Discover4. vaktin54. NPA miðstöðin
54. NPA miðstöðin

54. NPA miðstöðin

Update: 2025-07-21
Share

Description

Við fengum til okkar Ernu Eiríksdóttir fræðslustýru NPA miðstöðvarinnar og Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Formann NPA miðstöðvarinnar til að fræða okkur um NPA og NPA miðstöðina. Mjög áhugavert og fróðlegt spjall sem við áttum við þau. Þau eru mjög virk í réttindabaráttu fatlaðs fólks og unnið ötulegt starf í mörg ár í þágu þessa hóps og samfélagsins.


Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónusta sem gerir okkur, fötluðu fólki, kleift að taka stjórn á eigin lífi og aðstoð. Byggt á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, tryggir NPA að við ráðum því hvar og hvernig við búum, og hver veitir okkur aðstoð. NPA styrkir rétt okkar til fullrar þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum, án óþarfa hindrana.

Við stýrum því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvað aðstoð er veitt við, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana. Þannig tryggir NPA okkur frelsi og sjálfstæði í daglegu lífi.


  • Hver? Þú velur þér aðstoðarfólk sem hentar þínum lífsstíl og kröfum, setur upp auglýsingar og tekur viðtöl.
  • Hvað? Þú ákveður hvaða verkefni aðstoðarfólkið sinnir, frá daglegum athöfnum til áhugamála.
  • Hvar? Þú stýrir hvar aðstoðin er veitt, hvort sem er heima eða úti í samfélaginu.
  • Hvenær? Þú ákveður hvenær aðstoðin fer fram, t.d. hvenær þú vaknar, ferð á salerni, í vinnu eða stundar áhugamál.
  • Hvernig?  Þú stjórnar hvernig aðstoðin er framkvæmd með því að leiðbeina aðstoðarfólkinu um hvaða nálgun hentar þér best í mismunandi verkefnum.

Þú stjórnar aðstoðinni 

Þessi þáttur er í boði:

-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

Mobility Aid:

Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00 og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600.

Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.


Comments 
00:00
00:00
x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

54. NPA miðstöðin

54. NPA miðstöðin

Hlaðvarpið 4 vaktin