Morðið í blokkinni 2013 - 1. hluti
Description
Í þriðja þætti af fyrstu seríu True Crime Ísland fjöllum við um morð sem átti sér stað árið 2013. Maður fannst látinn á svölum í blokk úti á landi. Mikið fjölmiðlafár var í kringum málið og af þeim sökum verður þetta mál í tveim þáttum.
Við lesum dóminn, rýnum í málsatvik og útskýrum hvernig réttarkerfið tók á þessu sakamáli.
Kostendur þáttarins frá byrjun eru Fons Juris, Kjörís, TM, JYSK, Kratos Lögfræðistofa og Moodup.
Þetta sakamál er þriðja málið í seríunni okkar Karlmenn sem drepa karlmenn, þar sem við rýnum í dóma sem varpa ljósi á alvarlegustu ofbeldisbrotin á Íslandi. Í hverjum þætti fá hlustendur ekki bara frásögn heldur einnig fræðilega skýringu á því hvernig réttarkerfið virkað út frá þessum málum.
True Crime Ísland er íslenskt true crime podcast sem leggur áherslu á sakamál og dóma á Íslandi. Markmiðið er að gera dóma og málsatvik aðgengilegri almenningi og sýna hvernig íslenskt réttarkerfi bregst við ofbeldisbrotum.
Fylgdu True Crime Ísland á Spotify og Apple podcast til að heyra fleiri íslensk sakamál og fá fræðilega innsýn í hvernig dómar og réttarkerfið á Íslandi virka í reynd.