DiscoverTölum Um - Gummi Kíró
Tölum Um - Gummi Kíró
Claim Ownership

Tölum Um - Gummi Kíró

Author: gudmundurx

Subscribed: 98Played: 981
Share

Description

Podcast show about relationships, culture, healthy habits, physical & mental health, fashion trends and interesting people
28 Episodes
Reverse
Sólrún Diego

Sólrún Diego

2024-10-2201:12:07

Sólrún Diego kom í mjög einlægt og persónulegt spjall um þær breytingar sem hafa átt sér stað í hennar lífi og hvað hún hefur gert til að huga að fjölskyldunni og sinni andlegu heilsu
Hildur Ómarsdóttir hefur vakið athygli fyrir sína vegferð í baráttu við krabbamein og hvernig hún notar mataræði og heilbrigðan lífsstíl til þess að gefa líkamanum besta mögulega tækifæri til að heila og lækna sig sjálfur. Hildur segir einnig frá sinni upplifun af heilbrigðiskerfinu og lýsir fyrir okkur þeirri stöðu sem einstaklingar og aðstandendur fólks í baráttu við krabbamein standa frammi fyrir Ótrúlega átakanleg en falleg frásögn sem hreyfir við manni 
Ég og Lína Birgitta ræddum New York Fashion week og fullt af spennandi hlutum sem eru frammundan hjá Define the Line og Autumn Clothing Einnig ræddum við þjóðarátakið Riddarar kærleikans og hvernig við ætlum að leiða okkar samskipti við annað fólk með kærleika 
Bjargey Ingólfsdóttir fræðir okkur um hvað veitir okkur hamingju, hvernig við komumst í betri tengingu við okkur sjálf og maka okkar ásamt því að öðlast meira sjálfstraust og unað kynferðislega  Bjargey er Jin yoga kennari, einkaþjálfari, höfuðbeina og spjaldhryggs meðferðaraðili og hefur í mörg ár haldið námskeið, ferðir og fyrirlestra til að efla sjálfstraust kvenna
Við ræðum við Danna og Einar þjálfara hjá Afrek um heilsu, þjálfun, næringu og miklvægi þess að stíga útfyrir þægindaramman til öðlast betri heilsu 
Indíana Rós kynlífsfræðingur kom í spjall um kynlíf í parasamböndum og hvernig við getum lært inn á hvort annað til þess að eiga frábært kynlíf. 
Hinn magnaði listamaður Elli Egils kom til mín í spjall um lífið, ferilinn, framan og fjölskyldulífið. Það var yndislegt að setjast niður með Ella og ræða á einlægum nótum um líf þeirra hjóna, Maríu Birtu leikkonu sem búa í Las Vegas ásamt dóttur Elli velur sín viðtöl vandlega og er ég því ótrúlega þakklátur fyrir þetta fallega spjall okkar vinana 
Helgi, Elísabet og Andrea komu í sjúklega skemmtilegt og fræðandi tískuspjall um hvað þeim finnst vera mest spennandi fyrir sumartískuna 2024 
Við Lína áttum frábært spjall við heilsusérfræðinginn, rithöfundinn, markþjálfan og Yoga kennaran Tobbu Hafsteins. Hún fræddi okkur um mataræðið, hormónakerfið og hvernig við hugsum um heilsuna á heildrænan hátt ásamt því að fara yfir sín ráð til þess að næra líkama okkar sem einstaklingar
í þætti vikunnar fer ég yfir daginn og veginn í mínu lífi, gef ýmis ráð um heilsu plús 40 ára, fer yfir málefni dagsins eins og forsetaframbjóðendur og ræði um hamingju 
Frosti Logason og Sölvi Tryggvason komu í mjög fræðandi og skemmtilegt spjall um sjálfsvinnuna, forsetakostningarnar, fjölmiðla á Íslandi og Bio - Hacking 
Hormóna Heilsa

Hormóna Heilsa

2024-04-2701:10:00

Í þætti vikunnar ræði ég við Ragnhildi Þórðar sálfræðing, Halldóru Skúla hjá Kvennaráð og Erlend Guðmundsson þjálfara og eiganda Formið heilsurækt um hormónauppót fyrir konur og karla og hverskyns einkenni eru að því að vera í skorti á okkar lífshormónum og hvert við getur leitað til þess að fá hjálp
Lífskennarinn og frumkvöðullinn Guðni Gunnars kom í einlægt og fróðlegt spjall um tilvist okkar og hvernig við vöknum til lífs og vitundar. Frábær þáttur sem enginn má missa af 
Helgi Ómars og Pétur Sveinsson komu í einlægt og fallegt spjall um það hvernir maður vinnur sig í gegnum burnout og á sama tíma viðhalda fallegu og góðu sambandi við sjálfan sig og makann sinn   World Class  -  Michelsen   -   Coco Mat Iceland 
Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason standa á skemmtilegum og spennandi tímamótum og ræða á einlægan hátt um hjónabandið, fjölskyldulífið og hvernig þau hafa staðið með hvort öðru og hvatt hvort annað á lífsins leið. 
Leikararnir Íris Tanja og Haraldur Stefánsson ræða á mjög einlægan og skemmtilegn hátt um leikhúslífið, hvernig þau undirbúa sig undir hin ýmsu hlutverk og ástarsenurnar. Einnig ræðum við samskipti og tengingu við maka okkar og hvernig við höldum öllum boltum á lofti  
Patrik (Prettyboy) og Gústi B gera upp ferðina til Dubai þar sem þeir lenda í ýmsum ævintýrum, hverning þeir félagar kynnast, samstarfið, hversu mikilvægt það er að hugsa um heilsuna í tónlistarbransanum og um framtíðina. 
Við Lína svörum spurningum fylgjenda um fyrirtækjarekstur og ræðum sambandið okkar, hvernig við hittumst, þegar sambandið varð opinbert í fjölmiðlum og hvernig við tökum erfiðu samtölin 
Hanna Kristín kennir okkur skref fyrir skref hvernig við manifestum og drögum að okkur hratt og örugglega það sem við óskum okkur 
Ástin og kynlíf í parasambandi er færni til að læra og vinna að en ekki sjálfsagður hlutur Við ræðum við Baldur og Barböru hjá Lausninni um samskipti og kynlíf í parasambandi og hvernig við getur aukið nándina aftur
loading