014. Une Misére viðtal (Damned EP fagnað)
Description
Nú er lag. Nú skal fagnað. En fyrst...
Í lok nóvember 2023 kom út ógurleg þröngskífa sem minnti okku ekki bara á að UNE MISÉRE væru alls ekki af baki dottnir (þrátt fyrir töluvert mótlæti), heldur að þeir eru ákafari, harðari og þyngri en nokkru sinni. Það hreinlega gustar af lögunum á Damned þröngskífunni, flutningur eins og hann gerist bestur og hljómurinn svakalegur. Hlustið á Damned. Mætið á útgáfutónleikana.
Nema hvað, tveir meðlimar sveitarinnar mættu í viðtal til okkar 23. nóvember 2023 á X977 og það gefur að heyra hér í þessum þætti.
UNE MISÈRE heldur útgáfutónleika fyrir nýjustu útgáfu sína DAMNED á Kex Hostel þann 9. Febrúar 2024. Platan verður spiluð í heild sinni og fær hljómsveitin sér til liðsauka rapparann Emmsjé Gauta til þess að sjá um upphitun.
UNE MISÈRE skipa:
Fannar Már Oddson
Gunnar Ingi Jones
Benjamín Bent Árnason
Þorsteinn Gunnar Friðriksson
Rúnar Geirmundsson
Daníel Máni Konráðsson
Tónlist í þættinum:
This is Where We Kill Time - CLIFF CLAVIN (The Thiefs's Manual, 2010)
Theory Of Mind - KUBLA KHAN TX (Netskífa, 2023)
God- CELESTINE (At The Borders of Arcadia, 2007)
Drown - UNE MISÉRE (Damned, 2023)
Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!
Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).
Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
Luxor er þekkingarhús viðburða.
Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf