Grísirnir þrír

Grísirnir þrír er grínpodcast þar sem spunaleikararnir og vinirnir Gummi Fel, Geinar og Pálmi ræða allt milli himins og jarðar. Óskrifaðar reglur, eftirhermur, spurningakeppnir og framtíðin eru meðal efnis. Þeir eru allir með bakgrunn í spuna með Improv Ísland auk þess að vera meðlimir í sketsahópnum Kanarí.

#59 - FINALE

Jæja kæru vinir, þá er komið að því. Lokaþátturinn. Við lítum yfir farinn veg og förum í fallegan en óþægilegan hróshring. Ný útgáfa af fimmunni lítur dagsins ljós og splunkunýtt þemalag fyrir lið sem Geinar undirbjó ekki. Allt eins og það á að vera.  Við viljum þakka öllum gríslingum kærlega fyrir samfylgdina og hlustunina, fyrir spurningarnar og peppið! Við munum snúa aftur einhvern daginn. Einhvernveginn.  Bæjó!

09-01
01:17:33

#58 - The nitty gritty

Geinar stal hjólinu sínu og 200 manns horfðu. Strákarnir ræða mjög fullorðinslega hluti eins og skírnarveislur og leigutryggingu. Ótrúlegir hlutir gerast í fimmunni og hvort myndirðu frekar er á sínum stað!  Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

08-22
48:17

#57 - Hvar er Gummi?

Hvaða nafn skal nota í útlöndum? Eru rennilásar inni í typpum? Er eðlilegt að mæta skyndilega með kanínu á heimilið? Þessum spurningum og mörgum fleiri svara grísirnir í þætti þar sem Gummi kemur seint og Gummi fer snemma.    Ps. búið ykkur undir STÓR TILKYNNINGU!

08-15
49:36

#56 - 10 km keppni??

Gummi er byrjaður að skokka og Geinar vill alls ekki taka þátt í 10 km hlaupinu af ótta við að vera með lélegri tíma en Gummi. Pálmi gerir fráááábæra Trump eftirhermu.  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

08-11
44:00

#55 - Gummi Fel og Mamma Fel

Mamma hans Gumma, Ásdís Malmquist Ingþórsdóttir er gestur vikunnar! Afhverju er Gummi eins og hann er? Er eðlilegt að hugsa sturtuferðina til enda áður en þú ferð í sturtu? Gera það allir? Erum við skrítin? Hver veit! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

08-01
55:44

#54 - Þú kaupir barn og fylgjan fylgir með!

Gummi hatar lélegt skipulag á röðum. Er lægri þröskuldur til að knúsa fólk í jarðarför? Strákarnir fara í keppni um hluti sem ALLAR konur vita (nema Blær og örugglega margar fleiri) og Geinar leikur fyndinn karakter þangað til karakterinn er allt í einu mannlegur harmleikur. Og ekki missa af RISA tilkynningunni í lokin!!!  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

07-25
40:36

#53 - Stefnumótaforrit fyrir vini

Geinar hefur áhyggjur af því að við kennum börnunum okkar að dýr spili á hljóðfæri. Pálmi er ekki kominn yfir mómentið sem gerðist fyrir mánuði þegar hann hitti frægan leikstjóra. Og er ekki kominn tími á stefnumótaforrit fyrir vini?? Eða væri það bara mjög skrítið?  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

07-18
43:36

#52 - Blær með fleiri klósettpælingar (pt. 2)

Já, Blær er ennþá gestur og hún er með fleiri klósettpælingar. Krakkarnir fara í æsispennandi keppni um hver er mest miðaldra og við heyrum splunkunýtt lag um átakafælni eftir Salsakommúnuna!  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir 

07-11
51:08

#51 - Blær klósettgrís (pt. 1)

Blær er gestagrís vikunnar! Og við töluðum svo mikið að við þurftum að MAKE IT A TWO PARTER! Ókunnugur maður á háalofti, íbúðir í Prag eru scam, húðrútina er scam, konur kúka saman á djamminu og margt fleira! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

07-04
49:50

#50 - The live show!

Það var stór stund þegar fyrsta live upptaka Grísanna þriggja fór fram. Grísirnir eru meyrir yfir viðtökunum og þakklátir yfir samfélagi gríslinganna sem eru BESTU AÐDÁENDUR Í HEIMI!   Grísirnir tækluðu erfiðar aðstæður (með slæmum árangri), tókust hart á um óskrifaðar reglur í bíó og tóku eftirhermukeppni fyrir aldirnar.

06-27
01:06:50

#49 - Svínabónda-gítarsóló

Síðasti þáttur fyrir Live-þáttinn sem verður á litla sviðinu í Tjarnarbíó 26. júní! Ef þú hefur ekki núþegar tryggt þér miða þá muntu ekki geta staðist freistinguna þegar þú heyrir auglýsingarnar í þessum þætti! Fimman er á sínum stað og loksins raða strákarnir í top fimm lista yfir kolvetni. Númer 5 mun koma þér á óvart!  Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

06-20
55:20

#48 - Stóri tilkynningaþátturinn

Það verður stór tilkynning í lok þáttar! Ekki gleyma að hlusta á stóru tilkyninnguna sem er í lok þáttarins! Annars gerðist líka alls konar skemmtilegt í þessum þætti. Spurningar frá hlustendum og ég veit ekki hvað og hvað! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

06-13
58:43

#47 - Spegill í hnakka og málið er dautt

Erfiðar aðstæður í þætti dagsins. Hvað gerum við þegar við missum af glugganum til að segja sögu? Eða hittum leiðinlegan leikhúsgest eða ef ókunnug manneskja vill halda á barninu okkar? Hvað ef maður vill alltaf láta klippa meira af hárinu sínu?  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

06-06
41:07

#46 - Með ís í golfi

Jájájá 20 mínútna samtal um golf frá þremur mönnum sem kunna ekki golf. IKEA er í ruglinu og of fjölmennir messenger þræðir eru óþolandi. Pálmi er búinn að eignast óvin og Geinar er alltaf bara sami gamli Geinar :)  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

05-30
58:26

#45 - Muna að kaupa bíl með dekk

Leiðinlegi þátturinn part 2 - umræður um steyputappa, Bykoferðir, bílakaup og allskonar leiðinlegt. Hvar er sumarið?? Tuð tuð tuð og stuð stuð stuð! Fylgið okkur á instagram! @grisirnirthrir

05-23
46:37

#44 - Óskýrmæltur leigubílstjóri

Pálmi hlustar á podcöst á 60% hraða til að sofna, Geinar leikur óskýrmæltan leigubílstjóra og flestir sem hlusta á fyrirlestra skilja þá ekki. Fullt af erfiðum aðstæðum og leikþáttum í þætti dagsins! Endilega hlustið á 60% hraða ef þið viljið sofna! Fylgið okkur á Instagram og sendið spurningar eða erfiðar aðstæður! @grisirnirthrir

05-16
42:42

#43 - Leiðinlegi þátturinn

Jæja gott fólk, það hlaut að koma að því. Við gerðum leiðinlegan þátt. Mikið talað um neglur, gardínur og ryksugur. Í þættinum má líka heyra laaaangt rifrildi um hegðun fólks í strætóskýlum. Góða skemmtun! Fylgið okkur á Instagram @grisirnirthrir

05-09
54:31

#42 - Hússtjórnarskólinn er að hlusta

Pálmi er byrjaður að ganga með buddu og Gummi er byrjaður að gera vont content á Tiktok. Við svörum spurningum gríslinga og gerum senur sem tengjast kúk.  Fylgið okkur á Insta! @grisirnirthrir

05-02
48:47

#41- Ef opinn er hann, þá niður fer hann

Strákarnir fara yfir víðan völl og ræða mataræði, snakkvenjur og fleira og fleira.

04-25
44:28

#40 - THE PIGS ARE BACK BABY

Við erum komnir aftur!!!!

04-17
46:42

Recommend Channels