Discover
Lof mér að tala

Lof mér að tala
Author: Hanna og Kristín
Subscribed: 7Played: 14Subscribe
Share
© Hanna og Kristín
Description
Lof mér að tala eru þættir í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar en þær eru vinkonur og eiga það sameiginlegt að þrífast á athygli annara.
Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu,
með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og viðburði vikunnar og gera það með einstakri nákvæmni. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh… happy…mex.
Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu,
með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og viðburði vikunnar og gera það með einstakri nákvæmni. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh… happy…mex.
13 Episodes
Reverse
Heil og sæl, land og þjóð og verið velkomin í þrettándann.Vá, mikið um að vera og mikið um að ræða! Stelpurnar kryfja Óktoberfest, velta hugtakinu “baddie” fyrir sér og Kristín gerir tilraun til þess að íslenska það. Umræðuefni á borð við bragð bann nikótínvara, fólk sem rekur við á tónleikum og sterk matarlykt koma við sögu. Hinrik og Kristín áttu hvor um sig móment með frægu fólki sem ber að nefna, frétt vikunnar er ekki af verri endanum og lögin sömuleiðis (eða hvað?) Þetta og meira í #letmetalk
12. ÞÁTTUR ER KOMINN Í HÚS OG LÝÐURINN TRYLLIST Stelpurnar hafa frá mörgu að segja eins og svo oft áður. Skemmtiferðaskip, tónleikar á háskólatorgi, tásublæti, möguleg Fifth Harmony endurkoma og Októberfest nálgast. Hinrik og Hanna smökkuðu gonster og segja okkur frá þeirri skemmtilegri reynslu. Kristín býður upp á nýtt tónverk og það má segja að allir verði að hlusta á þann unað. Þetta og meira í #letmetalk
Mætti bjóða yður Gonster?Hanna og Kristín ræða hin ýmsu mál, bæði stór og smá! Karlmenn í hælasokkum, blæti fyrir smökkun orkudrykkja og þemabrúðkaup eru meðal viðfangsefna þáttarins. Kristín skammast sín fyrir lag vikunnar, Hanna kynnir nýjan lið og fan vikunnar er ekki af verri endanum…Ástin er í loftinu eins og svo oft áður og stelpurnar ræða eina ákveðna trúlofun #ástin.
The one where Kristín og Hanna rífast um Iceguys… Velkomin í 10. þátt af lof mér að tala! Stelpurnar hafa aldrei tekið upp jafn kaótískan þátt og endurspegla viðfangsefni þáttarins það svo sannarlega: Októberfest, gymbros, conceptið að eggja fólk og hvernig týpur fara á Iceguys tónleika. Hanna og Kristín spyrja einnig þeirrar mikilvægu spurningu sem hljómar svona: Hvar…. Er…. Patrik Atlasson?
OMG NÝR ÞÁTTUR OG FRÁBÆR GESTUR!!Hanna og Kristín fengu til sín Grímu Valsdóttur, vinkonu og snilling, til að ræða hinar ýmsu vinnur sem þær vinkonur hafa unnið í gegnum tíðina! Störfin eru eins mismunandi eins og þau eru mörg og stelpurnar tala misvel um reynsur sínar i störfunum….Verslunarmannahelgin var rýnd í þaula og stelpurnar segja frá misgáfulegum ákvörðunum sínum yfir helgina. Ljóð vikunnar er af betri kantinum og það mætti segja að enginn maður mætti missa af lestri þess…. Við lofum góðri skemmtun að vana, í þessum 9. þætti Lof mér að tala:))
OMG NÝR ÞÁTTUR!! Í þessum 8. þætti af Lof mér að tala fara stelpurnar um víðan völl. Á meðal viðfangsefna eru mömmur á Facebook, furðuleg viðbrögð Íslendinga þegar þeir heyra í brunabjöllu, hinir ýmsu tónleikar og vægast sagt umdeild samtök….. Sumarbragur er yfir stelpunum og Hanna kemur með hugmyndir fyrir hlustendur um hvað sé hægt að gera um verslunarmannahelgina en Kristin um hvað henni… finnst aðlaðandi? Lofum veislu, eins og alltaf! :))
HVAÐ GERÐIST Á 7 DÖGUM? EKKERT. EN 7. ÞÁTTUR AF LOF MÉR AÐ TALA ER KOMINN ÚT… Því miður komst okkar elskulegi tæknimaður og vinkona, Hinrik, ekki þar sem hann er fyrir norðan að elta veðrið. Í hans stað kom hún Ingibjörg Fía, vinkona og hugsuður. Þátturinn var því ögn kaótískari en venjulega og við afsökum langa bið eftir nýjum þætti... ekki örvænta þó því við lofum veislu. Hver eru umræðuefnin? Jú þau eru alltaf jafn víðfemd: Nýtt JB albúm, hið endalausa eldgos, sundkennsla í grunnskólum og auðvitað kötturinn Diego, svo eitthvað sé nefnt.
WHATS POPPIN? BRAND NEW LOF MÉR AÐ TALA JUST HOPPED IN. Í 6. þætti ræða stelpurnar m.a. Bubba Morthens, kvennaboltann, íslensku sumarkonuna og hina klassísku íslensku útilegu en stelpurnar fóru í eina slíka í Flatey á dögunum. Hanna kynnir einnig inn nýjan lið… Þetta og fleira í #letmetalk
HÆHÆ ÞETTA ER SARA Í JÚNÍK, LOF MÉR AÐ TALA VAR AÐ DROPPA NÝJUM ÞÆTTI! Hanna og Kristín eru alltaf jafn málefnalegar. 10 ár síðan fyrsta serían af SKAM kom út, tónlistarkonan Lorde gaf út nýja plötu í vikunni, íslenska bíómenningin verður skoðuð og greind. Eins og svo oft áður kemur bærinn við sögu en Hanna liggur ekki á skoðunum sínum um American bar, ásamt öðrum menningarlegum stöðum í Reykjavík DownTown. Þetta og meira í #lofméraðtala
Another day, another Lof mér að tala. Kristín er þunglynd en Hanna er til í að ræða um hátíðardaga! Helstu viðfangsefni þáttarins eru eftirfarandi: 17. júní sem concept, barnamyndin ljóta litla lifran, Brynjar Níelsson og fallegar mjóar konur á tánum. Ásamt fleiru.
Tell a friend to tell a friend, the bitch is back!Halló halló, við erum komnar aftur beinustu leið frá Barcelona (borið fram barþelona) og í þetta sinn erum við með gest. Já, hún Una Ragnarsdóttir er hérna með okkur og við förum um víðan völl: Primavera útihátíðin, ógeðsleg hostel á meginlandinu, flugferð frá helvíti og ástartjáning spænskra karlmanna. Vonandi höfum við verið aufúsugestir #takk.
Í þætti vikunnar fögnum við vinkonurnar stórum áfanga í lífi Kristínar. Hin heila þrenning, FM95BLÖ, Taylor Swift og smørrebrød er meðal viðfangsefna þáttarins. Vikan er krufin og lög vikunnar fá að líta dagsins ljós
Hér í fyrsta þætti Lof mér að tala fara Hanna og Kristín um víðan völl. Við ræðum Justin Bieber, áfengisvanda ungmenna á Kirkjubæjarklaustri og hvað Hanna er með ömurlegan tónlistarsmekk. Við segjum orðið „ógeðslegt” rúmlega þrjátíu sinnum og tölum um tengingu okkar við Kaþólsku kirkjuna. Verið öll velkomin og megi Guð blessa ykkur og íslenska forystuféð. Amen.
Comments