DiscoverUndirmannaðar
Undirmannaðar
Claim Ownership

Undirmannaðar

Author: Undirmannaðar

Subscribed: 653Played: 9,773
Share

Description

Þrjár tvíburamæður með munnræpu.
Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.
110 Episodes
Reverse
Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann✨Mist og co.🧡 Serrano🤝🏻 Giggó
💛Gulur september er mánuður vitundarvakningar um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir💛 Viðmælandi vikunnar er Gunnhildur Gunnarsdóttir, tvíburamamma. Í þættinum ræðum við óvænta tvíburameðgöngu eftir aðstoð hormónameðferðar, krefjandi fyrstu vikur meðgöngunnar, fæðingu tvíburanna og afar erfið og átakanleg andleg veikindi, skaðandi hugsanir og sjálfsvígshugsanir.Okkur langar að þakka Gunnhildi innilega fyrir að treysta okkur fyrir sögunni sinni og sömuleiðis hrósa henni fyrir hugrekkið og einlægnina. Við trúum því og vonum að efni þáttarins opni á mjög þarfa og mikilvæga umræðu og auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Finnir þú fyrir tilfinningalegum sársauka, ert með sjálfsvígshugsanir og/eða sjálfsskaða ráðleggjum við þér eindregið að snúa þér til Píeta samtakanna. Sömuleiðis ef þú ert aðstandandi einstaklings í tilfinningalegu ójafnvægi, með sjálfsvígshugsanir og/eða sjálfsskaða hugsanir.Píeta samtökin reka hjálparsíma allan sólarhringinn, alla daga ársins. Símanúmerið er 552-2218. Ráðgjafar veita öllum þeim sem hringja ráðgjöf, bóka í viðtal eða vísa í önnur úrræði, sé þess þörf. Píeta veitir meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu eða sjálfsskaða og stuðning við aðstandendur þeirra og aðstandendur sem hafa misst. Þjónustan er fyrir 18 ára og eldri og er gjaldfrjáls.Verum góð hvert við annað 💛Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💙 Sjóvá💦 Happy Hydrate❤️ World Class🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann✨Mist og co.🧡 Serrano🤝🏻 Giggó
Þátturinn er í samstarfi við: 💙 Nettó & Änglamark 💦 Happy Hydrate ❤️ World Class 🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann ✨Mist og co.🤝🏻 Giggó
Viðmælandi vikunnar er Birna Dís, þriggja barna móðir, eiginkona, mömmuþjálfari og fyrirtækja eigandi. Birna fór með okkur yfir mömmuþjálfunina, hvernig hún kynntist Jakobi, krefjandi fæðingar, veikindi dóttur sinnar, lífið og tilveruna.Þátturinn er í samstarfi við: 💙 Nettó & Änglamark 💦 Happy Hydrate ❤️ World Class 🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann ✨Mist og co.🤝🏻 Giggó
Viðmælandi vikunnar er Heiða Mist, einstök móðir og kraftlyftingarkona. Heiða var ansi ung að aldri þegar hún komst að því að hún myndi eiga í erfiðleikum með að eignast barn og að tímaramminn væri stuttur. Heiða ákvað því að taka málin í sínar hendur og taka þá stóru og yndislegu ákvörðun að verða einstök móðir. Hún segir okkur frá ferlinu, krefjandi fæðingu og fyrstu mánuðunum með dóttur sinni.Þátturinn er í samstarfi við: 💙 Nettó & Änglamark 💦 Happy Hydrate ❤️ World Class 🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann 🤝🏻 Giggó
Undirmannaðar 2 ára – AfmælispartýMiðasalan er hafin á Tix.is!Tvö ár, yfir hundrað þættir, mikið hlegið og eitt mjög verðskuldað afmælispartý! Komdu og fagnaðu með okkur í Sykursalnum með pomp og prakt 20. september!Viðmælandi vikunnar er Guðrún Sortveit, tveggja barna móðir og í fullu starfi á samfélagsmiðlum. Guðrún og Steinar byrjuðu saman á yngri árum og hafa því verið lengi saman. Þeirra fyrsta þungun var utanlegsfóstur sem endaði með aðgerð. Í kjölfarið eignuðust þau börnin sín, Áslaugu og Jökul með tæplega 3 ára millibili. Í þættinum ræðum við utanlegsfóstrið, aðgerðina, meðgöngurnar og fæðingarnar, erfiðar fyrstu vikurnar með börnin og þær tilfinningar sem fylgja ásamt því að ræða hvernig er að tvinna saman fjölskyldu og atvinnu. Við fórum um víðan völl og vonum innilega að umræður þáttarins hjálpi þeim sem upplifa eins tilfinningar Þátturinn er í samstarfi við: 💙 Nettó & Änglamark 💦 Happy Hydrate ❤️ World Class 🎉 Rent-A-Party🩵 Landsbankann 🤝🏻 Giggó
Viðmælandi vikunnar er Daniel Victor, faðir og vélvirki. Daniel sagði okkur frá erfiðri reynslu á einlægan hátt en hann og Jónína gengu í gegnum erfiða reynslu þegar þau misstu barnið sitt á 20 viku meðgöngu. Daniel fór yfir allt ferlið, tilfinningarnar og hvað það er mikilvægt að ræða hlutina og vera opinn með eigin tilfinningar. Hvetur hann sérstaklega karlmenn til þess að vera það óhræddir að sýna eigin tilfinningar og tjá þær. Þátturinn er í samstarfi við:💙 Nettó & Änglamark💦 Happy Hydrate🌱 HIPP🩵 Landsbankann🎉 Rent-A-Party🤝🏻 Giggó💗 Bellissimo
Þátturinn er í samstarfi við:💙 Nettó & Änglamark💦 Happy Hydrate🌱 HIPP🩵 Landsbankann🎉 Rent-A-Party🤝🏻 Giggó💗 Bellissimo
Þátturinn er í samstarfi við:💙 Nettó & Änglamark💦 Happy Hydrate🌱 HIPP🩵 Landsbankann🎉 Rent-A-Party🤝🏻 Giggó💗 Bellissimo
HALLÓ HALLÓ ÞÁTTUR 100 🍸🪩💋Viðmælandi vikunnar er Anetta Eik, þreföld strákamamma, hársnyrtir & content creator.Við fórum um víðan völl en Anetta á að baki þrjár mjög ólíkar meðgöngur og fæðingar. Í þættinum segir hún okkur einnig frá lífinu sem foreldri barns með sykursýki en elsti sonur þeirra greindist með sykursýki 1, tæplega 2 ára, eftir erfið veikindi. Við lærðum ótrúlega mikið og vonum að sagan þeirra hjálpi einhverjum!Þátturinn er í samstarfi við:💙 Nettó & Änglamark💦 Happy Hydrate🌱 HIPP🩵 Landsbankann🎉 Rent-A-Party🤝🏻 Giggó💗 Bellissimo
Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Rentaparty.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Viðmælandi vikunnar er Steinunn Camilla, tveggja barna móðir, fyrirtækja eigandi og fyrrum söngkona í Nylon. Við ræddum allt milli himins og jarðar í þættinum, meðgöngur, fæðingar, lífið í LA, Nylon og hvað það er sem skiptir raunverulega máli í þessu lífi <3Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Rentaparty.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Viðmælandi vikunnar er Þórdís Imsland, tveggja barna móðir, söngvari, nuddari og starfar á tannlæknastofu í barnateymi. Þórdís og Sigurjón fóru aðeins út fyrir rammann þegar þau eignuðust börnin sín tvö. Hún segir okkur frá því hvernig er að eignast og ala upp börn með vini sínum og hvernig ferli þau ákváðu sjálf að fara í til að taka þessa stóru og aðdáunarverðu ákvörðun.Þau eru algjörlega til fyrirmyndar í þeirra samstarfi sem foreldrar og við mælum bara með að hækka í græjunum og njóta!Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Minirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Viðmælandi vikunnar er Auður Finnbogadóttir, tveggja barna móðir, leikari, söngvari og fyrirtækja eigandi, svo eitthvað sé nefnt. Þátturinn er allur tilfinningaskalinn. Auður segir okkur frá því hvernig hún og Jonni kynnast, þegar hún flytur til LA í leiklistaskóla, flutningunum heim, barneignum, veikindum Ebbu Kristínar, fyrirhugaðri brúðkaupsveislu í sumar og lífinu sem leikari. Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Minirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Viðmælandi vikunnar er Ingibjörg Freyja, þroskaþjálfi og tvíburamamma. Freyja og Sigurður þurftu aðstoð til þess að verða ólétt. Þau enda í smásjárfróvgun sem gekk vel og komast svo að því að þau eigi von á eineggja tvíburum. Lífið tók hins vegar snarpa u-beygju á meðgöngunni og þau stóðu frammi fyrir ákvörðun sem ekkert foreldri á að þurfa að taka. Við vekjum athygli á því að í þættinum ræðum við barnsmissi á meðgöngu. Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadarMinirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
VIðmælandi vikunnar er Birta Líf, tveggja barna móðir, hlaðvarpsstjórnandi og markaðsfræðingur. Birta sagði okkur frá því þegar hún flutti erlendis í háskólanám, meðgöngum, fæðingum og foreldrahlutverkinu. Svo fengum við auðvitað sjóðandi heitt slúður!Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadarMinirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Viðmælandi vikunnar er Harpa Káradóttir, þriggja barna móðir, tvíburamamma og förðunarfræðingur. Harpa og Gummi komust að því á 7 viku að um eineggja tvíbura væri að ræða og því tók við mikið eftirlit. Við fórum yfir krefjandi tíma á meðgöngunni, lífið með tvíbura, svefnleysið, ástina og kaosið sem þessu hlutverki fylgir. Harpa sagði okkur einnig frá ferlinum sem förðunarfræðingur, fyrirtækjarekstri og skemmtilegum verkefnum sem hún hefur tekið að sér eða skipulagt.Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadarMinirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Viðmælandi vikunnar er María líf, förðunar- og naglafræðingur og verðandi þriggja barna móðir á 2,5 ári!Hún sagði okkur frá meðgöngunum, fæðingunum og alvarlegum veikindum í kjölfar fyrstu fæðingar þar sem hún endaði á gjörgæslu. María er með ótrúlegt hugarfar og það er áðdáunarvert að fylgjast með henni!Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is Minirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Viðmælendur vikunnar eru þau Hrafnhildur Ylfa og Guðjón Ólafsson. Þau eiga saman þrjú börn, 9 ára strák og tvíbura stelpur fæddar árið 2022. Það var heldur betur farið um víðan völl í spjallinu enda margt til að ræða og þau hjón opin og skemmtileg með hlutina! En við ræddum m.a. hvernig þau kynnast, meðgöngurnar, fæðingarnar, flutninga til Svíþjóðar, lífið með fjölbura, hreyfingu og mikilvægi góðs baklands.Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadarMinirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Gleðilegt sumar kæru hlustendur <3Þáttur vikunnar er með Katrínu Sif, margra barna móður og heimafæðingarljósmóður. Katrín er með alveg einstaka nærveru og var yndislegt að fá að fræðast og spjalla við hana um leiðina hennar að því að verða hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og loks heimafæðingarljósmóðir. Hún svaraði hinum ýmsu spurningum og við veltum þó nokkrum og mikilvægum steinum.Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & ÄnglamarkAbcskolavorur.is / afsláttarkóði: undirmannadarLandsbankinn.isHappyhydrate.isHIPP.com/hipp-worldwide/europe/iceland/Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadarMinirent.isEasycheese.is / afsláttarkóði: undirmannadar
loading
Comments