Discover
Kratinn
28 Episodes
Reverse
Í þætti dagsins fórum við yfir þær kannanir sem birtar voru í síðustu viku, lögðum mat á niðurstöðurnar og ræddum nýjustu tíðindi af framboðslistum. Þá sérstaklega ferskleika Framsóknar og framboð Brynjars Níelssonar sem bætti síðast við sig fylgi árið 2017. Björgunarsveitin Kofri í Súðavík fær „shoutout“ fyrir frækna frammistöðu við björgun þingmanna í Skötufirði í síðustu viku og sú saga sögð frá fyrstu hendi. Þórður Snær sagði frá fundinum þegar Davíð Oddsson var kynntur sem ritstjóri Morgunblaðsins. Í seinni hluta þáttar mætti Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður flokksins og oddviti í Hafnarfirði, og fór yfir víðan völl. Meðal annars framboðslistann í Hafnarfirði, helstu málefni í bænum, handabandið hans Obama og hvernig hann öðlaðist virðingu Davíðs Oddssonar.
Það er kjördæmavika og þingmenn og starfsfólk því á fleygiferð um kjördæmin. Farið var yfir dagskrána framundan og það sem hefur drifið á daga okkar undanafarið.Rætt var um Vinstrið, Brynjar Nielsson og Loga Einarsson sem virðist hafa komið heim á töfrateppi frá Indlandi.
Í Kratavarpinu þessa vikuna er rætt ítarlega um nýtt formannskjör í Framsóknarflokknum, hvort formaður stjórnmálaflokks geti virkilega setið utan þings árum saman og því velt upp hvort að það hlutskipti að verða formaður í þeim flokki sé sambærilegt og að erfa vídjóleigu árið 2026. Önnur framboðsmál eru rædd, Píratahornið er á sínum stað, velt er upp hvert Sjálfstæðisflokkurinn ætti helst að flytja og línur lagðar fyrir kjördæmaviku. Í seinni hluta þáttarins er rætt við Skúla Helgason borgarfulltrúa um þær nýjungar í leikskólamálum sem kynntar voru í höfuðborginni í vikunni og hafa mælst afar vel fyrir.
Í Kratanum í dag er rætt um prófkjör í Kópavogi og áhyggjur af verðskrárhækkunum í gusum landsins. Miðflokkurinn ber á góma og misheppnaðar tilraunir Framsóknar til að vera "hip og kúl".Í seinni hluta þáttarins má heyra viðtal Arnars Þórs Ingólfssonar við Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, þar sem farið er nánar yfir prófkjörið og næstu skref.
Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Þórður og Valur yfir vikuna. Þar bar helst á góma flokksvalið síðasta laugardag. Farið var yfir framboð til sveitarstjórnarkosninga hjá Viðreisn og yfirferð á nýlegri könnun Maskínu. Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Pétur H. Marteinsson, verðandi borgarstjóra Reykjavíkur.
Kratinn er mættur aftur eftir jólafrí og í þessari viku voru þau þrjú, Arnar Þór Ingólfsson, Sonja Huld Guðjónsdóttir og Þórður Snær Júlíusson. Þau ræddu komandi sveitarstjórnarkosningar, breytingar á ráðherraskipan og kostnað við hvert atkvæði hjá flokkunum í kosningabaráttunni í hittiðfyrra en stjórnarandstaðan greiddi þrefalt meira fyrir hvert atkvæði en flokkar í stjórn.
Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Valur og Þórður yfir helstu fréttir vikunnar. Viðbætur sem samþykktar voru í 2. umræðu um fjárlögin, samgönguáætlun sem var kynnt fyrir viku og svo var því velt upp hvort að Sjálfstæðisflokkurinn væri í raun orðinn að Pírataflokki.Í seinni hluta þáttar kom Jóhannes Óli Sveinsson, forseti ungs jafnaðarfólks, í viðtal til Vals og ræddi um forprófkjör til sveitarstjórnakosninga.
Stór hluti þáttar fór í að ræða verndaraðgerðir ESB gegn kísilframleiðslu. Guðrún Hafsteinsdóttir talaði um glæpamennina í Evrópusambandinu, Sigurður Ingi stakk upp á að fara í tollastríð og Miðflokkur sagði EES samninginn í uppnámi.Í seinni hluta þáttar ræðir Arnar Þór Ingólfsson við Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um loftslagsmálin en hún er nýlega komin heim af COP30 í Brasilíu.
Í þættinum fóru Arnar, Ásta, Þórður og Valur yfir fréttir vikunnar. Efnahagsmálin voru fyrirferðarmikil enda gengur vel, tiltekt í ríkisrekstri hefur skilað raunverulegum árangri og nú heldur vaxtalækkunarferlið áfram. Í síðari hluta þáttarins ræddi Sonja við Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formann ÖBÍ um löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Í þætti dagsins er fjallað um stöðu ríkislögreglustjóra, kratabylgjuna sem fer nú um heiminn, nýjustu könnun á fylgi flokka, vandamál Pírata við að kjósa sér formann og Arnaldarvísitöluna, svo fátt eitt sé nefnt. Í síðari hluta þáttarins er fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar svo krufinn.
Í þættinum fara þau Sonja, Valur, Ásta og Arnar yfir fréttir vikunnar og í síðari hluta heyrum við viðtal Arnars við Kristján Þórð en hann stóð fyrir sérstakri umræðu um launaþjófnað og mansal í síðustu viku.
Í þættinum í dag fara Ásta, Sonja, Valur og Þórður yfir fréttir vikunnar sem voru nokkuð margar og vítt og breitt um sviðið. Í seinni hluta þáttar heyrum við viðtal við Dagbjörtu Hákonardóttur um þingmannamál sem hún lagði fram í síðustu viku um leikskólamál.
157. löggjafarþing er sett og hlaðvarp Kratans snýr aftur. Í þessum fyrsta þætti vetrarins tökum við frambjóðendur til embættis forseta Ungs jafnaðarfólks tali.
Logi, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Íslands er gestur í hlaðvarpsþætti Kratans í þessari viku. Hann var formaður Samfylkingarinnar árin 2016 -2022.
Þriðji viðmælandi Þórðar er Oddný G. Harðardóttir sem var fyrst kvenna fjármálaráðherra á Íslandi. Hún var formaður Samfylkingarinnar árið 2016.
Árni Páll er gestur í öðrum þætti okkar í Kratanum. Hann fer yfir sinn pólitíska feril og formannstíð og ræðir jafnaðarmennskuna.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu hefur verið sett á dagskrá þann 29. ágúst. Stjórnarandstaðan er hrædd um sumarfríið sitt. Við fórum yfir hegðun og atferli stjórnarandstöðunnar undanfarna daga ásamt því að ræða um kosti Evrópusambandsins.Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Kristinn Ólafsson “Seltjarnarneskempu” sem leiðir S listann þar.
Í Kratanum í dag er farið raunveruleikatengt yfir stöðu mála í efnahagsmálum, þann gríðarlega stuðning sem Samfylkingin er með í landsmálunum og mjög sterka stöðu flokksins í borginni eftir vel heppnað prófkjör. Þá er farið á dýptina í umræðu um hvort Íslendingar séu meðvitaðir neytendur og þáttastjórnendur skilgreina sig út frá þeim menntaskóla þeir voru í.Í seinni hluta þáttarins er rætt við Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.
Arnar, Ásta, Sonja og Þórður fóru yfir mál sem gengið hafa á undanfarna daga. Rætt var um hálku og handbolta, tilraun vinstrisins til að sameinast og sýn Miðflokks og sumra Sjálfstæðismanna á Borgarlínuna. Í síðari hluta þáttarins má heyra viðtal við Guðmund Ara Sigurjónsson um menntamálin.
Síðasti þáttur fyrir jól. Í tilefni af því fórum við yfir þingveturinn, krýndum best klædda þingmanninn, besta þingmannamálið, verstu ræðuna og ýmislegt fleira.Hlökkum til að mæta með nýtt kratakrydd eftir áramót.Gleðileg jól!




