Mannflóran

Mannflóran býður uppá ferðalag um fjölmenninguna í íslensku samfélagi. Í þáttunum ræðir Chanel Björk við allskonars fólk um það fallega, það erfiða og það flókna við að búa í samfélagi sem er að taka á sig fjölbreytta mynd. Við heyrum frá fólki af erlendum uppruna, um reynslu þeirra, skoðanir og vangaveltur. Einnig heyrum við frá fólki sem hefur jafnvel engar erlendar rætur, en eru líka með pælingar um fjölmenninguna á Íslandi. Með hverjum þætti mun fylgja pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt verður að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengi

003 Guðný Bjarnadóttir – Mega bara ís­lenskir karl­menn nauðga konum á Ís­landi?

Guðný Bjarnadóttir er stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola og beitir sér fyrir umbótum í lagakerfinu með það að markmiði að bæta réttarstöðu brotaþola. Guðný skrifaði áhugaverðan pistil sem ég las í sumar um ólíku viðbrögðin í samfélaginu eftir því hvort að gerandi sé íslenskur eða af erlendum uppruna. Við ræðum um það hvernig þetta vísar til útlendingaandúðs í samfélaginu og mögulega rótgróna kynbótastefnu í íslensku samfélagi… þó svo að ég vilji ekki trúa því að það sé satt! Viðtalið inniheldur umræðu um kynferðisbrotamál og kynbundið ofbeldi sem gætu vakið óhug. Með hverjum þætti fylgir pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt er að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem er rætt um í þættinum. Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborg, njótið!

10-20
48:35

002 Skúli Isaaq – Mega hvítir strákar nota durag?

Gestur minn í öðrum þætti af hlaðvarpinu Mannflóran er Skúli Isaaq Skúlason Qase. Hann er tónlistarmaður og vesturbæringur en fyrst og fremst sonur móður sinnar. Við Skúli ræddum um móður hans, sem var áhrifarík kona, af sómölskum uppruna, og lét til síns getið á sviði stjórnmála á Íslandi og bauð sig meðal annars fram til Borgarstjórnarkosningar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins árið 1994. Við tölum um tengsl Skúla við Sómalíu, skort á þekkingu á Afrískri sögu og að lokum um tónlist og hip hop menningu – af hverju heldur fólk að allir svartir tónlistarmenn séu rapparar? Mega hvítir strákar nota durag? Mikið af spurningum og vangaveltum… Með hverjum þætti mun fylgja pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt verður að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem er rætt um í þættinum. Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborgar, njótið!

10-13
55:35

001 Kanema Erna – Að ala upp barn með sambískar rætur sem móðir með sambískar rætur

Gestur fyrsta þáttarins er ⁠Kanema Erna⁠, sviðslistahöfundur og móðir ásamt fleiru. Við Kanema þekkjumst ágætlega en fyrstu kynni okkur voru í fyrstu seríu Íslensku Mannflórunnar þegar við áttum hjartnæmt spjall um hár… eða afró hár eins og við erum báðar með. Í þessu spjalli hins vegar, ræddum við Kanema um íslensku og sambísku rætur hennar, og hvaða hlutverk uppruni og reynsla hennar sem svarta konu eða konu af blönduðum uppruna spilar í móðurhlutverkinu hennar. Með hverjum þætti mun fylgja pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt verður að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem er rætt um í þættinum. Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborg, njótið!

10-06
52:38

Recommend Channels