Discover1 Af 6. Sagan Sem Breytti Lífi Mínu.
1 Af 6. Sagan Sem Breytti Lífi Mínu.
Claim Ownership

1 Af 6. Sagan Sem Breytti Lífi Mínu.

Author: Andri

Subscribed: 20Played: 139
Share

Description

Að eignast barn er ekki jafn auðvelt fyrir alla. Ég hafði alltaf séð mig fyrir mér sem pabba og mig langaði ekkert meira í lífinu en að fá að verða pabbi. Þegar ég greindist ófrjósamur þá breyttist líf mitt og okkar mikið. Ég þurfti að kynnast sjálfum mér upp á nýtt. Ég gekk í gegnum mjög erfitt tímabil, sem einkenndist af mjög miklum kvíða, þunglyndi og félagsfælni meðal annars. Mér fannst ég vera algjörlega einn í heimi og hafa engan til að tala við sem skildi hvað ég var að ganga í gegnum. Ég gat ekki talað við neinn sem hafði reynslu af þessu fyrst um sinn og það var mjög erfitt að burðast með þetta einn. Hér segi ég sögu mína og konu minnar. Hvernig þetta hafði áhrif á allt okkar líf og hvernig þessi lífsreynsla hreinlega breytti mér.
6 Episodes
Reverse
Það eru átta ár síðan ég greindist. Við erum í dag ótrúlega þakklát fyrir að að vera á þeim stað sem við erum. Lífið hefur kennt okkur mikið á síðustu átta árum.  Ég reyni alltaf að muna að fólk er oft að kljást við eitthvað sem ég hef ekki hugmynd um og það er mikilvægt að taka tillit til annarra. Allir hafa rétt á að vera eins og þeir eru.  Ég vona innilega að það hafi hjálpað þér að heyra okkar sögu.  Takk fyrir að hlusta. 
Ferðalagið okkar hélt áfram. Þetta hefur verið mjög mikill skóli sem við höfum gegnið í gegnum.  Lífið er upp og lífið er niður. Við minnum okkur reglulega á að lifa með æðruleysi og þakklæti að vopni. Það borgaði sig að gefast ekki upp og halda áfram að elta drauminn.  
Styrkur konu minnar var ótrúlegur á þessum tíma. Ég er og verð henni ævinlega þakklátur fyrir að gefast ekki upp á mér í gegnum okkar erfiðustu tíma.  Þetta ár var hún maður ársins ! Takk Sara mín.
Greiningin mín hafði gríðaleg áhrif á líf mitt og líf okkar.  Ég lagðist í mikla sjálfsvorkunn og einangraði mig mikið. Ég varð félagsfælinn og tókst á við þunglyndi í fyrsta skipti lífs míns. Ég átti mjög erfitt með að vera bjartsýnn um tíma og ég velti því fyrir mér ,"hvernig ég gæti haldið áfram og hver tilgangurinn væri með þessu öllu" 
Í þessum þætti fer ég yfir allt ferlið þegar ég greindist og þær rannsóknir sem ég fór í. Ég verð að viðurkenna að það var mér mun erfiðara að taka þennan þátt upp en ég hélt það myndi verða.  Dagurinn sem ég greindist var versti dagur lífs míns og ég man hann eins og hann hafi gerst í gær.   
Þegar ég settist niður fyrir framan míkrafóninn þá hafði ég ákveðna hugmynd um hvað mig langaði að tala um en ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að byrja. Ég var alveg rosalega stressaður að byrja að tala um þetta allt og rifja upp söguna og segja frá henni. Ég hef aldrei farið jafn langt út fyrir þægindaramman eins og í þessum upptökum.  Það tók á taugarnar að hugsa að einn daginn myndu allir sem vildu geta hlustað á þetta. 
Comments 
loading
Download from Google Play
Download from App Store