DiscoverSöguskoðun
Söguskoðun
Claim Ownership

Söguskoðun

Author: Söguskoðun hlaðvarp

Subscribed: 121Played: 4,604
Share

Description

Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum. 
96 Episodes
Reverse
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur keltneska kristni, eða írsku miðaldakirkjuna og hugmyndir manna um möguleg áhrif hennar á Íslandi á landnámsöld.Oft hefur því verið haldið fram að keltnesk kristni hafi verið sérstök og frábrugðin öðrum hlutum kristindómsins á ármiðöldum. Írska kirkjan er kölluð klausturkirkja, þar sem ábótar höfðu meiri völd á kostnað biskupa og þar með kaþólsku kirkjunnar í Róm. Írska kirkjan er sögð sjálfstæð og frumleg og má sjá einkenni hennar t.d. í stórum hluta ein...
Hlaðvarpsmenn komu saman í dag til að ræða áfallastreituröskun (PTSD) og hugmyndasögulegan bakgrunn þess fyrirbæris í tengslum við hernað, og önnur tengd málefni.Í heimildum koma fyrir frásagnir af hegðun í tenglsum við hernað sem fræðimenn vilja stundum tengja við áfallastreituröskun og aðra nútímakvilla. Einnig má nefna heimþrá, nostalgíu, dansveiki, tunglsýki og suð-austur-asískar púkaofsóknir sem dæmi um einkenni sem kunna að hafa verið andlegir sjúkdómar samkvæmt okkar daga skilgreiningu...
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um íslensku kommúnistahreyfinguna á millistríðsárunum og Kommúnistaflokk Íslands. Eftir að hreyfing sósíalista á heimsvísu klofnaði í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar og rússnesku byltingarinnar störfuðu sovéthollir byltingarsinnar á Íslandi innan Alþýðuflokksins á 3. áratugnum. Árið 1930 var Kommúnistaflokkurinn stofnaður, en hann var deild i Alþjóðasambandi kommúnista sem hafði miðstöð sína í Moskvu. Kommúnistaflokkurinn sameinaðist klofningsbrot...
Þátturinn byrjar á 53. mínútu.Söguskoðunarmenn snúa aftur eftir sumarið til að taka gott spjall um nýlendur Englendinga og Frakka í Norður-Ameríku á síðari hluta 18. aldar. Englendingar komu á fót nýlendum sínum þrettán meðfram austurströnd Norður-Ameríku á 17. öld. Frakkar settu á stofn gríðarstóra nýlendu meðfram Mississippifljóti frá Louisiana í suðri, og í norðri á því svæði sem í dag er Quebec.Árin 1754-1763 var háð mikið nýlendustríð á milli Frakka og Englendinga, sem varð til þess...
90 - Sól og sagnfræði

90 - Sól og sagnfræði

2024-07-0501:11:38

Í síðasta þætti hlaðvarpsins fyrir sumarfrí ræðum við um sagnfræði, herinn, hlaðvörp, bækur og fleira og fleira.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.
Andri og Ólafur komu saman til að ræða um Júgóslavíu sem sögulegt fyrirbrigði, stofnun hennar og fyrstu áratugi þess ríkis 1918-1941.Júgóslavía (Konungsríki Serba, Króata og Slóvena) varð til 1. desember 1918 við samruna Serbíu, Svartfjallalands, og suður-slavnesku landsvæðanna sem áður höfðu tilheyrt Austurríki-Ungverjalandi, Króatíu, Slóveníu og Bosníu. Ríkið var afleiðing Friðarráðstefnunnar í París, og Serbía var eitt af sigurvegararíkjum fyrri heimsstyrjaldar.Júgóslavismi sem þjóðernishy...
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um síðustu ár Austurríkis-Ungverjalands og þáttöku þess í fyrri heimsstyrjöld. Austurríki-Ungverjaland var eitt þeirra gömlu keisaradæma sem féll eftir stríðið mikla 1914-1918, og tvístraðist í hin ýmsu þjóðríki. Fyrri heimsstyrjöld hófst þegar Austurríki-Ungverjaland lýsti yfir stríði gegn Serbíu eftir morðið á austurríska ríkiserfingjanum Franz Ferdinand í Sarajevo í júní 1914. Austurríki leið gríðarlega ósigra á vígstöðvunum í Galisíu gegn Rússum ...
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um J. Robert Oppenheimer og fæðingu kjarnorskusprengjunnar Ólafur las bókina American Prometheus: The Triumph and Tragedy of J. Robert Oppenheimer eftir Kai Bird and Martin J. Sherwin en eftir henni var gerð kvikmynd um vísindamanninn með sínar ýmsu hliðar sem fékk mikla athygli á síðasta ári.Kjarnorkusprengjan var afrakstur rannsókna vísindamanna frá mörgum löndum og í stríðinu voru öll helstu stórveldin með einhverskonar kjarnorkuverkefni í gangi. Það v...
86 - Konstantínus mikli

86 - Konstantínus mikli

2024-05-0301:32:39

Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn rómarkeisarann Konstantínus I, sem er einn þeirra sem fengið hafa nafnbótina hinn mikli. Konstantínus ruddist til valda í Rómaveldi árið 306 eftir talsvert valdabrölt innan fjórveldisins sem Díókletíanus kom á laggirnar eftir þriðju aldar kreppuna. Hann varð einvaldur árið 324 og ríkti sem slíkur í 19 ár. Var hann þaulsetnasti rómarkeisarinn á eftir Ágústusi. Konstantínus hélt áfram umbótum Díokletíanusar og kom á stöðuleika í nokkur ár. Umgjör...
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögu Rómverska keisaradæmisins á 3. öld e. kr. en þá geisaði hin svonefnda þriðju aldar kreppa, sem varð ríkinu næstum að falli.Rómaveldi þanndist talsvert út á öldunum í kringum kristsburð. Fyrstu tvær aldir keisaradæmisins eru stundum talin gullöld ríkisins, en á 3. öldinni virtist allt ætla að fara á versta veg fyrir Rómverja. Á "tímabili herkeisaranna" var veldið þjakað af innbyrðis deilum, mjög svo óstöðugum valdaskiptum, klofningi ríkisins, innrásum...
84 - Reconquista

84 - Reconquista

2024-03-0858:36

Í framhaldi af umræðum okkar um Al-Andalus ræðum við í þættinum í dag um "endurheimtina", eða reconquista, þegar kristnu ríkin á Íberíuskaga endurheimtu land Vísigota úr höndum múslíma. Reconquista var ekki eitt stríð, heldur aldalöng hægfara barátta - af og á - á milli hinna ýmsu ríkja múslíma og kristnu konungsríkjanna, Astúrías, Navarra, Kastillíu, Aragon, León og Portúgals. Endurheimtin var oft vettvangur krossferða, einn fárra staða þar sem slíkur hernaður hafði varanlegan ávinnin...
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur veldi múslima á Spáni 711-1492. Á 7. og 8. öld breiddist íslam leiftursnökkt út frá Arabíu í allar áttir. Árið 711 féll ríki Vísigota á Íberíuskaga fyrir Aröbum og Berbum frá Norður-Afríku, og á nokkrum árum lögðu múslimar nánast allan skagann undir sig. Ríki múslima á Spáni var kallað Al-Andalús. Það var hluti av heimsveldi Umayyada, um tíma sjálfstætt emírdæmi og kalífadæmi. Höfuðborgin Cordoba var blómleg heimsborg, sem iðaði af verslun og me...
Þátturinn byrjar á 7. mínútu.Í framhaldi af umræðum okkar um Rauða krossinn ræða Söguskoðunarmenn í dag um málefni tengd Genfarsáttmálanum og öðrum alþjóðareglum sem gilda í stríði. Menn hafa frá örófi alda reynt að hafa einhverjar hömlur á framgangi hernaðar. Í Evrópu á fornöld og á miðöldum þróaðist kenningin um réttlátt stríð, en á 19. og 20. öld urðu til umfangsmiklar alþjóðareglur um stríð og frið, um mannréttindi, og um viðurlög stríðsglæpa. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hé...
81 - Rauði krossinn

81 - Rauði krossinn

2024-02-0901:18:00

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögu Rauða krossins, frá stofnun hans árið 1863 og fram á miðja 20. öld, en á þessu ári eru einmitt 100 ár síðan landsdeild Rauða krossins á Íslandi var stofnuð í desember 1924. Rauði krossinn er ein stærstu mannúðarsamtök heims með starfsemi öllum ríkjum heims. Höfuðstöðvar alþjóðahreyfingar Rauða krossins hafa alltaf verið í Genf í Sviss, en Alþjóðaráð Rauða krossins og Rauða hálfmánans nýtur sérstakrar stöðu í heiminum, vernduð af alþjóðalö...
80 - Gítarþátturinn

80 - Gítarþátturinn

2024-01-2601:02:35

Í tilefni af 80. þætti hlaðvarpsins bregðum við út af vananum og ræðum eitthvað allt, allt annað...Við kynnum einnig til leiks nýja vefsíðu þáttarins: Soguskodun.com. Söguskoðun er einnig á Facebook , og á Youtube. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.
Ólafur og Andri settust niður til að ræða þrjú íslömsk ríki á árnýjöld; Ottómanaríkið, Safavídaríkið í Persíu og Mógúlaríkið á Indlandi, sem stundum hafa verið flokkuð til hinna svokölluðu "púðurvelda", eða gunpowder empires. Hugtakið er eignað bandarísku heimssögusagnfræðingunum Marshall Hodgson og William McNiell, en þá var vísað til ýmissa þátta sem þessi þrjú ríki áttu sameiginlega, og til þess að þau risu fram sem öflug miðstýrð ríki á persneskum, tyrkískum og íslömskum grunni á öld...
Andri og Ólafur ræða í þessum þætti gang og afleiðingar Krímstríðsins 1853-1856 milli Rússa annars vegar og Frakka, Breta, Tyrkja og Sardiníumanna hins vegar. Krímstríðið var fyrsta styrjöldin sem háð var á milli evrópsku stórveldanna eftir Vínarfundinn 1815. Hún var einnig fyrsta stórveldastríðið í Evrópu eftir að iðnbyltingin hóf innreið sína með tilheyrandi tækninýjungum. Þetta var svo að segja fyrsta stríðið sem fékk daglega athygli fjölmiðla heimafyrir, og í fyrsta sinn sem beint va...
Þátturinn byrjar á 18 mínútu.Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur aðdraganda Krímstríðsins 1853-1856 og hið pólitíska landslag Vínarfundarins í Evrópu sem komið var á laggirnar 1815 þegar Napóleon var yfirbugaður. Styrjöldin var háð á milli Rússneska keisaradæmisins og bandalags Frakka, Breta, Sardiníumanna og Tyrkja, en hún batt enda á áratuga langt friðartímabil í Evrópu sem kennt hefur verið við evrópska konsertinn, eða "evrópsku hljómkviðuna". Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast h...
Í tilefni jólanna komu Söguskoðunarmenn saman til að ræða Jesú Jósefsson frá Nasaret, en hann fæddist (samkvæmt vestrænni hefð) á þessum degi fyrir 2727 árum, nánar tiltekið árið u.þ.b. 4 fyrir okkar tímatal. Ólafur setti upp guðfræðingagleraugun og fór yfir helstu atriði um hinn sögulega Jesú í tilefni dagsins.Eins eins og flestir vita var Jesús krossfestur árið c.a. 30, og eftir hans dag varð til stór trúarhreyfing sem er í dag ein útbreiddustu trúarbrögð heims. En var hann til? Og hvaða he...
Þátturinn byrjar á 24 mínútu. Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Austurríkis á árunum milli stríða, 1918-1938. Austurríki-Ungverjaland var 50 milljón manna fjölmenningarríki sem hrundi eftir fyrri heimsstyrjöld, þjakað af þjóðernisdeilum. Árið 1918 var hið nýja Austurríki 6 milljón manna smáríki með ofvaxna höfuðborg, og glímdi við pólitiskan óróa og efnahagsörðugleika. Árið 1934 var komið á rammkaþólskri einræðistjórn í Austurríki undir Engilbert Dollfuss, sem var myrtur...
loading