Kynning

Kynning

Update: 2024-11-14
Share

Description

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá? 


Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%. 


--------


Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar! 


Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur


Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum


Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu 


Hagkaup - býður upp á úrval hreinna ferskra matvæla, lífrænna matvara og bætiefna 


Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist


Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu


Saltverk - sjálfbært, hreint, óunnið íslenskt salt - þurrkað með jarðhita og inniheldur frá náttúrunnar hendi öll stein- og snefilefni


 

Comments 
loading
00:00
00:00
1.0x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

Kynning

Kynning

heilsuhladvarp