DiscoverÁlhatturinnEfnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi
Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi

Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi

Update: 2024-08-091
Share

Description

Hvaða rákir eru þetta sem  standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn? 

Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er verið að spreyja og hversvegna? 

Ganga þessir aðilar erinda lyfjarisa og tryggingafélaga, sem hagnast verulega af veikindum almennings, eða eru þetta mögulega brjálaðir vísindamenn sem vilja stjórna veðrinu og drottna yfir náttúrunni? 

Samsæriskenningin um efnarákir(chemtrails) er síður en svo ný af nálinni og kenningin nýtur merkilega mikils stuðnings víðsvegar um heiminn. Svo virðist vera sem rákirnar megi finna á himnum í svo til hverju einasta sveitafélagi, fylki eða borg í hverju einasta landi varaldar. 

Ef um samsæri er að ræða, þá er væntanlega um eitt stærsta og umfangsmesta samsæri veraldar að ræða. Hversu margir eru með í ráðum? Allir flugmenn, flugumferðarstjórar, hleðslu fólk á jörðu niðri? Eða er kannski samsærið falið fyrir þeim öllum líka? Og leynilegum eiturefnum blandað í flugvélabensínið?

Hvað í veröldinni voru Project Cirrus, Project Cumulus eða Project Skyfire? Hvers vegna myndu stjórnvöld og vísindamenn vilja stjórna veðrinu og hverra hagsmuna er þá verið að gæta? Opinberu skýringarnar eru þær að mögulega megi koma í veg fyrir þurrka og uppskerubrest og þannig hugsanlega einnig koma í veg fyrir kreppur og ef til vill afstýra byltingum og óeirðum. Hvað ef þau eru ekki bara að reyna stjórna veðrinu? Geta þau kannski stjórnað hugsunum okkar og gjörðum með þessum efnum? 

Hverju eru þau að spreyja og hvaða heilsufarsleg áhrif hefur það á fólk, plöntur og dýr? Eru ál, baríum og brennisteinn í snefilmagni raunverulega skaðleg og ástæða þess að svo gífurleg aukning hefur orðið í tilfellum krabbameina og alzheimers í heiminum? Eða hefur það kannski meira með hækkandi aldur og auknar lífslíkur fólks að gera?

Hvað í veröldinni er skýja sáning(e.cloud seeding)? Hver eru Council of foreign relations og hvers vegna í veröldinni vilja þau samtök dimma himininn?  Getur verið að hér sé hugsanleg lausn á loftslagsvánni og hamfarahlýnun? Eða eru hér á ferðinni gífurlega valdamikil hagsmunasamtök sem bera einungis eigin hag í húfi? 

Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er sneisafullur af bitastæðu efni, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá stórkostlega skemmtilegu og áhugaverðu kenningu að efnarákum(chemtrails) sé skipulega úðað í andrúmsloftið með annarleg markmið að leiðarljósi.

Hlekkir á ítarefni:

UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Comments 
loading
In Channel
Jörðin er flöt

Jörðin er flöt

2024-05-3102:21:59

loading
00:00
00:00
1.0x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi

Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi