DiscoverÞungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn
Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn
Claim Ownership

Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

Author: Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson

Subscribed: 37Played: 555
Share

Description

Birkir Fjalar og Smári Tarfur láta móðinn mása um þungarokk frá ýmsum sjónarhornum.
44 Episodes
Reverse
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:"Eru þið með þriggja tíma þátt um band sem er no-name?"-Áhyggjufullur Sigvaldi ÁstríðarsonÓ já! Við hefðum getað talað í a.m.k. níu klukkustundir um þau 22 lög sem Brooklyn tríóið TIDAL ARMS (hugvekjan um þá hefst 49:04mín inn í þættinum) gaf mannkyninu á plötum sínum tveimur; The Sun Exploding (2011) og þeirri samnefndu (2013). Hins vegar trúa Hörður Ólafsson og Birkir Fjalar því að TIDAL ARMS hafi samið, flutt og gefið þessi lög úr sérstaklega fyrir þá tvo. Var heimurinn heyrnalaus eða Stokkið í eldinn menn með ofheyrn? Aðeins Guð veit svarið. En þáttarstjórnendur reyna þó að svara fyrir sig.En það er meira á boðstólnum.Meðal annars...-Gunnar Goodboy Ingi Jones býður sjálfum sér í þáttinn til að tala um metalcore (?)-Góðvinur þáttarins fær óvænt símtal í beinni og þarf að svara samviskuspurningu sem brunnið hefur á Birki árum sama-Hörður grefur út óútgefnar MOMENTUM upptökur frá árinu 2006!-Fred Durst, stúlka nokkur og LIMP BIZKIT græta Birki-Höddi og Birkir ræða þátt sinn í kvikmyndinni MÝRIN sem bygð var á samnenfdri skáldsögnu Arnalds Indriðarsonar-Birkir og GAVIN PORTLAND-Undrið er nefnt var TIDAL ARMS Tónlist í þættinum;MOMENTUM - Aeon Awakes (tónleikabútur frá 2006) GAVIN PORTLAND - Of Milestones (Hand In Hand With Traitors, Back To Back With 2010) MARTIN OG INGUNN - Goodbye (óútgefið 2025)Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram. Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Það hlaut að koma að nýjum neyðarþætti. Fyrir honum er ástæðan ærin; nýtt frá stórlöxunum og goðsögnunum í TESTAMENT! Para Bellum kom út fyrir rúmum mánuði og er þeirra þrettánda hljóðversplata (við teljum The First Strike is Still Deadly ekki með).Síðast er neyðin var nægilega mikil var það vegna útspils DEICIDE Banished By Sin. Hvernig kom TESTAMENT úr þessari analísu Harðar Ólafssonar og Birkis Fjalars? Hversu mikið eða lítið hangar á spítunni? Eiga menn erindi? Hlustið. En vitið að greiningin á hverju lagi fyrir sig og plötunni í heild sinni byrjar eftir rúmar 50 mínútur af gírunarmokstri þáttarstjórnenda.Tónlist í þættinum;AFTURGANGA - Nafnlaust (Óútgefið, heimabrugg 2025) Leynifélags frumflutningurINFECTED - Lag nr. 5 (Inhuman Atrocities demó ártal?) 029. TESTAMENT; The Legacy og New Order m. Kristjáni B. Heiðarssyni (Changer, Vetur, Drungi, Skurk)Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúr upplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram. Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Þá er komið af því. Smári Tarfur Jóspesson er komin á sína stoppistöð á leið Stokkið í eldinn sporvagnsins. Aldarvinur Birkis, Hörður Ólafsson mynd- og tónlistarmaður (MOMENTUM) stígur um borð. Þið megið gjarnan bjóða hann velkominn!Betra gat það ekki verið því Tarfurinn hefur miklar mætur á Herði og svo hef ég (Birkir) átt í djúpu og löngu (Type O Negative skírskotun) vina- og nördasambandi við manninn sem teygir sig langt aftur í fortíðina. Ég hef líka aldrei komið að tómum kofanum hjá Herði og gildir einu hvort við erum sammála um tónlist og lífið; þá er alltaf gaman að fara ofan í kjölin á málunum. Og ég veit að þið, hlustendur Stokkið í eldinn, munið njóta góðs af þessum ráðhag. Framtíðin er björt, áfram gakk og áfram þungarokk líkt og Breytarinn segir gjarnan.Í þessum þætti talar Hörður um sín fyrstu skref í þungarokkinu, MOMENTUM koma við sögu svo eitthvað sé nefnt. Smári Tarfur er síðan í einhversskonar PATRONIAN viðtali og við græðum hressilega er hann laumar að okkur nýjum upptökum frá vestfirsku dauðarokkssveitinni knáu sem lék einmitt nýverið, á sínum fyrstu tónleikum, á Grundafirði.Leikar æsast síðan þegar MEGADETH og Múrsteininn ber á góma.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Tónlist í þættinum;PATRONIAN - The Great Western Friendkill  (Óútgefið, tónleikar í Grundarfirði 2025)PATRONIAN - Stabbed With Steel (Óútgefið, tónleikar í Grundarfirði 2025)Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúr upplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram. Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf  
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Ja hérna hér. Stundum getur maður ekki orða bundist. Eins og núna. Hvað gerist þegar þrír æskuvinir (Björn Stefánsson, Bóas Hallgrímsson og Birkir Fjalar Viðarsson) blása til endurfundar hvar uppáhalds plötur þeirra og saga vináttunnar liggja til grundvallar? Hversu mikilvæg er tónlistin þeim? Er hún samofin stórum stundum í lífi þeirra? Breytti hún lífi þeirra? Hvað leysist úr læðingi þegar feður á fimmtugsaldri, hoknir af tónlistarreynslu ræsa hvern endurheimtarvísbendin a fætur öðrum. Hvers á Kiddi Crowley að gjalda?Bjéin þrjú; Birkir, Bóas og Bjössi opna á flóðgáttirnar og láta sig gossa niður vatnsrennibrautir fortíðar í samtali, sem átti upphaflega að vera einhversskonar djúpköfun í plötur DEFTONES; Adrenaline (1995) og Around The Fur (1997), en endaði í safaríkri sögustund. Kristinn Reyr vill meina að svo sé. Og það er rétt, Birkir fór línuvilt (svissaði óvart plötum) þegar hann las upp einkunnagjöf sína á lögum Deftones. Geri önnur betur.Sérstakar þakkir fær Tommi tásulása og X977.Þessi þáttur var gerður í samstarfi við MÁLMSMIÐJUNA. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúr upplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Birkir frændi og Kiddi Málmsmiðju Crowley glöddust mjög er skapara og skipuleggjendur FUZZFEST tónleikaviðburðarins mættu og leiddu stjórnendur þáttarins inn í sannleikan um tilurð og lífsseiglu Fuzzfest og hvers vegna skipuleggjendur standa í þessu. Kemur upp úr dúrnum að það er heilmikið að gera í Íslenska stóner - eyðimerku - doom - og sludgejukkinu. Alveg heilmikið!Tónlist í þættinum;SLEEPING GIANT - Concueror af Netskífa (Sjálfútgefið 2025)AT BREAKPOINT - Pain af Let Your Demons Run (702063 Records DK 2020)Sérstakar þakkir fær Tommi tásulása og X977.Þessi þáttur var gerður í samstarfi við MÁLMSMIÐJUNA.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Birkir frændi og Kiddi Málmsmiðju Crowley settust niður með Húsvíkingnum næma, Jóhanni Hermannssyni, og ræddu hvernig áhrif Tomas Lindberg hafði á okkur og þá sérstaklega þegar við vorum mun yngri menn. Einnig var slegið á þráðinn til Guðnýju Thorarensen og Stefáns Magnússonar sem bæði höfðu afskipti af goðsögninni þegar AT THE GATES ferðuðust í Neskaupsstað til að spila fyrir landann árið 2013.Birkir var viðkvæmur og ofgíraður en Kristinn Reyr kjarnaði hann eins mikið og mátti vera. Minningarnar flæddu, tilfinningar slettust upp um alla veggi í einhverskonar samtón sem gat bara náðst út á landsbyggðinni, internetlausari, og AT THE GATES upp á sitt hráasta.Sérstakar þakkir fá Tommi tásulása og X977.Þessi þáttur var gerður í samstarfi við MÁLMSMIÐJUNA.Tónlist í þættinum;GAMLI - Fæðir af Netskífa (Sjálfútgefið 2021)STRIGASKÓR NR. 42 - Adanac af Armadillo (Sjálfútgefið 2013)Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Birkir frændi og Kiddi Málmsmiðju Crowley slógu á þráðinn til Egils Óskars Rústafólkssyni til að fylgja eftir viðtali sem við áttum við hann og vopnabróðir hans, Júlíus Gretti Bernsdorf, og fengum fréttir af #strákunum okkar beint í æð. Þeir hafa undanfarnar vikur verið í hnífaparís við krakkana í PANTERA ásamt því að koma fram með Svíunum knáu, og Íslandsvinum, AMON AMARTH.Til að hlusta á og fræðast um fyrsta þáttinn, tilurð hans, og upphaf Egils og Júlíusar (ef svo má segja) og fleira; smellið HÉR....Og voru Birkir og Kiddi Crowley (MÁLMSMIÐJAN) skólaðir? Þið getið rétt ímyndað ykkur.Sérstakar þakkir fá Tommi tásulása og X977.Egill Óskar Gíslason (NYRST, ex-Skuggsjá) og Júlíus Grettir Bernsdorf (MJÖLNIR MMA). Báðir vinna þeir fyrir ICELANDIC STUNTS.Þessi þáttur var gerður í samstarfi við Málmsmiðjuna.Tónlist í þættinum;SPACEVÖLVA - Dijon&Dragons af Netskífa (Sjálfútgefið 2024)NYRST - Eilíft eldhaf af Völd (Dark Essence Records 2023)Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í eldinn er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:NORÐANPAUNK 2025 fer senn í hönd og við fögnuð. Hátíðin á 10 ára afmæli!  Við fögnum því. Við fögnuð litríkustu hátíð landsins. Við fögnum ófyrirsjáanlegustu hátíð landsins. Við fögnum fjölbreytileikanum. Við fögnum manngæskunni og villimennskunni - frumkraftinum og frjóseminni sem mætist í stríðum straumum ár hvert á Norðanpaunki.Ólöf Rún Benediktsdóttir og Ægir Freyr Birgisson, úr skipulagningarjukki Norðanpaunks mættu til Birkis og Kidda "Málmsmiðju" Crowley og létu gáminn gossa um allt sem tengist hátíðinni, spekinni á bak við hana, gildi, tilgang og markmið hennar og hvað það er sem gerir hana einstaka. Það var ýmislegt rifjjað upp og þáttastjórnendur fengu dýrmæta og skemmtilega innsýn inn í gangverk og sál hátíðarinnar. Við fögnum! Norðanpaunk hefur fyrir löngu sannað mikilvægi sitt og við skulum fagna með því að mæta á hátíðina og vera hluti af þessu litla kraftaverki.NORÐANPAUNK er D.I.Y. pönkhátíð sem fram fer 1. til 3. ágúst 2025 á Laugarbakki (steinsnar frá Hvammstanga) Vestur Húnavatnasýslu.Tónlist í þættinum:GUBBA HORI - Drepa bíl af Gubb að voriGÓÐxÆRI - Stéttasvikari ft. GRÓA af Hótel BorganesÞið megið gjarnan íhuga að gefa hlaðvarpinu stjörnu/einkun/umsögn í ykkar hlaðvarpsveitum og segja vinum frá Stokkið í eldinn. Takk.Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúla 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Luxor!Stokkið í eldinn er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfVið minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook!    
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Austur á fjörðum mallar eitthvað alveg einstakt. Hljómsveitin CHÖGMA úr Fjarðabyggð (nánar tiltekið Neskaupsstað, Stöðvar- og Fárskrúðsfirði) lenti í þriðja sæti Músíktilrauna í fyrra, sem er gott og blessað, en kemur upp úr dúrnum að keppni sú virðist hafa vakið upp eitthvað virkilega kraftmikið og 'einbeitt' sem farið er að rúlla af stað af mikilli ákefð og verður ekki stöðvað í bráð. Þau spila oft miðað við jaðarhljómsveitir utan af landi og þau víla ekki fyrir sér að fara í langar ferðir til að spila í örfáar mínútur fyrir ljónheppna tónleikagesti um land allt.Það er því ekki ofsögum sagt að hljómsveitin eigi sér bjarta framtíð og Stokkið í eldinn bræður fylgjast grant með og þá sérstaklega Tarfurinn.Birkir hljóp á sig og kynnti flutning á NECROBIOM lagi en úr því varð ekki því sá útskeifi hafði eitthvað misskilið Tarfinn á netspjalli einu eða Tarfurinn hann. Nema hvað...!Smári Tarfur tók stöðuna á Jakobi Kristjánssyni (gítarleikara) og Elísabetu Mörk (söngkonu). Stutt útgáfa af samtalinu kom fyrst út á X977 15. júní en hér getið þið hlustað á lengri og óklipptu útgáfuna.Fylgið CHÖGMA áYoutubeInstagramFacebookTikTokTónlist í þættinum;CHÖGMA - Destructive demo og Veðurfréttir (netskífa 2025)Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Stokkið í eldinn er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfVið minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook!
Það hljómaði bæði súrealískt og ótrúlega er okkur barst til eyrna að vinir tveir; MMA spjátrúngar, áhættuleikarasjomlar, adrenalínfíklar og þungarokkarar, væru komnir um borð í langskip eitt sem var á leið til fundar við AMON AMARTH, PANTERA (þáttur) og SLAYER (þáttur) hvar þeir myndu berjast við þeirra hlið víðsvegar um veröld.Við hreinlega urðum að ná í skottið á þeim til að komast að því hvernig stæði á þessu öllu saman. ...Og voru Birkir og Kiddi Crowley (MÁLMSMIÐJAN) skólaðir? Þið getið rétt ímyndað ykkur.Egill Óskar Gíslason (NYRST, ex-Skuggsjá) og Júlíus Grettir Bernsdorf (MJÖLNIR MMA). Báðir vinnia  þeir fyrir ICELANDIC STUNTS.Þessi þáttur var gerður í samstarfi við Málmsmiðjuna.Tónlist í þættinum;NYRST - Hrímvíti af Völd (Dark Essence Records) Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í eldinn er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf 
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Smári (týndur) og Birkir (vansvefta) söknuðu hvors annars. Því var skutlað í hraðsoðin þátt án alls undirbúnings hvar aðalviðfangsefnið var auðvitað SÁTAN 2025, hlýtt var á CHÖGMA demó, slagsmál í æsku, slysfarir vegna sjálfsfróunar og margt margt fleira. Hlustendur komu við sögu í þættinum og gammurinn gaus. Heiðrum minningu Nansý Guðmundsdóttur með því að vera í tjúlluðum fíling á Sátunni en gæta hvors annars í hvívetna. Minningin lifir!Frjáls Palestína! Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í eldinn er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Það var heldur betur handagangur í öskjunni, gleði, glaumur og uppfræðsla þegar sjálfur Karl Ágúst Guðmundsson (SORORICIDE / BELLATRIX) mætti á mót Stokkið í eldinn bræðranna. Eins og hendi væri veifað þá var saga þessa merka tónlistarmanns gernegld og pækluð af honum sjálfum í ljómandi fjörugu, en innilegu, samtali um feril kauða og samferðafólks hans.Tónlist í þættinu:Deathless með SORORICIDE (óútgefin tónleikaupptaka frá 1993, hér spiluð opinberlega í fyrsta sinn)Make Me Right með BELLATRIX af Köld eru kvennaráð (1996)Left Hand Path með ENTOMBED af Left Hand Path (1990)Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúr upplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Ride The Lightning er af mörgum talin sú besta; í það minnsta það besta sem runnið hefur undan rifjum Metallica. Pælarar og málsmetandi tónlistarfólk teflir Ride The Lightning gjarnan fram þegar leitað er álits þeirra um bestu skífu Metallica og jafnvel bestu þungarokksplötur allra tíma. Það verður ekki deilt um mikilvægi þessarar plötu svo sígild er hún. Réttir menn á réttum tíma. Hvar standa Smári Tarfur og Birkir Fjalar gagnvart þessum burðarstólpa?Hér fara Smári og Birkir yfir B-hlið plötunnar mögnuðu og setja hana svo í edik.Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúr upplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Það voru miklir endurfundir er Birkir, Egill Geirsson og Eiður Steindórsson hittust í fyrsta sinn eftir tæp 20 ár í sundur. Birkir var radd og-vitlaus, vannærður, vansvefta og yfirgíraður, Eiður nýkominn af næturvakt og Egill með lítið eftir á tanknum fyrir eitthvað kjaftæði, eða hvað?  Kiddi Crowley þurfti að hafa sig allan við að halda körfunni á karfanum.Egill (Munnriður, Changar, Dormah, Daddy Issues) og Eiður (Snafu, Future Future, Vera, Oath, Gamli, Daddy Issues) hafa margar fjörurnar sopið og þeirra staður í þungarokki Íslands er tryggður. Frábærir listamenn báðir tveir með sínar sérstæðu nálganir á formið; frjóir, óútreiknanlegir og eftirtektaverðir, hvor á sinn hátt.Það skýn fljótt í að hér mun karlaklúbbur af einhverju tagi gerjast og flæða yfir bakka sína hvar samtalið verður taum- og stefnulausara með hverri mínútunni. Það er ýmislegt mis gagn- og fróðlegt sem kemur úr dúrnum en einhver ykkar kunnið að hafa gagn og gaman af því þessi fundur gerði helling fyrir ofangreinda.Tónlist í þættinum:DADDY ISSUES - Ruslið út af Engan asa (2018)Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfÞessi þáttur hefði ekki verið mögulegur án Málmsmiðjunnar. Málsmiðjan er viðtalshlaðvarp með fókusinn á þungu Íslensku rokki af öllum gerðum. Frábær viðtöl og heimild. Besta leiðin til að kynnast persónum og leikendum Íslenska jaðarssin.Málmsmiðjan er á Spotify. 
Upp er runnin veisla. Hún er svipur hjá sjón! Hún er fugl og fiskur!Smári Tarfur snýr aftur og mætir Kristjáni B. Heiðarssyni, gullgesti vorum, ásamt Birki og Kristni Rey. Það er vart hægt að hugsa sér manneskju til starfans þegar vinnan er Testament. Þessi merka, fróma, langlífa og frjósama hljómsveit sem ekkert virðist geta stöðvað né grandað. Alltaf eru þeir þarna. Alltaf vilja stærstu byssurnar ganga í þeirra raðir. Alltaf eiga þeir erindi. Og alltaf skuli þeir taldir fyrstir inn sem sveitin sem á mest skilið að vera tekin inn í The Big Four (Metallica, Megadeth, Slayer, Anthrax).Kristján kom töltandi úr Eyfiskri sveitinni, kom, talaði og ýlfraði okkur öllum til hagsbóta. Áfram þungarokk!Tónlist í þættinum:VETUR - Kuml af Nætur (2018)PATRONIAN - The Great Western Friendkill af Stabbed With Steel (2022) Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfÞessi þáttur hefði ekki verið mögulegur án Málmsmiðjunnar. Málsmiðjan er viðtalshlaðvarp með fókusinn á þungu Íslensku rokki af öllum gerðum. Frábær viðtöl og heimild. Besta leiðin til að kynnast persónum og leikendum Íslenska jaðarssin.Málmsmiðjan er á Spotify. 
Fréttaritari Stokkið í eldinn í Þýskalandi, Smári Tarfur, sendir hlustendum hljóðpistil af dýrari sortinni. Hann skjalfestir þá merku stund er hann fór á tónleika með hjartasveit sinni Carcass. Carcass stigu á stokk í LKA Longhorn, Stuttgart (16. jan. 2025) ásamt Brujeria, Rotten Sound. Saman voru sveitirnar á tónleikaferðalegi sem nefnt var Europa Rigor Mortis Tour Part 1.Frá Gestseyri í Patreksfirði, Rafbúð Jónas Þórst til Berlínar og því næst Stuttgart Ásgeirs Sigurvinssonar. Smári Tarfa Jósepsson talar úr lestarstöð...CARCASS - Cadaver Pouch Conveyor System af Surgical Steel (2013)MORPHOLITH - Dismalium af Dystopian Distributions Of Mass Produced Narcotics (2024) Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfÞessi þáttur hefði ekki verið mögulegur án Málmsmiðjunnar. Málsmiðjan er viðtalshlaðvarp með fókusinn á þungu Íslensku rokki af öllum gerðum. Frábær viðtöl og heimild. Besta leiðin til að kynnast persónum og leikendum Íslenska jaðarssin.Málmsmiðjan er á Spotify. 
Þegar Tómas Ísdal (Misþyrming, Naðra o.fl) talaði um TÞM árin... TÞM senuna, í síðasta þætti Stokkið í eldinn (026. Íslenskur Svartmálmur (önnur bylgja) m. Tómasi Ísdal, Friederike Wießner og Þóri Garðarssyni) þá hafði hann óvart komið með kveikju á næsta þætti. Þetta var eitthvað órætt en samt skýrt. Eitthvað sem þurfti að gaumgæfa betur. Hvaða sveitir lágu til grundvallar? Momentum? Gone Postal? Severed? Changer? Withered? Infected? Diabolus? Kom á daginn að það var óhemju mikið af góðum hljómsveitum að stíga sinn vilta dans á sama tíma og mörg þeirr tengust rammri taug sín á milli. Við vorum sammála um að nauðsynlegt væri að kalla einhverja pælara að borðinu, fólk sem hafði tekið ríkan þátt í þungarokkinu á þessum árum. Og eins og svo oft áður þá kom það upp úr dúrnum að félagslegi þáttur tónlistarinnar, bræðra- og systralagið, hafði jafnvel meiri áhrif á viðstadda en tónlistin sjálf.Ragnar Sverrisson (Helfró, Vafurlogi, Beneath, Ophidian I, Atrum, Azoic) og Ingólfur Örn Hallgrímsson (Blood Feud, Chao, Norðanpaunk og Pittsburgh Penguins) voru kallaðir að borðinu enda þekktir fyrir sín þrumuskot sem og djúpa þekkingu og innsæi inn í þungarokkssenu fortíðarinnar. Enn þann dag í dag taka þeir ríkan þátt í þungarokkssmenningu landans, hver með sínu nefi, og þeir eiga það sameiginlegt, blessaðir, að þeir muna allan fjandan og brenna fyrir málstaðinn.Sérstakar þakkir fá Atli Jarl Martin og Kristján B. Heiðarsson.UNIVERSAL TRAGEDY - Raid and Pillage afThe Truth Beholds Deception (2010)GONE POSTAL - One Kill Towards Progression af Promo II (2011)BLOOD FEUD - The Ventriloquist óútgefið (2013)ATRUM - Ýmir af Opus Victum (2011)WITHERED - Orchestrated Screams af The Midnight Gate (2006)Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfÞessi þáttur hefði ekki verið mögulegur án Málmsmiðjunnar. Málsmiðjan er viðtalshlaðvarp með fókusinn á þungu Íslensku rokki af öllum gerðum. Frábær viðtöl og heimild. Besta leiðin til að kynnast persónum og leikendum Íslenska jaðarssin.Málmsmiðjan er á Spotify.  
Í þessum þætti höldum við áfram að velta fyrir okkur tilveru og þróun Íslenska svartmálmsins og gerum heiðarlega tilraun til að merkja bylgjur og/eða kaflaskil inn á ímyndað tímatal hvar ár og atburðir eru á reyki, eins og vera ber (senur og list er ekki stærðfræði, heldur flæðandi). Til að gæta þess að viðfangsefnið sé nálgast frá sem flestum sjónarhornum og af miklu innsæi og reynslu fengum við Þóri Garðarsson (Vafurlogi, Svartidauði, Sinmara o.fl), Tómas Ísdal (Naðra, Misþyrming, Carpe Noctem o.fl.) og Friederiku Wießner Petrudóttur (Mondernte) til liðs við okkur og áttum langt, ítarlegt og gott spjall.Þessi kvöldstund er í boði Malbygg. Malbygg er brugghús hvers hágæða handverksdrykkir eiga sannarlega upp á pallborðið hjá Stokkið í eldinn og mun víðar. Finnið og fylgið Malbygg á netinu:Heimasíða.Facebook.Instagram.Tónlist í þættinum:MARTRÖÐ - Draumleysa af Transmutation of Wounds (2016)ANDVALD - Afvegaleiðsla af  Undir skygg​ð​arhaldi  (2019)CARPE NOCTEM - Vargsf​æ​ð​ing af Carpe Noctem (2009)Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfÞessi þáttur hefði ekki verið mögulegur án Málmsmiðjunnar. Málsmiðjan er viðtalshlaðvarp með fókusinn á þungu Íslensku rokki af öllum gerðum. Frábær viðtöl og heimild. Besta leiðin til að kynnast persónum og leikendum Íslenska jaðarssin.Málmsmiðjan er á Spotify. Andkristni MMXXIII. 21.& 22. desemberElsta þungarokks hátíð á Íslandi, hin árlega Andkristni hátíð snýr aftur og nú stærri en nokkru sinni fyrr. Í fyrsta skipti verður hátíðin haldin í IÐNÓ, elsta tónleika stað í Reykjavík. Þriggja daga veisla sem enginn svartmálms aðdáandi ætti að láta framhjá sér fara.Miðasala.
Verkefnið er ærið og grafalvarlegt. Svartmálmurinn er kóngurinn hér á landi og þannig hefur það verið í áraraðir frá og með sveitum á borð við Carpe Noctem, Chao, Svartidauði, Finngálkn svo einhverjar séu nefndar. En hvað var í gangi áður en sú markverða og heimsþekkta bylgja hófst? Var eitthvað þarna (Flames Of Hell, Forgarður Helvítis, Sólstafir?) sem hægt er að setja undir sömu reghnhlífina og kalla með sönnu fyrstu bylgju svartmálm? Til að tækla dæmið voru gárungarnir og grúskararnir Eyvindur Æðsti-Prestur Gauti og góðvinur þáttarins Magnús Halldór Pálsson, settir í rökstóla hvar þeir völsuðu um myrk og köld skúmaskot minninga sinna og Íslands sem var; kalt, miskunarlaust og áfengiseitrað. Guðmundur "Muggur" Helgi; minning þín lifir. Tónlist í þættinum:MIND AS MINE -  Author of Your Dreams af Fire & Ice - An Icelandic Metal Compilation (1997)ÁMSVARTNIR - In Darkness af Demo (1996)Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
Þegar ein af þeim stærstu og mikilvægustu gefa út þá verðum við að taka það fyrir. Banished By Sin var vel tekið af áðdáendum og mörgum skrípentum.  Hvað segjum við/þið?Flórídakvartetinn Deicide þarf ekki að kynna fyrir neinu ykkar. Hér er á ferðinni ein sögufrægasta dauðarokkssveit allra tíma. Það er ekkert flóknara en það. Án Deicide værum við tæplega komin svona langt og víða eins og raun ber vitni. Það að þeirra njóti enn við, og séu enn að gefa út plötur í fullri lengd, er síðan einhversskonar kraftaverk og auðvitað í krafti mykrahöfðingjans. Vafalítið.Nema hvað! Í vor kom út þrettánda plata þeirra; Banished By Sin. Þrettánda! Sex ár hafa liðið síðan Overtures Of Blasphemy kom út. Kevin Quirion er ennþá inni sem annar gítarleikaranna en Mark English var skipt út fyrir Taylor Nordberg. Glen "Líf og fjör" Benton og Steve "vímuluast Ísland árið 2000" Asheim eru enn í brúnni eins og vera ber. Gjörsamlega ótrúlegir.  Tónlist í þættinum:Groovestreet með False Majesty (2024)Where Crows Dare Not Go með Herakleion af Necroverse (2024)Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
loading
Comments 
loading