DiscoverRokklandReeperbahn og Ryan Adams v.s Taylor Swift
Reeperbahn og Ryan Adams v.s Taylor Swift

Reeperbahn og Ryan Adams v.s Taylor Swift

Update: 2015-09-27
Share

Description

Rokkland var á Reeperbahn Festival í Hamborg um helgina þar sem 5 íslenskar hljómsveitir voru auk tæplega 250 annara frá öllum heimshornum. Ryan Adams var að gefa út sína útgáfu af metsöluplötu kántrí-popp-stjörnunnar Taylor Swift, 1989 sem kom út í fyrra. Um þetta verður fjallað í Rokklandi.

Íslensku hljómsveitirnar sem komu fram á Reeperbahn Festival um helgina eru Mammút, Júníus Meyvant, Agent Fresco, Sóley og Vök. Við heyrum í þessu fólki öllu nema Sóley í Rokklandi dagsins.

Reeperbahn er hátíð ekki ósvipuð Iceland Airwaves. Þetta er borgarhátíð, haldin í Hamborg í Þýskalandi. Hátíðin stendur í fjóra daga. Hellingur af hljómsveitum sem spila á kvöldin og á daginn er ráðstefna. Á hverju ári er ein þjóð eða eitt land í brennidepli g kynnt sérstaklega og í ár var það Finnland. Við heyrum í nokkrum finnskum hljómsveitum í dag, nöfnum eins og LCMDF, Lapko og K-X-P.

En þátturinn hefst á Ryan Adams sem var að gefa út sína útgáfu af metsöluplötu Taylor Swift sem hún gaf út í fyrra. Hann tók alla plötuna upp með sínu nefni og gerði hana að sinni. En hvers vegna? Þið fræðist um það með því að hlusta á þáttinn, en platan hefur fallið í góðan jarðveg.

En Taylor Swift er fædd árið 1989, 25 ára gömul og ein skærasta poppstjarna bandaríkjanna í dag, búin að vera það í nokkur ár. Kántrí-popp-stjarna.

Hún er frá smábænum Wayomissing í Pennsylvaniu en 14 ára gömul flutti hún þaðan og til Nashville þar sem allt er að gerast í músíkinni. Það stóð aldrei annað til hjá henni en að "MEIKAÐA" sem kántrísöngkona.

Hún er yngsti listamaðurinn/lagahöfundurinn sem hefur verið á samningi hjá SONY/ATV Music Publishing House fyrirtækinu og þegar hún var 17 ára kom fyrsta platan hennar út. Eitt laganna þar fór alla leið í fyrsta sæti kántrí-listans í Ameríku og hún er yngsti tónlistamaðurinn í sögunni til að koma lagi á toppinn á kántrílistanum. Heyrum meira um þetta á eftir.
Comments 
00:00
00:00
x

0.5x

0.8x

1.0x

1.25x

1.5x

2.0x

3.0x

Sleep Timer

Off

End of Episode

5 Minutes

10 Minutes

15 Minutes

30 Minutes

45 Minutes

60 Minutes

120 Minutes

Reeperbahn og Ryan Adams v.s Taylor Swift

Reeperbahn og Ryan Adams v.s Taylor Swift