DiscoverMorðcastið
Morðcastið
Claim Ownership

Morðcastið

Author: Unnur Borgþórsdóttir

Subscribed: 6,494Played: 294,612
Share

Description

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum.
Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi.

Til að hafa samband:
mordcastid@gmail.com
instagram.com/mordcastid
twitter.com/mordcastid
241 Episodes
Reverse
Fátt er betra en góð fjölskylda og góðir vinir. Í þætti dagsins koma bæði við sögu, en líka fret fyrir föður, sem er öllu verra. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, GoodGood, Happy Hydrate og Swiss Miss. Mál hefst: 13:35
Góðan daginn, fimmtudaginn. Þáttur dagsins er smekkfullur af hörmungum, ógeði en fyrst og fremst algjöru skilningsleysi. Ungur maður er myrtur af "vinum" sínum, og þeirra útskýringar eru rétt rúmlega hræðilegar.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Good Good og Swiss Miss. Óklipptan þátt má finna á www.pardus.is/mordcastid Mál hefst: 12:40 Þolandi: Brandon Teena Gerandi: Marvin Thomas Nissen og John Lotter
Partýfjör í Santa Barbara snýst upp í algjöra andhverfu sína þegar unglingur sem nennir ekki að rífast við mömmu sína fer í göngutúr. Þátturinn er í boði MFitness, Ristorante, Nettó, GoodGood og Happy Hydrate. Mál hefst: 10:58
Orð dagsins er: Geirvarta

Orð dagsins er: Geirvarta

2024-09-2601:22:52

Enn einn fimmtudagurinn mættur sem færir okkur meiriháttar ógeð. Alltof mörg andlát, alltof mikill viðbjóður og alltof mikil hörmung. Samt á einhvern hátt alltaf mjög áhugavert. Skrítið. Þáttur dagsins er í boði Leksands, Happy Hydrate, Nettó, Ristorante, Sleepy og Good Good. Mál hefst: 12:25, samt svo 15:25 Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Systurnar fokka upp Bókaklúbbnum að nýju. Í þetta skiptið ræða þær bókina Myrkrið milli stjarnanna eftir Hildi Knútsdóttur og skoðanir þeirra voru allskonar. 
Fyrsti þátturinn þar sem Unnur og Bylgja mæta til að fokka upp Bókaklúbbnum. Bókin DJ Bambi eftir Auði Övu Ólafsdóttur var til umræðu og það er óhætt að segja að systurnar voru heillaðar. 
Alltof ung börn fara að prufa alltof hræðilega hluti í þætti dagsins. Staðsetning í tíma og rúmi: New York í áttunni. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, GoodGood og Weetabix. Mál hefst: 9:35
Orð dagsins er: Drulluæta

Orð dagsins er: Drulluæta

2024-09-1201:07:231

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur frá ungri flottri konu sem á framtíðina fyrir sér þegar að ungur drulluspaði hugsar með sér að hún eigi kannski ekki skilið svo góða framtíð. Algjörlega ömurlegt mál og alltof týpískt. Í þættinum má líka heyra mikið tuð og kvart systra yfir ósanngirni heimsins. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Leksands, Nettó, Good Good, Sleepy. Mál hefst: 19:26 Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Skiptinemi, klappstýrukeppni, þjóðgarður og maður sem elskar að vera á berrunni. Fjögur atriði sem ættu kannski ekki endilega að tengjast en gera það sannarlega í þætti dagsins. Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, MFitness, Weetabix og GoodGood. Mál hefst: 5:53
Orð dagsins er: Dans

Orð dagsins er: Dans

2024-08-2901:14:12

Dansa, hvað er betra en að dansa? Í þessum fimmta þætti ágústmánaðar kynnumst við ungri stelpu sem vildi ekkert gera nema dansa. Sem er vel og það hefði verið alveg frábært ef það hefði farið svo.  Einn daginn skilar hún sér ekki úr skólanum og alltof mörgum dögum seinna leysist þetta undarlegasta mál. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Sleepy, Nettó, Good Good, Weetabix, Leksands, Happy Hydrate, og MFitness. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid. Mál hefst: 11:25.
Frelsið er jú yndislegt, en það er spurning hvenær það verður of mikið. Í dag hittum við fyrir mæðgur, í raun í marga ættliði, sem fara misvel með tímann sinn og það endar svo með ósköpum.  Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Weetabix, Sleepy, GoodGood og Happy Hydrate. Mál hefst: 8:24
Orð dagsins er: Bílpróf

Orð dagsins er: Bílpróf

2024-08-1501:00:59

Góðan daginn þennan ágæta fimmtudaginn. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Sleepy Leksands og GOOD GOOD. Í dag fer Unnur enn einu sinni með okkur til Noregs, det er alltid bra. Nema hvað, ung kona verður skotin í strák. Veikur strákur verður skotinn í völdum og alkóhóli. Þetta er alltaf jafn hræðilega sorglegt, alltaf áhugavert og alltaf ömurlegt.  Mál hefst: 1:40.
Orð dagsins er: Ófærð

Orð dagsins er: Ófærð

2024-08-0801:12:21

Það er nú fátt betra en að fá í heimsókn góða gesti. Þegar gestirnir eru hins vegar ekki skemmtilegir, koma ekki með gott nesti og bjóða ekki upp á neina skemtun þá er best að bjóða þeim ekki inn. Ótrúlega leiðinleg heimsókn í krúttlega sambúð fjölskyldu einnar hefur virkilega ömurlegar afleiðingar í dag.  Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Nettó, Ristorante, Sleepy og Weetabix.  Mál hefst: 9:45
Góðan daginn, fimmtudaginn. Við getum vonandi flest verið sammála um það að gott grín er alltaf gott grín, sérstaklega í góðra vina hópi. Þessi þáttur er ekki gott grín. Eiginlega bara samansafn af mjög lélegu gríni og hörmungum. Einn ungur maður leikur daug, spilar leiki, angrar fólk og endar á algjörum hryllingi. Því miður alltaf jafn hræðilegt. Þáttur dagsins er í boði: Weetabix, Sleepy, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og MFitness Mál hefst 10:55
Píanókennari fer að sofa í góðri trú um að vakna aftur næsta dag. Svo var þó ekki og núðlurnar úr eldhússkápnum sáu ekki heldur til sólar. Geta ljóðskáld ekki verið illmenni er líka heimspekileg spurning sem velt er upp.  Hvílíkur fimmtudagur! Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Leksands, Nettó, Ristorante og Sleepy. Mál hefst: 21:38
Orð dagsins er: Sjeik

Orð dagsins er: Sjeik

2024-07-1801:03:06

Góðan daginn, fimmtudaginn. Það er byrjað að rigna á Egilsstöðum og það er akkúrat í takt við þetta ömurlega mál sem Unnur segir frá í dag. Fólk í óhamingjusömu hjónabandi taka margar undarlegar og vondar ákvarðanir sem endar með því að börnin þeirra missa báða foreldra sína. Sorglegt og ömurlegt en alltaf áhugavert, því miður.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Leksands, Happy Hydrate, Sjóvá, Nettó og Sleepy.  Mál hefst: 15:37  
Góðar tryggingar eru gulli betri og það á við í ýmsum aðstæðum.  Í þætti dagsins förum við til Kína þar sem fólk hefði átt að einbeita sér að því að vera almennilegt og gott en ekki algjörir fávitar og sauðir.  Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, MFitness, Happy Hydrate og Weetabix Mál hefst: 15:50
Orð dagsins er: Nunna

Orð dagsins er: Nunna

2024-07-0453:23

Góðan daginn, fimmtudaginn! Líkt og ykkur eflaust grunar þá er þátturinn í dag algjörlega ömurlegur. Vissulega áhugaverður en alveg svakalega sorglegur. Í þætti dagsins fer nefnilega afbrotamaður í göngutúr, því miður, akkúrat á sama tíma og móðir keyrir heim með börnin sín. Hræðileg endalok fyrir alltof mörg. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Weetabix, Sjóvá og Nettó Mál hefst: 13:45 Gerandi: John Ernest Cribb Þolendur: Valda, Sally og Damien Connell, og fleiri.
Orð dagsins er: Bréf

Orð dagsins er: Bréf

2024-06-2753:02

Í dag tók ungur maður upp penna og blað sem hefði betur setið sem fastast á höndunum á sér, bæði fyrr og síðar. Tvær systur, nýnasisti, grunlaus stjúpfaðir og of margir hnífar. Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, Sjóvá og Sleepy. Mál hefst:
Góðan daginn þennan fallega afmælisfimmtudaginn! þátturinn í dag er jafn hræðilegur og venjulega og það er í raun eins og við höfum tekið þetta mál fyrir áður. Staðreyndin er hinsvegar sú að þetta er bara alltof algengt og við höfum heyrt svona sögur alltof oft, því miður. Í dag segjum við sögu sálfræðinemanda. Hún tekur síðasta próf námsins, neglir það, fagnar, og síðan ekki söguna meir.  Algjör og innileg hörmung. Þáttur dagsins er í boði Sleepy, Ristorante, Happy Hydrate og Nettó. Mál hefst: 8:20 Þolandi: Hannah Wilson, gerandi: Daniel Messel
loading
Comments (2)

OBF1

Unnur og Bylgja, ykkar er sárt saknað💖 Fimmtudagar eru bara venjulegir núna🥺 Ég skil vel að þið þurfið smá frí.... og að það eru bara komnar 2-3 vikur... EN vá.... it feels like months and months? Þið eruð frábærar!💖

Jun 26th
Reply

Kristjana Ragnarsdóttir

það er svo skrýtið þegar þið eruð að hlæja í tíma og ótíma af hræðilegu atburðum

Jul 26th
Reply