heimavistinni
Description
Í tilefni hrekkjavöku þá gefum við út hræðilegann aukaþátt um hræðila ásókn sem átti sér stað í heimavistaskóla í bandaríkjunum árið 1985-1986.
Þetta er hræðilegasta draugasaga sem Hið yfirnáttúrulega hefur sagt og myndum við segja að þið þyrftuð virkilega að hugsa málið hvort þið þorið að hlusta yfir höfuð!
Á meðan á upptökum stóð var Selma klædd eins og Páfinn til að kalla extra vernd yfir okkur á meðan þessi hræðilega draugasaga var sögð..... En Dagný var bara í prumpublöðrubúning að hafa það huggulegt með sínum innri fúlanda.
Þessi saga er um ásókn sem grasserast í heimavistaskóla í New York fylki. Ungi íþróttamaðurinn hann Chris fær þann "heiður" að vera ásóttur af hræðilegu afli sem gerir lífið á heimavistinni nær óbærilegt.
Gleðilega hrekkjavöku og hafið það hræðilegt um helgina.... múhahahahaaaaaa......
Mentioned in this episode:
d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Komdu í áskrift





