DiscoverLjósmyndaraspjallið
Ljósmyndaraspjallið
Claim Ownership

Ljósmyndaraspjallið

Author: Ólafur Jónsson

Subscribed: 2Played: 10
Share

Description

Áhugaljósmyndarar spjalla um ljósmyndum við hvorn annan og við aðra ljósmyndara, atvinnu og áhugafólk.
19 Episodes
Reverse
Jæja það gerðist, Óli Jóns og Gunnar Freyr gáfu sér loks tíma til að setjast niður og taka upp nýjan þátt af Ljósmyndaraspjallinu. Við leituðum ekki mjög langt af viðmælanda í þetta skiptið, Óli tók viðtal við Gunnar.Gunnar ákvað að demba sér í djúpu laugina og gerast atvinnuljósmyndari. Hann er kominn með ljómandi fínt stúdíó í Grafarvoginum og rekur sitt fyrirtæki undir nafninu Thule Photo.Í þessum þætti er farið aðeins yfir ferlið að fara frá áhugamanni í atvinnumann, hvað hefði mátt gera ...
Laufey Ósk #18

Laufey Ósk #18

2021-10-0552:06

Laufey Ósk Magnúsdóttir er ljósmyndari og eigandi Stúdíó Stund sem er ljósmyndastofa á Selfossi. Laufey hefur starfað sem ljósmyndari frá 2011. "Við leggjum áherslu á að taka fjölskyldumyndir í öllum sínum fjölbreytileika og þá bæði við einhver tilefni eins og fermingar, stúdent og brúðkaup en líka án tilefnis.
Rán Bjargar #17

Rán Bjargar #17

2021-09-1546:26

Elín Björg kom í spjall til Gunnars og Óla í síðast liðnum mánuði. Elín Björg segir okkur meðal annars frá Boudoir ljósmyndun. Á elinbjorg.om segir um Elínu;"I am a photographer based in Reykavik, Iceland. I specialize in event photography and boudoir. My goal with photography is empowering women by showing them how beautiful they are. I focus on photographing non-models.I studied at the technological school in Reykjavík, born in Iceland, raised in Sweden and returned to Iceland for an Icelan...
Í þessu þætti spjalla Óli og Gunni við Ástu Kristjáns ljósmyndara.Hún hefur margra ára reynslu bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Ásta stundaði nám við Parsons í New York um tíma og lauk námskeiði hjá MASTERED í London undir leiðsögn Nick Knight.Ljósmyndir eftir Ástu hafa birst víða, bæði í tímaritum eins og Vogue Italia, Vogue India og Surface Magazine en líka sem auglýsingar fyrir fyrirtæki eins og LinkedIN, WOW Air, Dove og Amnesty. Hægt er að skoða þau verkefni á vefsíðu hennar www.a...
Sigurður Ólafur Sigurðsson er ljósmyndari með bakgrunn í leit og björgun og menntun björgunarfólks. Hann útskrifaðist með hæstu einkun úr ljósmyndun frá Tækniskólanum vorið 2012 og hefur starfað við fagið síðan.Hann myndar mikið fyrir aðila í neyðargeiranum, ásamt fjölbreyttri flóru fyrirtækja og stofnana. Með ljósmyndun fyrir neyðargeirann sameinar hann tvö af sínum helstu hjartans málum, björgunarstörfum og ljósmyndun og reynslan úr þeirri vinnu nýtist vel í verkefnum fyrir aðra aðila...
Ellefti þáttur Ljósmyndaraspallsins lítur dagsins ljós, hressilegt og gott spjall við Pétur Þór Ragnarsson ljósmyndara.
Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir hefur síðustu ár fangað einstök augnablik af íslenska hestinum í sínu náttúrulega umhverfi. Myndir hennar hafa meðal annars birst á veggjum lúxushótela og fatnaði og vörum frá þekktum tískuvörumerkjum eins og H&M og Urban Outfitters.Hesturinn er einstaklega falleg og kraftmikil skepna og hefur heillað listamenn frá örófi alda. Hann er viðfang meðal annars í fornum hellaristum, teikningum frá miðöldum og óteljandi ljósmyndum, eftir að sú tækni kom til. Gígj...
Eiríkur Ingi er tveggja barna faðir og ljósmyndari.Á eirikuringi.is segir um hann"Eins og sennilega allir í mínu fagi þá hef ég alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndun frá því ég man eftir mér. Ég byrjaði þó ekki að mynda af neinni alvöru fyrr en ég eignaðist son minn. Þá sá ég að þetta var eitthvað sem ég myndi vilja gera miklu meira af.Eftir átta ár í þessu starfi tel ég mig vera kominn góða reynslu og þekkingu af flestu sem við kemur ljósmyndun.Fjöldi ánægðra viðskiptavina tala sínu máli"
Heida HB er íslenskur ljósmyndari, staðsett á höfuðborgarsvæðinu, en mjög færanleg :-) Hún lærði ljósmyndun í Tækniskólanum og útskrifaðist þaðan 2013. Hún tekur að sér alls kyns verkefni, en mest þó af brúðkaupum, fermingum, barnamyndatökum og öðrum portrait tökum.
Haraldur Guðjónsson Thors blaðaljósmyndari og kennar í ljósmyndum hjá Tækniskólanum
Sævar Helga Bragason til að spjalla við okkur um stjörnumyndatöku. Þetta var mjög fræðandi og kveikti vel upp í nördinum og græjufíklinum í manni. Til að stikla á stóru, fræddi hann okkur um hvaða búnað maður þarf fyrir mismunandi myndatöku, hvaða þekkingu maður þarf að tileinka sér til að ná árangri í þessu og kom með góð ráð um hvernig maður kemst af stað í að mynda himininn. Auk þess fengum við vænan skammt af eðlis- og stjörnufræðikennslu á mettíma.
Styrmir Kári og Heiðdísi sem sérhæfa sig í brúðkaupum. Þau eru ólík flestum að því leyti að þau vinna eingöngu "on location" , nota bara náttúrulegt ljós, með sinn sérstaka stíl og eru hjón sjálf. Mjög áhugavert spjall. Kíkið á þau á https://www.styrmir-heiddis.com
Birta Rán Björgvinsdóttir í spjalli með Óla Jóns og Gunnari Freyhttps://www.birtaran.com/https://www.instagram.com/birtarnbhttps://www.youtube.com/user/birtarnb
Í þessum þætti ræða Gunni og Óli ljósmyndum í Covid þar sem Gunni var nýbúinn í sóttkví
Í þessum þætti kíkti Marínó Flóvent í spjall hjá Óla og Gunna. Marínó er atvinnuljósmyndari og má sjá hans verk hér https://www.mflovent.com/
Í þessum fyrsta þætti af Ljósmyndarapsjallinum fáum við að kynnast stjórnendum þeim Óla Jóns og Gunnari Frey
Comments 
Download from Google Play
Download from App Store