DiscoverBíddu Bara
Bíddu Bara
Claim Ownership

Bíddu Bara

Author: Bíddu bara

Subscribed: 58Played: 213
Share

Description

Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧
16 Episodes
Reverse
Í þessum þætti tölum við um allt sem tengist babyshower og skírnar/nafna-veislum. Förum yfir undirbúninginn, vafaatriði, hugmyndir að gjöfum, veitingar og fleira. Léttur og skemmtilegur þáttur fullur af praktískum ráðum og svörum við algengum spurningum!
Nostalgía

Nostalgía

2026-02-2401:02:51

Köfum aðeins ofan í æskuna okkar og rifjum upp hvernig það var að alast upp á tíunda áratugnum (90s) og svo auðvitað aldamótastemninguna sem fylgdi í kjölfarið. Ef þú ert „millennial“ eins og við, eða bara elska fortíðina og nostalgíu, þá munt þú elska þennan!
Í þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega áhrifamikla og persónulega frásögn Kristínar Gunnarsdóttur af því þegar nýfæddur sonur hennar veiktist alvarlega. Kristín deilir upplifun sinni af þessum ólýsanlega erfiða tíma, frá fyrstu einkennum og allt þar til lífi sonarins var á ótrúlegan hátt bjargað á elleftu stundu.Við ræðum hvernig er að takast á við svona erfitt ferðalag með makanum sér við hlið og hvað skiptir mestu máli þegar þarf að styðja hvort annað í gegnum það ómögulega.Þetta er einstaklega einlægur þáttur, kraftaverkasaga sem gefur von og minnir okkur sterklega á hvað fólkið í kringum okkur skiptir miklu máli þegar lífið reynir á ❤️
Hlaðfréttir - Pabbaspjall

Hlaðfréttir - Pabbaspjall

2026-02-1001:38:31

Fengum þá Benna og Fannar úr Hlaðfréttum í alvöru pabbaspjall. Þeir tveir eiga, eins og þeir orða það "saman" sex börn og við ræddum við þá um pabbalífið og lífið almennt! Mjög einlægt, fyndið og skemmtilegt spjall.
Halló febrúar ✨🩵

Halló febrúar ✨🩵

2026-02-0301:13:12

Einn léttur, ljúfur og kátur þar sem við kveðjum lengsta mánuð ársins og tökum fagnandi á móti fallegum febrúar! Skemmtilegt yapp um allskonar og mömmupepp fyrir komandi mánuð!
Í þessum þætti ræðum við við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um leikskólamálin sem hafa verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Sveitarfélögin eru mörg hver farin að bjóða sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla. Við ræðum um pressuna á foreldra, áskoranir starfsfólks leikskóla og hvort við séum á réttri leið í að byggja upp kerfi sem virkar fyrir börn, foreldra og samfélagið allt.Mjög áhugavert og mikilvægt spjall um eitt heitasta málefni landsins um þessar mundir.
Kristín svefnráðgjafi

Kristín svefnráðgjafi

2026-01-2001:45:12

Gott og fræðandi spjall við Kristínu svefnráðgjafa um svefn ungabarna 👼💤
Nýársþáttur

Nýársþáttur

2026-01-1301:02:13

Nýtt ár - nýr þáttur! Kick störtum þessu ári og ræðum hitt og þetta. Mömmumarkimið ársins, rant um leikskólamál, mömmviskubit, framtíðarsýn Bíddu bara og margt fleira!
Mömmujátningar

Mömmujátningar

2025-12-2301:27:31

Einn léttur, ljúfur og kátur korter í jól. Við förum yfir skemmtilegar staðreyndir um okkur og deilum mömmujátningum - hlutum sem við gerðum eftir að við urðum mömmur, sem við héldum að við myndum aldrei gera eða viðurkenna! Gleðileg jól 🎅✨
Orka Studio

Orka Studio

2025-12-1601:38:22

Guðrún og Nadia frá Orka Studio ræða hreyfingu á meðgöngu og eftir fæðingu, kvenheilsu og allt það sem oft fær ekki nægt pláss í umræðunni. Mælum heilshugar með hlustun fyrir allar konur .
Jólin og jólahefðir

Jólin og jólahefðir

2025-12-0901:22:21

Hér er sannkallaður jólaþáttur á ferð. Við rifjum upp okkar eigin hefðir og ræðum hvernig það er allt í einu komið að okkur að skapa jólatöfrana fyrir börnin okkar. Förum yfir nokkur sniðug ráð til að gera desember aðeins auðveldari og skemmtilegri fyrir alla fjölskylduna. Léttur, hlýlegur og jólalegur þáttur þennan þriðjudaginn✨
Í þessum þætti fáið þið að kynnast okkur aðeins betur. Við deilum átta skemmtilegum staðreyndum um okkur sem eru líka misgáfulegar. Erla Guðmundsdóttir (heilsuerla) kemur að auki til okkar í spjall um ungbarnasund og margvíslegan ávinning þess.
Í þessum þætti ræðum við brjóstagjöf, pelagjöf og „combo feeding“ út frá okkar eigin reynslu. Þetta er opin og hreinskilin umræða um málefni sem liggur þungt á mörgum nýbökuðum foreldrum. Við deilum persónulegum sögum og áskorunum, því allar leiðir eru í lagi, svo lengi sem barnið fær ást og næringu. ATH! Við erum ekki sérfræðngar, allt sem kemur fram er út frá persónulegri reynslu.
Ferðalög

Ferðalög

2025-11-1801:11:09

Í þessum þætti förum við yfir hvernig er best að ferðast innanlands og erlendis með börn. Við deilum reynslunni, góðum ráðum og sögum úr okkar ferðum! Ef þú ert ekki að fara ferðast á næstunni lofum við samt góðri skemmtun.
Við förum yfir meðgöngurnar okkar, skemmtilegar sögur og hvað okkur fannst must að taka með og eiga fyrstu daganna eftir fæðingu.
Kynningarþáttur

Kynningarþáttur

2025-11-1315:37

Í þessum kynningarþætti segjum við ykkur frá okkur, afhverju við byrjuðum með þetta podcast og hvað þið getið átt von á í komandi þáttum. Bíddu bara er mömmu hlaðvarp þar sem tvær vinkonur blaðra opinskátt um allt sem fylgir foreldrahlutverkinu.
Comments