Viktor Pétur Finnsson formaður SUS og Sverrir Páll Einarsson forseti Uppreisnar koma til bjórsnáðanna og ræða hægri málefni. Staða Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks er rædd, hækkun skrásetningagjalda, Viktor veltir því fyrir sér hvort að Viðreisn sé raunverulega hægri flokkur og lýkur þættinum á kröftulegum umræðum um Evrópusambandið.
Við fáum til okkar blaðakonuna og sviðshöfundinn Elínborgu Unu Einarsdóttur. Við ræðum málefni vikunnar og förum yfir greiningu Elínborgar á ungliðastarf í Sjálfstæðisflokknum, en hún skrifaði lokaritgerð sína í LHÍ um unga Sjálfstæðismenn.
Natan fær til sín Dóru Sif Tynes og Ingvar Þóroddsson að ræða norskar þingkosningar á mannamáli og greina stöðuna.
Bjórsnáðarnir ræða við Tómas Þór Þórðarson, aðstoðarmann þingflokks sjálfstæðisflokksins og Pétur Björgvin Sveinsson, aðstoðarmann þingflokks Viðreisnar. Við ræðum pólitíkina í sumar og stóru málin í vetur.
Stjórnmálaspekúlantarnir Eyrún Þórsdóttir og Lísa Margrét Gunnarsdóttir koma til okkar og ræða liðinn þingvetur, við förum yfir lof og last liðins veturs á marga vegu. Hvaða þingmaður fær last Natans? Hvaða flokki lofar Erlingur óvænt? Allt kemur þetta í ljós í lokaþætti þessarar seríu.
Bjórsnáðarnir fá Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra og varaformann Viðreisnar til sín. Ræða þeir nýtt hlutverk hans sem áfengismálaráðherra, hvernig Natan er sammála Miðflokknum, Erlingur gleymir brúðkaupinu sínu, Daði tekur drengina í stutta hagfræðikennslu auk þess sem veiðigjöldin eru rædd.
Bjórsnáðarnir fá enga aðra en Líf Magneu til sín. Við ræðum leikskólamálin, næturlífið í Reykjavík, þegar karlmaður vildi mynda meirihlutamyndun með Líf en ræddi það bara við karlmenn í kringum hana, sólmyrkva á næsta ári og stemninguna á vinstrivængnum fyrir komandi kosningar.
Gunnar Ásgrímsson, framsóknarmaður með meiru, kíkir á bjórsnáðana og ræðir lægð framsóknar í skoðanakönnunum, sóknarfæri á landsvísu og í borg. Við ræðum bjórverðlag og ólík hjól á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að kynnast því hver hinn týpíski ungi framsóknarmaður er.
Bjórsnáðarnir fá Júlíus Viggó, fyrrverandi formann Heimdalls til sín. Þeir ræða stjórnmálin í dag, stöðu Sjálfstæðisflokksins í borginni og á þingi og tónlistarmenningu stjórnmálanna.
Bjórsnáðarnir ræða við nýkjörinn forseta Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Við ræðum stjórnmálin, meinta landasölu Sverris og veitingastaðinn Metro.
Bjórsnáðarnir hitta Heiðu Ingimarsdóttur, fyrsta varaþingmann Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Við ræðum áherslur hennar á þeim vikum sem hún hleypur í skarðið fyrir Ingvar Þóroddsson, lífið og Múlaþing.
Við fáum Margréti Erlu Þórsdóttur til okkar. Margrét er súperstjarna, master í heimspeki og meðframleiðandi hjá RIFF. Við ræðum um raunir hennar, hot gaura og lítilmennskubrjálæði.
Bjórsnáðarnir ræða líðandi stundir og hitta Grím Grímsson, alþingismann og fyrrverandi lögreglumann. Rætt er um áfengisverslun, fangelsismál, hugvíkkandi efni og persónuna Grím.
Bókmennta- og leikhúsfræðingurinn Katla Ársælsdóttir kíkir á bjórsnáðana. Leikhúsin eru rædd, frelsisbarátta Írlands og hagsmunabarátta stúdenta.
Bjórsnáðarnir ræða ævintýri sín á sunnanverðum Vestfjörðum, hitta Friðrik Schram sem heldur úti hlaðvarpinu Z & Guð, ræðum um ungt fólk sem leitar í trúnna, hans persónulegu vegferð og lífið.
Bjórsnáðarnir hitta Ármann Leifsson, varaformann Ungra Jafnaðarmanna og gjaldkera, landsfundur Samfylkingarinnar er ræddur, ríkisstjórnina, ungt fólk í pólitík og vegferð flokksins yfirhöfuð.
Fyrrum þingmaðurinn og fyrrum Píratinn hittir bjórsnáðana og ræðir samband sitt með Helga Hrafni pírata, Sauðárkrók og hvernig hún fór út í stjórnmál.
Verkalýðskempan og fyrrum þingmaðurinn Sigríður Ingibjörg Ingadóttir mætir til bjórsnáðanna og ræðir kvenfrelsismál, stjórnmálaferil sinn, verkalýðsbaráttuna og vegferð núverandi ríkisstjórnar. Mikil gleði og mikið hlegið.
Natan og Erlingur ræða við Dr. Silju Báru R. Ómarsdóttur frambjóðanda til rektors Háskóla Íslands, þau ræða framboðið, bandarísk stjórnmál og Drekktu betur á Ölstofunni.
Dularfullur leynigestur kíkir á bjórsnáðana, á mjög persónulegum nótum og er gleði ríkjandi.