DiscoverGóðar sögur
Góðar sögur
Claim Ownership

Góðar sögur

Author: Heklan og Markaðsstofa Reykjaness

Subscribed: 69Played: 799
Share

Description

Góðar, fyndnar, jafnvel sorglegar en umfram allt einlægar sögur af góðu fólki á Reykjanesi. Umsjón er í höndum Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Suðurnesja og unnið af starfsmönnum Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness. Alla þætti má nálgast á reykjanes.is og facebook.com/godarsogur
27 Episodes
Reverse
Hún flutti til Suðurnesja fyrir fimm árum síðan og tók þar við stöðu skólastjóra Ssand, hún brennur fyrir velferðarmálum og er alveg einstaklega jákvæð. Við ræddum við Hólmfríði um lífið á Suðurnesjum, sakamálasögur, vegahlaup og að sjálfsögðu um pólitíkina.
Birgir Þórarinsson

Birgir Þórarinsson

2021-09-1501:50:18

Hann þótti villingur og ekki líklegur til að verða guðfræðingur og virðulegur þingmaður. Það má segja að hann sé 19 aldar maður í hjarta. Hann er strandamaður, óðalsbóndi á Knarranesi á Vatnsleysuströnd þar sem eitt sinn varð til ríkisstjórn. Þar hefur hann byggt sé kirkju. Við ræddum við Birgi Þórarinsson um Keflavík, trúna og að sjálfsögðu pólitíkina.
Vilhjálmur Árnason

Vilhjálmur Árnason

2021-09-1001:44:47

Hann var flutningsmaður áfengisfrumvarpsins en sjálfur hefur hann aldrei byrjað að drekka. Hann er sveitastrákur sem endaði á Alþingi með viðkomu í lögreglunni. Í búsáhaldabyltingunni varð hann bókstaflega fyrir fyrir sprengju mótmælenda og sá kima þjóðfélagsins sem hann óraði ekki fyrir að sjá nokkur tíma. Vilhjálmur Árnason segir okkur m.a. hvernig lögreglustarfið nýtist honum nánast daglega í stafi sínu á Alþingi.
Oddný Harðardóttir

Oddný Harðardóttir

2021-09-0801:40:58

Hún verður alltaf samofin Garðinum enda býr hún þar enn á æskuheimili sínu. Þar var lífið oft erfitt í æsku Oddnýjar. Foreldrar hennar skildu þegar hún var táningur og heimilislífið var litað af drykkju föður hennar. Hún missti móður sína sem ung kona og þyrfti að hafa talsvert fyrir því að mennta sig.Það er óhætt að segja að Oddný Harðardóttir sé brautryðjandi. Fyrst kvenna varð hún bæjarstjóri í Garðinum, hún er eina konan sem hefur verið skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún varð svo fyrst kvenna til þess að gegna hlutverki fjármálaráðherra. Það tímabil var Oddnýju einstaklega lærdómsríkt.
Guðbrandur Einarsson

Guðbrandur Einarsson

2021-09-0601:32:23

Guðbrandur Einarsson verslaði fermingarfötin timbraður. Snemma náðu áfengi og kannabisefni sterkum tökum á lífi þessa unga manns sem dreymdi um að verða bóndi. Hann setti tappann í og sneri sér að tónlist, verkalýðsmálum og stjórnmálum. Hann er tvöfaldur tvíburapabbi með sterkar skoðanir og ríka réttlætiskennd.Guðbrandur er hér í einlægu viðtali þar sem hann talar um sigurinn gegn Bakkusi, barnalánið og baráttuna sem stundum fylgir stjórnmálum.
Hann þótti uppátækjasamur sem barn og var kallaður Suðurnesjaskelfirinn. Áhugi hans liggur víða og því hefur hann prófað margt og má þar nefna störf við fjölmiðla, uppistand og nám í lýðheilsufræðum en hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Keilis. Hann hefur einlægan áhuga á fólki og því lá beinast við að fara í pólitík, en þar vakti hann m.a. Athygli fyrir vöfflubakstur. Við settumst niður með Jóhanni Friðriki og ræddum við hann um lífið og tilveruna, covid og eldgos - og að sjálfsögðu um pólitík.
Erla Reynisdóttir

Erla Reynisdóttir

2021-06-2143:48

Erla Sóley Reynisdóttir er ekki há í loftinu en það háði henni aldrei á körfuboltavellinum enda keppnisskapið mikið hjá þessum "stáldverg" eins og sumir kölluðu hana þegar þeir áttuðu sig á því að undir björtu fasinu bjó einbeittur sigurvilji. Erla var um árabil ein af sterkustu körfuboltakonum ársins og við ræddum við hana um körfuboltann en líka óvænt barnalánið þegar það eina sem hélt þeim hjónum gangandi var vonin.
Eðvarð Þór Eðvarðsson

Eðvarð Þór Eðvarðsson

2021-05-2202:02:50

Þegar flest okkar eru að vakna þá er Eðvarð Þór að klára útihlaup, nýbúinn með sundæfingu eða jafnvel að klára 18. holu í Leirunni. Slíkur er metnaðurinn og drifkrafturinn. Hann hækkaði ránna í sundíþróttinni á Íslandi við aðstæður sem ekki teldust sæmandi í dag. Átta ára byrjar hann að svamla í 12 metra sundlaug í Njarðvík en áratug síðar var hann meðal bestu sundmanna heims og á leið á Ólympíuleika. Hann hætti svo að synda 22 ára og þyngdist um 30 kíló á nokkrum mánuðum. Auk þess komst hann að því að hann var lélegur sundþjálfari. Það átti hins vegar allt eftir að breytast.Einlæg frásögn frá þjálfaranum, íþróttamanni ársins 1986 og kennaranum Eðvarði Þór Eðvarðssyni.
Páll Ketilsson

Páll Ketilsson

2021-04-1202:07:39

Hann stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki aðeins 20 ára gamall og það er enn sprelllifandi - og það á sömu kennitölu. Það má segja að Víkurfréttir séu sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Flestir þekkja fjölmiðlamanninn en færri þekkja heimilisfaðirinn, golfarann, frumkvöðulinn og skyrtusölumanninn smekkvísa. Páll segir okkur frá þróun fjölmiðla á 40 ára starfsferli og einstöku sjónarhorni sem hann hefur haft á samfélagið suður með sjó, við heyrum hans sögu.
Hún hefur komið víða við enda óhrædd við áskoranir hvort það er í námi eða starfi og hún var einu sinni pönkari.Lífið hefur verið allskonar, sorgin knúði dyra þegar eiginmaður hennar lést eftir stutta baráttu við krabbamein og henni var aðeins gefið eitt barn en hún á einstakt samband við dóttur sína sem nú er sjálf orðin mamma.Helga Sigrún Harðardóttir segir okkur frá því hvernig var að verða móðir 16 ára gömul, ævintýrinu í Fjörheimum, útvarpi Bros, einstaklega áhugasömum handavinnukenna  og þingstörfum í miðri búsáhaldabyltingu. 
Harpa Jóhannsdóttir

Harpa Jóhannsdóttir

2021-03-2201:16:55

Hún fór í tónleikaferðalag um heimsálfur með tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur sem var ævintýri fyrir 19 ára básúnuleikara. Harpa segir okkur frá tónlistinni, hjónabandinu og hvernig það er að uppgötva að barnið þitt er ekki eins og önnur börn.
Þráinn Kolbeinsson

Þráinn Kolbeinsson

2021-03-1649:26

Þráinn Kolbeinsson er lærður sálfræðingur en ákvað að venda sínu kvæði í kross og eltast við drauminn - að gerast ljósmyndari. Hann fluttist til Grindavíkur og kynntist þar fegurð Reykjanesskagans sem er einstakur á heimsvísu. Hann segir okkur frá glímunni í Mjölni, jarðhræringum á Reykjanesi, föðurhlutverkinu og fegurðinni á Reykjanesi.
Hún er Gervahönnuður sem safnar Edduverðlaunum. Hún var uppreisnargjarn unglingur sem var send í sveitaskóla vestur á Reykjanes. Þar kynntist hún öllum villingunum úr Reykjavík og gerðist pönkari á Hlemmi. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og lætur allt flakka. Hún segir frá því hvernig sundlaugin í Garðinum bjargaði lífi hennar. Hvernig hún kvaddi flíspeysuna og fann köllun sína í förðun þar sem hún skapar ótrúlegar persónur í mörgum af áhrifamestu kvikmyndum Íslandssögunnar. Kvíði og kulnun, sköpun og gleði og allt þar á milli. 
Friðrik Árnason

Friðrik Árnason

2021-01-2901:08:05

Þrátt fyrir að vera rétt skriðinn yfir fertugt þá hefur Friðrik Árnason verið starfandi í ferðaþjónustu í 30 ár.  Um fermingu fór hann hjólandi upp í Leifsstöð þar sem hann fiskaði ferðalanga í svefnpokagistingu í Njarðvíkurskóla. Hann var orðinn umboðsmaður bílaleigunnar Geysis og rekstraraðili að tjaldsvæði áður en hann fékk bílpróf.  Tvítugur eyddi hann sumarfríinu einn á bílaleigubíl þar sem hann heimsótti ferðaskrifstofur í Evrópu og landaði samningum. Njarðvíkingurinn sem nú rekur hótel austur á Breiðdalsvík elska að skapa enda er hann uppfullur af frumlegum hugmyndum og hugsjónamaður fram í fingurgóma. Áhugavert spjall við frumkvöðul í ferðaþjónustu á Suðurnesjum.
Guðbjörg Glóð Logadóttir á stóran þátt í að breyta viðhorfi okkar Íslendinga gagnvart fiski. Á hennar æskuheimili komst lítið annað að þar sem sem frumkvöðullinn faðir hennar seldi fisk til Ameríku við matarborðið. Hún gekk með hugmyndina um Fylgifiska í maganum í áratug áður en hún lét til skarar skríða. Þessi andlegi, gallharði fisksali segir hér frá æskunni í Keflavík og viðskiptunum auk þess sem hún deilir sögu föður síns sem fékk heilavírus tæplega fimmtugur og varð aldrei samur eftir það.
Gunnar Örlygsson

Gunnar Örlygsson

2020-12-2701:53:14

Sjómennska og veiði er Gunnari Örlygssyni í blóð borin. Hann fór um fermingu á sjóinn en í dag flytur hann út ferskan fisk víða um veröld og veltir milljörðum. Njarðvíkingurinn stoppaði stutt við á Alþingi en þar hóf hann störf með dóm á bakinu og skipti svo um flokk. Gunnar gerir upp þann tíma auk þess að segja frá uppeldinu á frægasta körfuboltaheimili landsins, fiskikaupmennsku, laxveiði og rimmunum við Kára Stefánsson.
Veigar Margeirsson

Veigar Margeirsson

2020-12-2401:36:54

Hægláta tónskáldið sem haldið hefur sig í Hollywood í næstum tvo áratugi. Hann hefur samið tónlist fyrir stiklur mynda eins og Lord of the rings, Joker og Batman begins. Keflvíkingurinn Veigar Margeirsson er einlægur og hógvær þrátt fyrir magnaðan árangur í sínu fagi. Hér segir hann frá einstökum ferli og áföllum sem mótað hafa hans sýn á lífið.
Bergur Þór Ingólfsson

Bergur Þór Ingólfsson

2020-08-3101:11:42

Bergur Ingólfsson er hinn grindvíski Billy Elliott. Fyrsti atvinnuleikarinn úr bæjarfélaginu og hefur átt farsælan feril sem leikari og leikstjóri í yfir aldarfjórðung. Bergur ásamt fjölskyldu sinni átti stóran þátt í að fella ríkisstjórn og hrinda af stað byltingu undir formerkjum höfum hátt. Bergur er skapandi og skemmtilegur og án efa einn merkasti listamaður Suðurnesja.
Margrét Sturlaugsdóttir

Margrét Sturlaugsdóttir

2020-04-1601:08:20

Líf Margrétar Sturlaugsdóttur hefur meira og minna snúist um körfubolta. Þar var hún afar sigursæl sem hluti af fyrstu gullkynslóð íþróttarinnar í Keflavík og sem farsæll þjálfari á öllum stigum síðar meir. En rétt eins og í körfunni þá er leikurinn oft erfiður og hreinlega ósanngjarn. Hér segir hún á einlægan hátt frá baráttu sinni við krabbamein og hvernig það er að vera aðstandandi alkóhólista.
Sævar Helgi hefur djúpar tónlistarrætur úr Keflavík en foreldrar hans eru báðir tónlistarmenntaðir, amma hans starfaði sem píanókennari og undirleikari um áratugaskeið, föðurbróðir er tónskáld, föðursystir tónlistarkennari í London og svona mætti áfram telja. Það kom því engum á óvart að hann færi út í tónlist, þótt upphaflega hafi hann alls ekki ætlað að fara í þá átt. Sævar Helgi Jóhannsson vinnur undir listamannsheitinu Shell og er nú þegar farinn að geta sér gott orð í tónlistarheiminum, en þó hógværðin uppmáluð.Góðar Sögur er stutt af Sóknaráætlun Suðurnesja og í umsjón Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness.
loading
Comments 
Download from Google Play
Download from App Store