DiscoverFasteignaspjallið40% hækkun á fasteignaverði
40% hækkun á fasteignaverði

40% hækkun á fasteignaverði

Update: 2021-02-13
Share

Description

Á síðustu 5 árum hefur raunverð íbúða hækkað nokkuð meira hér á landi en í löndunum í kringum okkur. Hækkunin mælist yfir 40% í heildina frá 2015 á Íslandi en er á bilinu 1-20% á hinum Norðurlöndunum. Lægst í Finnlandi þar sem verð hefur haldist nær óbreytt. Meiri sveiflur einkenna húsnæðismarkaðinn hér á landi samanborið við nágrannaþjóðirnar, hvort sem litið er til verðþróunar eða uppbyggingar íbúða.

Hækkunin hér á landi er nær öll vegna hækkana á seinni hluta árs 2016 og 2017. Síðan þá hefur þróunin verið nokkuð áþekk hér á landi og í löndunum í kringum okkur, þó með undantekningum. Nýjustu mælingar um þróunina á árinu 2020 gefa til kynna að verð sé að hækka nokkuð hraðar víða í kringum okkur, en hér á landi. 12 mánaða hækkun mældist um 5% milli ára í Svíþjóð og Danmörku á þriðja ársfjórðungi síðasta árs en 4% hér. Sambærilegar mælingar vegna fjórða ársfjórðungs eru einungis fáanlegar fyrir Svíþjóð og Ísland enn sem komið er og mælist hækkunin 3% hér á landi en tæp 9% í Svíþjóð samkvæmt mælingum OECD. Samkvæmt þessu eru vísbendingar um að nágrannalöndin séu sum að finna fyrir meiri spennu á fasteignamarkaði en við búum við hér eftir að faraldurinn hófst.
Skv. Hagsjá Landsbankans

Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@450.is s: 776 0615
Comments 
00:00
00:00
x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

40% hækkun á fasteignaverði

40% hækkun á fasteignaverði

Baldur fasteignasali