Discover
Útvarp Akranes
120 Episodes
Reverse
Minning um Orra Harðar er þáttur þar sem við bregðum okkur inn á kvöldvöku til heiðurs Orra sem var haldin á bókasafninu á Vökudögum í lok október. Fjöldi tónlistarfólks kom fram og lék tónlist Orra og spjallaði um hann í sófanum á milli tónlistaratriða.
Umsjónarmenn kvöldsins, þeir Gulli Jóns, Halli Melló og Hjörtur Hjartar hafa búið til tvo þætti upp úr þessari mögnuðu kvöldstund og er sá fyrri á dagskrá útvarps Akranes 30.11.25 en sá seinni fer inn á hlaðvarpsveitur fyrir jól.
Samsetning og hljóðblöndun: Baldur Ragnarsson/Hljóðkirkjan
Helgi Reyr Auðarson Guðmundsson tekur á móti gestum og ræðir álitamál tengd jólunum og jólahefðum.
Hjörvar og Gummi hefja Útvarp Akranes árið 2025 með því að fara yfir dagskrána, heyra í fólki og ræða það sem verður um að vera á Akranesi fyrstu helgi í aðventu 2025.
Hljómsveitin Díó Tríó býður til kvöldstundar þar sem hlustendum er boðið í ferðalag um stefnur og strauma unglingsáranna í tónlist.
Anna Björk Nikulásdóttir rekur sjötíu ára sögu Tónlistarskólans á Akranesi og fær til sín góða gesti.
Alexander og Patrekur heilsa að þessu sinni frá Eindhoven
Þátturinn Upprisan á rætur sínar að rekja til útvarpsstöðvarinnar FM103 á Húsavík þar sem hann var á dagskrá óreglulega í nokkur ár. Því má segja að þetta sé upprisa Uprisunar, en svo má líka sleppa því. Form þáttarins hefur verið óljóst frá upphafi, sem og efnistök og má búast við að Upprisan haldi uppteknum hætti í þetta skiptið. Þáttarstjórnandi hefur einu sinni í draumi kennt sálfræði við Háskóla Íslands í rúman áratug en í raunheimum er hann ekki með stúdentspróf. Upprisan er hafin!
Haraldur Benediktsson rekur sögu Jóns Hreggviðssonar
Tómas Alexander Árnason, Viðar Engilbertsson og Ingi Björn Róbertsson
Í þættinum "Einsi Skúla & Arnardalur" ræða fulltrúar '74 árgangsins um jákvæð áhrif Einars á ungmenni á Akranesi. Umsjónarmaður Hjörtur Hjartarson.
Nú þegar hátíðin nálgast bjóða Vera Líndal og Bryndís Ottesen ykkur inn í hlýjuna á Útvarpi Akraness með glænýjum (en samt rammstolnum) útvarpsþætti!
Í anda hlaðvarpsins „Dómsdagur“ frá Hljóðkirkjunni ætla þær að taka á hátíðlegum málefnum af mikilli festu – og dæma þau í bak og fyrir.
Aðventugestir koma við sögu með heimsendingu af jólagóðgæti sem lífgar upp á umræðurnar.
Fylgist með þessu Jólalega dómsvaldi og sjáið hvort ykkar uppáhalds hátíðar málefni standist þeirra ríkulegu kröfur til hátíðar ljóss og friðar.
Katrín Lilja ræðir við höfundana Sigrúnu Elíasdóttur og Hugrúnu Björnsdóttur um skrif og sköpun og jólabækurnar.
Dagbjört Guðmundsdóttir og Elín Th. Reynisdóttir stýra þættinum "Verkalýðsfélag Akraness í 100 ár".
Verkalýðsfélag Akraness fagnaði 100 ára afmæli í október. Starf þess tengist bæjarlífinu á ýmsan hátt og hér er stiklað á stóru í fjölbreyttri sögu félagsins.
Birgir Þórisson Bæjarlistamaður Akraness 2024
Umsjónarmaður: Hlynur Benediktsson
Í þættinum "ABBA í 50 ár" ætla dansdrottningarnar Bryndís og Villa í tónum og tali að þakka ABBA fyrir tónlistina. Farið verður yfir feril sveitarinnar, rýnt í lög og texta og að sjálfsögðu munu ABBA lögin sígildu hljóma inn á milli gullkorna þáttastjórnenda.
Gunnlaugur I. Sigfússon
Ólafur Páll Gunnarsson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
Tveir í Vaðlaug: Alexander og Patrekur
Rokkþing með Jóni Allans.












