Út að hlaupa

Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!

#60 Fjórfalt Íslandsmet í beinni!

Bakgarðurinn ræddur, íslandsmet í beinni, uppgjör síðustu hlaupa ásamt því að Friðleifur spjallaði við okkur um komandi verkefni sem eru á boðstólum FRÍ, græjuhornið frá Sigga er á sínum stað og alvöru bakgarðsskýrsla frá Rakel. Ekki láta þennan þátt fara framhjá Bose heyrnatólunum þínum! 

10-22
01:55:10

#59 Nice að hitta Courtney!

Svaddalegur þáttur fyrir ykkur í dag. Skýrsla frá Hildi Aðalsteins úr 100 mílna hlaupi í Nice, hlaupauppgjör vetrarhlaupanna hér heima, kraftsímtal alla leið til Iten þar sem Halldóra Huld lagði okkur línurnar frá heimili meistaranna, draumaráðningahorn Dr. Erlu og svo miklu miklu fleira! Ekki láta þennan þátt framhjá þér fara.  

10-15
02:20:59

#58 Endurheimtar Einar!

Taka tvö með okkar eina sanna Latsa. Nú var farið vel yfir endurheimt, próteininntöku, hitaþjálfun og margt margt fleira!

10-08
02:08:16

#57 Með taugakerfið þanið!

Í þættinum voru últrahlauparar sem eru að fikta í wikipediasíðum annarra ræddir, skýrsla frá Andreu Kolbeins, skóhornið þar sem við förum yfir skóbúnað inn í veturinn ásamt því að opnað var fyrir símann, hlaupauppgjör og svo mætti lengi telja! 

10-01
01:32:34

#56 Þurfti að læra allt upp á nýtt!

Græjuhornið, hugleiðingar, innhringing og fleira. Ein af okkar mögnuðustu ofurkonum, Fanney Þorbjörg kom með skýrslu úr Oslóarmaraþoninu og Ósk Gunnars mætti í frumraun sína í stúdíó til þess að gera upp Bakgarðinn!  

09-27
01:37:48

#55 Nú fékk hann metið metið!

Hugleiðingar varðandi tannheilsu hlaupara, skýrsla frá Ultrahjónunum í Slóveníu, græjuhornið, hlaupauppgjör og örviðtal við Arnar Pétursson fyrir Berlínarmaraþonið! 

09-23
01:52:30

#54 Bakgarðs upphitun úr Bose stúdíóinu!

Við erum mættir í Bose stúdíóið! Slóum á þráðinn til Andra Guðmunds og ræddum Bakgarðinn í þaula, fórum yfir brautarvörsluna í Eldslóðinni, skýrsla um kostnað hlaupa ásamt allskonar góðgæti! 

09-18
01:51:35

#53 Nýtt stúdíó!

Í þættinum í dag voru alvöru hugleiðingar, meiðslaskýrsla frá Marteini, glænýr dagskrárliður með Sigga Ragnars sem kallast græjuhornið, massíft hlaupauppgjör og margt, margt fleira. Allt þetta var að sjálfsögðu rætt í nýja stúdíóinu okkar! 

09-09
01:34:04

#52 Er alltaf stuttbuxnaveður?

Svekkelsið við það að þurfa að fresta Öræfahlaupinu, hugleiðingar veðurfræðings og skýrsla frá Halldóru Huld Ingvarsdóttur úr CCC. Guðfinna Kristín Björnsdóttir mætti sem gestastjórnandi í fjarveru Marteins. Við stikluðum á stóru í gegnum hlaupaferilinn, ræddum komandi áskoranir og fórum vel yfir UTMB sem kláraðist nýliðna helgi. 

09-02
02:19:59

#51 Reykjavíkurmaraþons uppgjörið mikla!

Reykjavíkurmaraþonið gert upp, óbrjótanlegt heimsmet sem féll, statusinn tekinn á Nick Gísla fyrir CCC og á Fríðu Rún eftir World Masters Athletics Championships! 

08-26
01:36:38

#50 Upphitun fyrir Reykjavíkurmaraþonið!

Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir Reykjavíkurmaraþonið, brautin rædd, góð ráð fyrir hlaup og svo mætti lengi telja. Við fengum skýrslu frá Andreu Kolbeins og viðtal við Hlyn Andrésson sem við mælum mikið með að hlusta á! 

08-20
01:49:40

#49 Fjallahlauparar eiga ekki breik!

Hugleiðingar fyrir Reykjavíkurmaraþonið, Ólympíuleikarnir, Fimmvörðuhálsinn og Súlurnar gerðar upp. Við fáum úrvals sögu frá últrahlauparanum geðþekka Sigfinni Björns ásamt alvöru niðurhlaupi! 

08-13
01:48:54

#48 Villtur í Kerlingarfjöllum

Hugleiðingar varðandi 100km hlaup, skýrsla úr Kerlingarfjöllum, uppgjör á allskonar hlaupum og margt fleira á boðstólum í þættinum í dag!

07-31
01:10:10

#47 Laugavegsuppgjörið mikla!

Laugavegurinn á risastóran sess í hlaupasumri flestra utanvegahlaupara. Það verður að vera sér þáttur til að gera upp þetta stóra og mikla hlaup! 

07-17
01:16:40

#46 Laugavegsvikan með Marteini

Laugavegurinn var þema þáttarins. Við fengum skýrslu frá Rögnu, viðtal við sjálfan Laugavegskónginn, Höskuld og svo var hlaupauppgjörið að sjálfsögðu á sínum stað. Þess má geta að næringarplönum okkar var lekið í beinni útsendingu svo nú getið þið öll étið þennan Laugaveg eins og úthvíld tröll! 

07-10
01:15:44

#45 Næringarpælingar með Latsa!

Viðtalsþáttur við sjúkraþjálfarann geðuga Einar Sigurjónsson. Í þættinum förum við yfir allt milli himins og jarðar hvað varðar næringu íþróttafólks. Einar, eða Latsi eins og hann er gjarnan kallaður er frábær í að útskýra flókin fyrirbæri á mannamáli og því vonum við að hlustendur geti lært af þessu spjalli og hafi gaman af! 

07-08
01:35:48

#44 Með Steina í vasanum!

Í þættinum í dag gerðum við upp Ármannshlaupið, tókum upp símann og heyrðum í Hafdísi, Siggunum tveimur og fengum skýrlu frá Olgeiri varðandi Dyrfjallahlaupið. Upplagt að hlusta á þáttinn á leiðinni austur! 

07-03
01:26:20

#43 Með krampa í kjálkanum!

Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir farinn veg í nýafstöðnum hlaupum, bæði hér heima og erlendis. Við fáum góða tjónaskýrslu frá Hlyni Guðmunds eftir krampafestival á Ítalíu og nýtt hlaup verður kynnt ásamt fullt af aulabröndurum. Þess má geta að það er enginn best fyrir dagsetning á þessum þætti! 

07-01
01:33:35

#42 Er nostalgía besta tilfinningin?

Hugleiðingar, skýrsla, uppgjör og margt margt fleira í þætti dagsins! 

06-20
56:32

#41 Últrahlaup og eftirhermur!

Það var af nægu að taka í hlaupauppgjörinu að þessu sinni enda langt síðan við félagarnir höfum sest niður og rætt málin. EM í Annecy, Mýrdalshlaupið og Hengillinn voru gerð upp af mikilli alúð.

06-09
01:09:54

Recommend Channels