DiscoverAsgeir Olafsson Lie - Podcast10 bestu / Birna Bald S10 E9
10 bestu / Birna Bald  S10 E9

10 bestu / Birna Bald S10 E9

Update: 2024-03-04
Share

Description

Birna er mikil íþróttakona. Hún ólst upp á brekkunni og er ein þriggja systkina en þau voru fjögur. Hún segist hafa verið mikill gaur og upplýsir hver fyrsta ástin í lífi hennar var. Hann á að vita það en eftir þetta spjall þá veit hann það þar sem hún nafngreinir hann :)   Birna missti bróður sinn þegar hún var rétt um tvítugt og hann tuttugu og eins árs. Hún deilir með okkur sorgarferlinu eftir að hann tók sitt eigið líf.   Hvernig er að missa einhvern svo nákominn sér og læra að lifa með því?


Þann 6. ágúst 2023 er dagurinn sem breytir lífi Birnu þegar hún lendir í alvarlegu rafskútuslysi þar sem ekkert var vitað með framhaldið í dágóðan tíma.  Henni fannst eins og hún hefði eyðilagt líf sitt að taka skutluna undir áhrifum áfengis. 


Hún fer með okkur skref fyrir skref í gegnum ferilinn sinn sem íþróttakona, þegar hún varð heimsmeistari í íshokký , þrefaldur íslandsmeistari í blaki eftir að hafa lagt skóna á hilluna og slysið sem mótaði líf hennar upp á nýtt.  Gaf henni annað tækifæri.  Hún segist breytt eftir það en heldur eins og hún getur í Birnu sem er spontant, hress og segir oftar já en nei.


Hér er frábært spjall við þessa ungu konu sem langar að að gera allt í lífinu og er bara rétt að byrja.


Takk fyrir að hlusta á 10 bestu!  

Comments 
00:00
00:00
x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

10 bestu / Birna Bald  S10 E9

10 bestu / Birna Bald S10 E9

Podcast Stúdíó Akureyrar