Í þessum þætti förum við yfir fyrri hlutann af plötunni Garage inc. sem er einmitt plata eingöngu með cover lögum sem fjórmenningarnir tóku upp haustið 1998. Útúrdúrar, fróðleiksmolar og grín á sínum stað.
Í þessum þætti fjöllum við um Cliff Burton, hvernig áhrif hann hafði á hina MEÐLIMI bandsins ásamt ýmsum bransasögum um hann. Útúrdúrar, fróðleiksmolar og grín á sínum stað.
Í þessum þætti fáum við í fyrsta sinn til okkar gest. Það er hann Bóas Gunnarsson, tónlistarmaður og erkisnillingur! Við settumst allir sveittir yfir öll sóló sem hafa endað á Metallica stúdíóplötum og gerðum þrjá (að einhverju leyti) mismunandi topp 10 lista yfir þau. Fróðleiksmolar, útúrdúrar og lélegir brandarar að sjálfsögðu á sínum stað.
Öðruvísi þáttur að þessu sinni. Við tökum fyrir Loudwire listann yfir öll furmsömdu MetallicA lögin og gefum okkar álit á stöðu hvers lags á listanum. Útúrdúrar, fróðleiksmolar og grín á sínum stað.
Í þessum þætti tölum við í fyrsta sinn um eitthvað annað en heila plötu. Við tókum saman lista yfir okkar uppáhalds lög sem fá minni spilun en okkur finnst þau eiga skilið. Bæði í útvarpi, á Spotify/Apple/YouTube (o.s.frv.) og í lifandi flutningi.
Ellefta og nýjasta plata Metallica. Við förum yfir lögin, upptökuferlið og rýnum í textana. Útúrdúrar eru að sjálfsögðu á sínum stað.
10 stúdíóplata Metallica var tekin upp í samstarfi með Lou Reed. Furðuleg plata, svo ekki sé meira sagt. Við tækluðum þetta eins vel og við gátum þó platan sé vissulega erfið til meltingar. Upptökuferli, Útúrdúrar og sögur eru á sínum stað. P.s. That'll be fine!
Death Magnetic er níunda stúdíó plata Metallica. Jafnframt er hún sú fyrsta með Rob Trujillo á bassa og sú fyrsta án Bob Rock í 17 ár. Við yfir lögin, upptökuferlið ásamt fróðleiksmolum og útúrdúrum.
St. Anger...úff... það er margt sem þarf að meðtaka með þessari plötu. Án efa sú umdeildasta sem þeir hafa gefið út. Við ræðum um lögin, upptökuferlið ásamt ýmsum fróðleiksmolum og útúrdúrum.
ReLoad er 7. stúdíóplata MetallicA og jafnframt sú síðasta sem Jason tók upp með hljómsveitinni. Við förum yfir lögin og upptökuferlið ásamt því að henda inn alls kyns fróðleiksmolum og útúrdúrum.
Load er sjötta stúdíó plata Metallica (af frumsömdu efni). Við ræðum söguna í kringum plötuna, lagasmíða- og upptökuferlið ásamt alls kyns fróðleiksmolum og útúrdúrum.
Fimmta plata Metallica og sú lang vinsælasta. Platan sem ýtti þeim upp á hærri stall og varð til þess að þeir urðu stærsta metal band sögunnar. Við ræðum upptökuferlið og gefum okkar álit á plötunni og hverju lagi fyrir sig að ógleymdum fróðleiksmolum og útúrdúrum. P.S. Mikið rætt um Bob Rock ;)
...And Justice For All kom út árið 1988 og er sú fyrsta (af frumsömdu efni) sem Jason Newsted tók upp með bandinu. Við ræðum upptökuferlið, sem fór fram í Bandaríkjunum í þetta skipti. Stóra bassamálið er gegnumgangandi í þessum þætti. Að sjálfsögðu eru þó nokkrir fróðleiksmolar og útúrdúrar á sínum stað.
Master of Puppets er þriðja plata þeirra félaga og jafnframt sú síðasta sem Cliff Burton tók upp. Við ræðum upptökuferlið, tónleikaferðalagið með Ozzy Osbourne auk fróðleiksmola og útúrdúra.
Ride the Lightning kom út árið 1984. Þar fengu Cliff Burton og Kirk Hammett að leggja meira af mörkum í lagasmíðum. Við förum yfir upptökuferlið, ræðum öll lögin og að sjálfsögðu koma einstaka fróðleiksmolar og útúrdúrar.
Kill 'em all kom út árið 1983 og er frumraun þeirra félaga í stúdíóinu. Við ræðum lögin á plötunni, forsögu bandsins ásamt ýmsum öðrum fróðleiksmolum og útúrdúrum.