Soffía Ámundadóttir - Umræða um ofbeldi ungmenna, hvað getum við gert?
Description
Við fengum hana Soffíu Ámundardóttir til okkar en hún hefur verið mikill frumkvöðull í að opna umræðuna um ofbeldi ungmenna. Við verðum að taka erfiðu umræðuna um ofbeldi ungs fólks. Hvað getum við sem samfélag gert?
Hvernig getum við hjálpað unga fólkinu okkar?
Hún skrifaði meistararitgerð og um ofbeldi nemenda og ber hún nafnið "Við sættum okkur ekki við ofbeldi" : reynsla stjórnenda í grunnskólum Reykjavíkur. Soffía er kennari meðal annars og hefur unnið í um 30 ár með börnum og unglingum. Þar af í tæplega áratug í Brúarskóla sem er sérhæfður skóli fyrir börn sem þurfa hjálp vegna vanlíðunar sem brýst út í hegðunarvanda. Í dag vinnur hún á Stuðlum og Menntavísindasviði ásamt því að bjóða fagfólki upp á námskeið tengd ofbeldi nemenda. Hún talar um hver rótin getur verið, hvaða verkferlar þurfa að vera og að það að tala um ofbeldi megi aldrei vera tabú.