DiscoverVirðing í uppeldi
Virðing í uppeldi
Claim Ownership

Virðing í uppeldi

Author: medvitadirforeldrar

Subscribed: 520Played: 12,273
Share

Description

Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.
103 Episodes
Reverse
103. Skjáuppeldi

103. Skjáuppeldi

2025-12-1601:18:36

Anna Laufey Stefánsdóttir kom til þeirra Birnu Almarsdóttur, Dagnýjar Hróbjartsdóttur og Guðrúnar Ingu Torfadóttur að ræða af hverju það er ekki svo góð hugmynd að láta snjallsíma í hendurnar á barni. Anna Laufey er forritari og fjögurra barna móðir. Hlaðvarp hennar og Kristínar Sævarsdóttur, Kvíðakynslóðin, er frábært um þetta málefni. Anna Laufey hefur ástríðu fyrir því að hjálpa fólki að finna jafnvægi í stafrænum heimi og leggur áherslu á hvernig við sem samfélag getum skapað betra ó-stafrænt umhverfi fyrir bæði börn og fullorðna. Af hverju fyrst núna? Jú, því umræðan er loksins að komast á þann stað að við förum að gera eitthvað sem samfélag í þessu. Þetta skiptir miklu máli og við hvetjum þig til að hlusta.Annars!
Í þessum þætti heimsækir Kristín Björg Viggósdóttir vinnustað sinn, Grænuhlíð, og ræðir við Önnu Maríu Jónsdóttur geðlækni og Öldu Pálsdóttur iðjuþjálfa um starfsemi miðstöðvarinnar og þá meðferðarnálgun sem þar er unnið eftir. Grænahlíð er fjölskyldumiðað geðheilbrigðisúrræði fyrir 0–25 ára börn og ungmenni, þar sem þverfaglegt teymi vinnur með allri fjölskyldunni út frá áfallamiðaðri og tengslaeflandi nálgun. Í þættinum fjalla þær meðal annars um hversu mikilvægt er að horfa ekki eingöngu á hegðun barnsins heldur á barnið í samhengi við umhverfi, sögu, stuðning og tengsl. Þær ræða einnig gildi öruggra marka, aðferðina að byrja á tilfinningalegri tengingu áður en gripið er til atferlismótandi aðferða, og hvernig athygli er í raun þörf barnsins fyrir tengsl. Einnig kemur fram hvernig merki um hugrof eða ýkt viðbrögð geta vísað til áfalla sem mikilvægt er að taka alvarlega. Að lokum deila þær praktískum ráðum fyrir foreldra, meðal annars því hversu öflug áhrif það getur haft að gefa barninu þrjú skipti á viku þar sem það fær óskipta athygli í hálftíma — til að styrkja tengsl, öryggi og vellíðan.
Hvað skiptir mestu máli í uppeldi yngri barna?Þú ert í miðju þykkninu – þetta eru árin sem reyna á svefn, þolinmæði og tengsl svo um munar. Þær Birna Almarsdóttir, Dagný Hróbjartsdóttir og Laufey Ósk ræða nokkur lykilatriði virðingarríks uppeldis þegar kemur að yngri börnum. Þær eiga allar börn undir þriggja ára – auk eldri systkina. Nokkrir hlátraskellir fengu að fylgja með, enda er Dagný húmoristinn í hópnum. Lykilboðskapurinn? Virðingarríkt uppeldi er iðkun og gerir enga kröfu um fullkomnun eða að hætta að vera mannleg.
Í 100. þætti Virðingar í uppeldi fóru þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Guðrún Inga Torfadóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir og Perla Hafþórsdóttir yfir það hvernig er að vera viðkvæmar og viljasterkar mæður í grunninn og eiga jafnvel viðkvæm og viljasterk börn líka. Þar sem þetta er 100. þátturinn var líka aðeins farið yfir hvernig það hefur mótað þær að tileinka sér virðingarríkt uppeldi í öll þessi ár og eiga vináttu og stuðning hver annarrar að.
99. Unglingar

99. Unglingar

2025-01-2301:11:42

Guðrún Inga Torfadóttir ræðir við Kristínu Björgu Viggósdóttur og Sólveigu Maríu Svavarsdóttur um hvernig má best efla foreldra í hlutverki sínu þegar börnin fara inn í unglingsárin.Þetta eru árin sem heilinn fer í gegnum ferli sem má líkja við að fara í allsherjar tiltekt og gerist í gamla heilanum fyrst og fremst, randkerfinu, og færir sig síðar ofar og framar og yfir í framheilann allra síðast. Barnið getur verið sjálfhverft og hugsar einvörðungu út frá eigin hagsmunum. Þetta er bæði frelsandi og framandi fyrir foreldrið, því skyndilega er líka rödd foreldrisins alveg fáránleg. Aðrar, nýjar raddir mun áheyrilegri. Þetta ferli er nauðsynlegt í þroskanum að sjálfstæðu lífi. Á meðan er eins gott að taka engu of persónulega. Þegar þú upplifir síðan skapofsaköst og augnsvipi sem lýsa fyrirlitningu, barnið kemur heim og á ekki eitt orð fyrir þig um hvernig dagur þess var og virðist þurfa að leggjast í hýði og borða bara kolvetnabombur sem hljóma fáránlegar – þá megum við vita að allt þetta er mun stærri upplifun og hræðilegri oft fyrir það sjálft en okkur. Eða hvað? Það er alla vega ýmislegt sem foreldrar geta gert til að styðja við barnið sitt og upplifa í leiðinni ánægjulegra tímabil.
Elsa Borg Sveinsdóttir og Kristín Björg Viggósdóttir ræddu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breytt um virðingarríkt uppeldi og þroskasögu sína þegar kemur að foreldrahlutverkinu og foreldraráðgjöf. Allar þrjár hafa verið vinkonur í sjö til átta ár og mynduðu félagsskapinn Meðvitaða foreldra með fleiri góðum. Heilmikið vatn hefur runnið til sjávar frá því þær Elsa og Kristín urðu fyrst mæður fyrir nærri því einum og hálfum áratug, kynntust RIE og virðingarríka arminum og hófu nám í faginu sömuleiðis með ólíkum hætti. Við heyrum um þetta ferðalag þeirra og hvernig hefur verið að samþætta akademískan þátt uppeldisfræðanna við innsæi sitt og svo áfram vítt og breytt um foreldrahlutverkið og þroskaferlið sem það felur í sér.----Elsa er menntaður foreldra- og uppeldisfræðingur og jógakennari. Hún er lærdómsfús og fær aldrei nóg af því að afla sér þekkingar og hefur setið hin ýmsu námskeið og vinnustofur. Þar má nefna ígrundaðar samræður foreldra (RDPED), “polyvagal informed treatment”, “fierce self-compassion”, “the power of mindful self-compassion”, doulunámskeið, BIO TRIO (erasmus verkefni um samskipti) o.fl. Elsa starfar einnig sem verkefnastjóri þróunarverkefnis um foreldrafærni við HÍ og kennir jóga í Yogavin studio.Kristín Björg er foreldra- og uppeldisfræðingur, iðjuþjálfi, jógakennari og með MA í dans- og hreyfimeðferð. Hún er þriggja barna móðir sem henni þykir meiri lærdómur en nokkur háskólagráða. Helstu áhugasvið Kristínar eru virðing og tengsl í uppeldi, skynúrvinnslu kenningar (e. sensory integration) og allt sem viðkemur vinnu með líkamann.
Kona á samtal við konu um hvernig á að koma á nýjum svefnvenjum og eignast kvöldin sín aftur; fyrir raunveruleikaþætti, prjónaskap eða að stara út í loftið eða í augu makans. Skiptir ekki öllu máli fyrir hvað, en meira máli skiptir að trúa því að það er hægt!Í þetta sinn voru það vinkonurnar Birna Almarsdóttir og Guðrún Inga Torfadóttir sem rifjuðu upp hvernig gekk að gera stórar breytingar með litlu samtali á tilhögun háttatímans hjá einni frábærri stelpu sem nú arkar almennt betur sofin út í dagana sína eftir breytingarnar.Vonandi hjálpar þessi litla umfjöllun þér að taka á einhverju sem þarf e.t.v. að breyta eða hnika til í svefnuppeldinu á þínu barni. Ef ekki, þá má benda á stóra þáttinn, nr. 50 í Virðingu í uppeldi sem fer mun nánar ofan í svefnsálmana.
Auður Bjarnadóttir, eigandi Jógasetursins og dásamlegur meðgöngujógakennari, kom beint úr tíma með fullan sal af verðandi mæðrum sem dönsuðu og önduðu ásamt Birnu Almarsdóttur sem á brátt von á sér. Þær ræddu við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um undirbúning fæðingar, stuðning maka, að vinna sig í gegnum tilfinningar sem vakna á meðgöngu og góðar möntrur sem hjálpa við að sjá fyrir sér góða fæðingu. Dásamlegt spjall sem fer í góðan sarpinn með öðrum þáttum Virðingar í uppeldi sem fjalla um fæðingar.
Perla Hafþórsdóttir tók á aðventunni á móti þeim Marit Davíðsdóttur og Yrju Kristinsdóttur sem saman sköpuðu Gleðiskrudduna og eru mjög virkar við að halda námskeið fyrir börn og ungmenni. Þær gáfu jafnframt út samnefnda dagbók fyrir börn að vinna með sem er mjög vel heppnuð og notuð víða.Gleðiskruddan byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan og við kynnumst í þessum þætti aðeins hvernig þær hugsa þetta allt saman. Eflandi og jákvætt upphaf hjá okkur á nýju ári í Virðingu í uppeldi!
94. Hugarfrelsi

94. Hugarfrelsi

2023-12-0601:22:50

Vinkonurnar til margra ára sem stofnuðu Hugarfrelsi og hafa í um tíu ár eða meira starfað við að heimsækja leik- og grunnskóla og kenna börnum að hugleiða, sem og foreldrum á ótal námskeiðum, heimsóttu þær Dagnýju Hróbjartsdóttur og Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Þetta eru þær Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir, sem saman hafa búið til auð af efni, alls konar spjöld, hugleiðslur og bækur en ekki síst kennt í eigin persónu í bekkjum vítt og breitt um landið. Í þættinum leyfðu þær Dagný og Guðrún sér að vera ákafar (styrkleiki, fróðleiksfýsi) og spyrja út í alls konar og tala mikið (styrkleiki, tjáning og samskipti). Hrafnhildur og Unnur (styrkleiki, rósemd) biðu rólegar á meðan og svöruðu svo sem lýsti djúpri reynslu þeirra af málefnunum (styrkleiki, drifkraftur og seigla). Við tæptum sem sagt á ýmsu í þættinum, allt frá umfjöllun um starf þeirra, meðhöndlun kvíða, svefn barna, sjálfstal, styrkleikaeflingu og foreldrahlutverkið í víðum skilningi. Sjá hugarfrelsi.is ef þú vilt vita meira.
Í þættinum fjalla þær Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir dúlur mættar að ræða erfiða fæðingarreynslu og úrvinnslu vikurnar og mánuði á eftir, eða jafnvel enn síðar. Þær fjalla fallega um þetta málefni og gott er að hlusta á þær og gera upp sína eigin fæðingarreynslu í leiðinni.
Í þættinum fékk Dagný Hróbjartsdóttir Ágústu Rúnarsdóttur til sín í spjall um foreldrahlutverkið og þróun og þroska sinn í því frá því hún varð móðir fyrst, tæplega 17 ára gömul og svo aftur komin yfir fertugt. Tímarnir hafa breyst og fólkið breytist með. Yndislegt spjall sem við mælum með!
Hér er á ferðinni fjórði þáttur dúlanna Guðrúnar Björnsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur í Hönd í hönd. Þær ræða í þættinum um leiðir til þess að gera sængurleguna ánægjulegri og reynslu sína hvað það varðar. Fallegt og rólegt spjall sem er yndi að taka í göngutúrnum, með makanum í bíltúr eða á koddanum fyrir svefninn, sérstaklega ef þú eða einhver nákominn þér á von á barni.
90. Gestur Pálmason

90. Gestur Pálmason

2023-10-0601:15:39

Í þessum 90. þætti Virðingar í uppeldi kynnumst við viðhorfi Gests Pálmasonar, stjórnenda- og teymisþjálfara hjá breska þjálfunarfyrirtækinu Complete Coherence til foreldrahlutverksins í samtali við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Áhugi hans og starfsorka liggur í að vinna með fullorðnu fólki við að ná lengra í störfum og lífi sínu. Viðhorf okkar og orka segi til um hvernig við tengjumst öðrum sem hefur mikið að segja hversu langt við náum. Heilinn hafi möguleika á að aðlagast og breytast alla ævi og við höfum möguleika á að velja okkur viðhorf. Frábært spjall sem gefur orku inn í hversdaginn.
Öll höfum við stundum gott af því að hlusta á eitthvað sem peppar okkur í leiðtogahlutverkinu. Hér er stutt hugvekja um mörk í boði Guðrúnar Ingu Torfadóttur.
Enn á ný heiðra dúlurnar Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir í Hönd í hönd okkur með nærveru sinni í Virðingu í uppeldi með spjalli sínu og vangaveltum um parsambandið á meðgöngu og í fæðingu - og hvað aðkomu dúlur geta haft til að liðka fyrir og gefa því byr undir báða vængi áður en þau taka á móti barninu.Fallegt og rólegt spjall sem er yndi að taka í göngutúrnum, með makanum í bíltúr eða á koddanum fyrir svefninn.
Guðrún Inga Torfadóttir tók hér á móti Guðrúnu Jóhönnu Benediktsdóttur iðjuþjálfa. Hún er með réttindi sem leiðbeinandi í PEERS félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungt fólk og heldur námskeið í því hjá Lífsbrunni ásamt því að vinna með börnum og fjölskyldum þeirra almennt við skynúrvinnslumöt til að mynda. Frábært og upplýsandi spjall!
Þær Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir dúlur hjá Hönd í hönd eru mættar aftur til að gefa konum og foreldrum sem eiga von á barni leiðir til að finna stuðning og ró í fæðingunni sjálfri sem og fæðingarundirbúningnum. Einkar ljúf hlustun sem við mælum heils hugar með.
Hvað gerist þegar tvær traustar vinkonur sem kynntust í gegnum félagsskap okkar í kringum virðingarríkt uppeldi og búa á Selfossi taka spontant viðtal við barnalækninn á svæðinu sem önnur þeirra var svo ánægð með í síðustu heimsókn?Þessi þáttur.Vignir Sigurðsson læknir leyfir sér hér að segja það sem stendur hjarta hans nær. Vinkonurnar tvær blómstra í þessu spjalli sömuleiðis.Sértu heilbrigðisstarfsmaður sem stundum eða alla daga þjónustar börn, hlustaðu.Sértu væntanlegt eða núverandi foreldri eða umönnunaraðili, hlustaðu. Uppeldisbækur sem hafa haft áhrif á Vigni að hans sögn eru Hjálp fyrir kvíðin börn og How To Talk So Kids Will Listen and Listen So Kids Will Talk. 59. þáttur þessa hlaðvarps fjallar einmitt um síðarnefndu bókina hvað viðkemur ungum börnum og við mælum líka með honum.
Framundan inn á milli annarra þátta eru nokkrir þættir úr smiðju þeirra Guðrúnar Björnsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur. Þær starfa báðar sem doulur. Guðrún er ein stofnmeðlima Meðvitaðra foreldra og tveggja barna móðir. Segja má að foreldrahlutverkið og ástríða hennar fyrir virðingarríku uppeldi hafi leitt hana á þá braut sem hún starfar á í dag, með börnum hjá Hjallastefnunni og sem doula eftir að hafa lært hjá Soffíu. Soffía er þriggja barna móðir, eiginkona og félagsfræðingur og brennur því fyrir því að aðstoða fjölskyldur alveg frá meðgöngu og áfram og er með fyrirtækið Hönd í hönd.Báðar eru þær með hjartað í því að tilheyra og styðja samfélagið sitt, víkka það út (fjölskyldurnar sem þær þjónusta kalla þær fjölskyldurnar sínar) og halda rými utan um fólkið sem þær þjónusta.Við mælum með þessari rólegu og góðu hlustun á spjall Guðrúnar og Soffíu, sér í lagi ef þú ert að búa þig undir fæðingu. „Að vera til staðar í fæðingu án þess að vera með læti og taka yfir rýmið. Þegar fjölskyldan þakkar manni fyrir á maður að minna sig á að fjölskyldan gerði þetta sjálf.“ Þessi orð Soffíu úr þættinum hafa sterkan samhljóm við foreldrahlutverkið. Guðrún Inga Torfadóttir annaðist klippingu þáttarins.
loading
Comments 
loading