DiscoverFasteignaspjalliðBrottvísun og réttur leigjenda (2 mínútur)
Brottvísun og réttur leigjenda (2 mínútur)

Brottvísun og réttur leigjenda (2 mínútur)

Update: 2020-05-06
Share

Description

Staðlaður texti í leigusamning:
 B. Ótímabundinn leigusamningur: Uppsögn skal vera skrifleg og send með sannanlegum hætti. Uppsagnarfrestur af hálfu beggja aðila á einstökum herbergjum eru þrír mánuðir. Uppsagnarfrestur af hálfu beggja aðila á íbúðum er sex mánuðir nema ef leigusali er lögaðili sem í atvinnuskyni leigir út húsnæði og leigjandi hefur haft íbúð á leigu lengur en tólf mánuði, en þá skal uppsagnarfrestur af hálfu leigusala vera tólf mánuðir. Uppsagnarfrestur telst hefjast fyrsta dag næsta mánaðar eftir að uppsögn var send. Sjá nánar XI. kafla húsaleigulaga: „Lok leigusamnings, uppsögn o.fl.“

Tímabundnum leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar af hálfu aðila. Tímabundnum leigusamningi verður ekki slitið með uppsögn á umsömdum leigutíma. Þó er heimilt að semja um að segja megi slíkum samningi upp á grundvelli sérstakra forsendna, atvika eða aðstæðna enda sé ekki fjallað um viðkomandi forsendur, atvik eða aðstæður í húsaleigulögum og skulu þau tilgreind í leigusamningi. Skal slík uppsögn vera skrifleg og rökstudd og skal gagnkvæmur uppsagnarfrestur vera að minnsta kosti þrír mánuðir. Sjá nánar 3. málsgrein 9. greinar og XI. kafla húsaleigulaga: „Lok leigusamnings, uppsögn og fleira.“

Heimasíða 450 fasteignasölu hér:  450.is
Ert þú í söluhugleiðingum?: Fá verðmat
baldur@450.is sími 776 0615
Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
450 Fasteignasala á Facebook

Comments 
00:00
00:00
x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

Brottvísun og réttur leigjenda (2 mínútur)

Brottvísun og réttur leigjenda (2 mínútur)

Baldur fasteignasali