DiscoverNei nú segi ég stopp
Nei nú segi ég stopp
Claim Ownership

Nei nú segi ég stopp

Author: karafknkristel

Subscribed: 54Played: 402
Share

Description

Þetta er bara svona hlaðvarp skiljiði
17 Episodes
Reverse
partur tvö af nornaskólanum, stjörnumerki og allskonar hræðilegt 
Fyrri partur af nornaskólanum MEÐ VIGDÍSI HOWSER EÐA FEVERDREAM LITLA LEGENDINU FOR REAL 
Þessi þáttur er tekinn upp í sumarbústað í Grímsnesi, með hrjótandi hund á gólfinu - Ég ætlaði að klippa þáttinn að minnsta kosti aðeins en Gunna bannaði mér það, þið vitið af hrotunum sem gætu heyrst í fjarska. Mjög skemmtilegt hrátt sumarbústaðarspjall á milli mín (26 ára) og  Guðrúnar Tryggvadóttur (62 ára ).Ég kynntist henni Gunnu minni fyrir nokkrum árum þegar ég byrjaði að vinna á Þingvöllum, þar var hún landvörður og það tók mig ekki langann tíma að komast að því að hún væri svakaleg listakona, heimsborgari, pönkari og konan sem mig langar að vera eftir 36 ár þegar ég næ henni í aldri! Hún er eitt mesta ICON sem ég hef kynnst- og hér í þessum þætti getið þið hlustað á tvær létt bilaðar konur.Hér er heimasíðan hennar, mæli mikið með því að skoða verkin hennar!Guðrún Tryggvadóttir (tryggvadottir.com)
Fyrsti hluti af samtölum okkar Kriss um hvernig það sé að vera á lausu á Íslandi miðað við í útlöndum þar sem hann er alinn upp!!! Ég þurfti bara að ræða við straight gaur um þetta mál, hvað eru þeir að pæla ? Hvað erum við að pæla ? Afhverju ghosta svona margir eða hvað er ghosting ???? Hvar er best að hætta með einhverjum? Hver er gellan úr GTA ???
Facebook groups og like síður til að koma fram skoðunum, become a fan, cod er betra en fallout sættu þig við það kolli, leikjanet og leikur1, blog central, lífið áður en FILT kom á markaðinn, SPKM!! Ef þetta er ekki geggjuð nostalgía þá veit ég ekki hvað - Kara Kristel, Tanja Björk, Árni Páll og Sindri Franz eða Kara Hartt, TJ/dog, Herra Hnetusmjör og Sör Sulta rifja upp gamla og misgóða tíma lol. Hver stal bílnum? Hver braust inn á Samfés? Er Haukur Borg inní geymslu eða facebook celebrityið Haukur Már Hitler? Afhverju öll þessi nicknames?? Er Björgvin Halldórsson afi Árna? Þessi þáttur er kannski ekki fyrir alla, hlustið á eigin ábyrgð btwKÓPBOIS og Tanja og Kara í strætó mínus strætóinn 
TikTok - Laufey Ebba

TikTok - Laufey Ebba

2021-04-2501:23:14

Við Laufey Ebba ætluðum bara að ræða tiktok aðeins á léttu nótunum en þar sem í Janúar urðum við báðar “cancelled” (Laufey átti að vera dýraníðingur og ég hata alla unglinga og þeirra geðheilsu) fórum við hratt á mjög djúpar og einlægar nótur. Laufey er hefur verið stór á þeim miðli með tugi þúsunda fylgjendur.- Í dag erum við fullorðnar, búnar að vinna ógeðslega mikið í sjálfinu og okkar málum. Ég hef alltaf skammast mín og varla sagt það upphátt að ég var löggð inn á BUGL 15 ára í sjálfsvígsáhættu. Laufey deildi líka sinni reynslu og það er skelfilegt að hugsa til þess að ef við hefðum verið að fá þessi comment fyrir 10 árum, væri önnur ekki á lífi í dag og jafnvel hvorug okkar.-Það sem er skelfilegast við þetta er að við vorum bara að fá þessi comment í nokkra daga og við getum Í DAG, sem fullorðnar konur, staðið þau af okkur. En í 9/10 tilvika eru krakkar og unglingar að segja þessa hluti undir fake nöfnum við bekkjarfélaga sína eða þeirra eineltis “target”.-Ég fékk EINU SINNI á MSN, skilaboð um að ég ætti að drepa mig og það situr alveg enn í mér stundum. -Tiktok er frábært á marga vegu, margt jákvætt þar! En eftir 7 ár er sonur minn 13 ára og ég er skíthrædd við þessa þróun!
Í þessum þætti er enginn annar en Skúli Guð viðmælandi minn, barnsfaðir minn. Aðal áherslan var á innsendar spurningar um sameiginlegt uppeldi þar sem við höfum nánast frá byrjun verið 50/50. Við erum búin að vera vinir í rúmlega 9 ár að mestu leiti  haha og eigum saman Jóa sem fer í grunnskóla í haust. Það eru truflanir á nokkrum stöðum í upptökunni sorry not sorry. Hvenær ætlar fólk svo að hætta slutshamea ?  Hvað gerðist við Erlu og Kjúklinginn? Hvernig er að vera ekki skilnaðarbarn og eiga barn með skilnaðarbarni? Megum við vera vinir í friði??PS: HVER ER PABBINN OG HVER Á ÞENNANN BÚSTAÐ JÁ EÐA NEI!!?
Smá preview af seríu tvö sem fer í loftið 23. apríl. 
Sjötti og seinasti þáttur af fyrstu seríu Nei nú segi ég stopp! Í þessum þætti eru Arndís Lára og Katrín Lóa með Köru Kristel að ræða um þeirra mismunandi vegferðir og upplifanir á því að verða einstæðar mæður fyrir eða um tvítugt, mjög skemmtilegt eða mjög leiðinlegt umræðuefni. Þú ræður. 
Í þessum þætti sem er sá næst síðasti í röðinni í seríu númer eitt af nei nú segi ég stopp fær Kara Kristel litlu systur sína með sér í spjall um sjálfstraust. Elfa Dögg, Elvis Presley eða Ráðskonan eins og hún er oft kölluð á forritinu Instagram talar um hvernig það er að vera litla systir Köru, sem þykist vera stóra systir allra sem þurfa en í rauninni eru þær sem eru litlu systur hennar hafa ekki val. Hvað er það mikilvægasta við sjálfstraust? Hvernig ræktar maður það? Hvað myndi Elfa Dögg segja ef Kara væri kærð fyrir morð? Kara les líka upp spurningar frá instagram fylgjendum sínum '' spurningar til stóru systur'' og Elfa svarar út frá því sem hún heldur að Kara myndi segja við sig ef hún sjálf sem real life litla systir væri með þessar spurningar. Við förum í skandalískar játningar sem komið hafa af instagram, Kara ræðir sjálfstraustið á meðgöngu og hvað rústaði því næstum því og hvernig slagurinn var að ná því til baka. 
Kara Kristel og Klara Sif

Kara Kristel og Klara Sif

2021-03-2601:37:18

Fjórði þáttur af nú segi ég stopp átti alltaf að fjalla um toxic things! Kris Jenner works hard en the UNIVERSE works harder.. Hafiði heyrt um Íslenskan gaur sem deitar að minnsta kosti 2 Íslenskar gellur og heldur að það komist ekki upp á endanum? Kara Kristel og Klara Sif the onlyfans QUEEN og bitrustu gellur forritsins tiktok ( samkvæmt Sölva Santos ) tala um all things toxic- hver á ömmuspennurnar? Hvað fékk hin gellan í jólagjöf? Elska allar gellur berjaboozt? Haha mjög gott gat nú verið!!!! Svaf Kara hjá fyrrverandi kærasta Klöru?  Hvað er málið með fyrrverandi kærasta?  Fyrrum vinnustaði? Red flags?  Afhverju eru sumir main characters og aðrir ekki?  Toxic fjölskylduhefðir og ástar þríhyrningar??? Eitt er á hreinu, gellur elska ömmuspennur og Kara Kristel notar gullitaðar á meðan hin gellan notar svartar! 
Þriðji þáttur seríunnar og við erum þá officially hálfnuð! Í þessum þætti fer Kara yfir húð/hár- og líkamsumhirðu! Og hvernig við ætlum að verða heitustu ömmur allra elliheimila landsins eftir 60 ár! 
Í þætti tvö af Nei nú segi ég stopp fer Kara á mjög djúpar og persónulegar nótur. Andleg heilsa og segir sína reynslusögu af lífi með áfallastreituröskun. 
Í fyrsta þætti Nú segi ég stopp svarar Kara nokkrum laufléttum spurningum frá Instagram fylgjendum sínum, kafar smá í hvað er ghosting, og segir nýlega sögu úr eigin stráka chaotic lífi.Recap af þættinum inná http:/karafknkristel.club
Trailer fyrir komandi hlaðvarpið Nei nú segi ég stopp. Þetta verður takmörkuð sería, 6 þættir frá mér til ykkar í vor!!Serían er based á samskiptum mínum við fylgjendur mína á instagram 2018-2021.
Comments 
Download from Google Play
Download from App Store