DiscoverKarfan
Karfan
Claim Ownership

Karfan

Author: Karfan

Subscribed: 266Played: 11,438
Share

Description

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

567 Episodes
Reverse
Helgi, David and Jeanne start by talking about what happened in the Grindavík-Höttur game and what we expect KKÍ (the Icelandic Basketball Federation) to do about it. We then go over the first 3 games of all teams in the men's Bónus league and how the tables are shaping up. Helgi introduces a new predictive model to predict the next rounds (men and women's) before we move on to the women's Bónus league. We discuss the first 3 games in the women's Bónus league and if there were any surpri...
Sjötti maðurinn fór að vanda yfir Bónus deild karla. Rætt var Hauka projectið og El Clasico í bland við marga skemmtilega og nýja liði. Sjötti maðurinn tók einnig upp á nýjung er hringt var út á land í fyrsta skipti í sögu þáttarins.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Sjötti maðurinn tók upp þátt þar sem þeir fóru yfir 2. umferð bónus deild karla með Hrafnkeli Frey, en hann er betur þekktur sem Keli. Fyrir utan það að fara yfir umferðina setti Sjötti maðurinn Kela í gegnum marga skemmtilega liði.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Aukasendingin kom saman með góðkunningjum þáttarins þeim Sigurði Orra "Véfrétt" Kristjánssyni og Guðmundi Inga Skúlasyni. Farið var yfir allar viðureignir fyrstu umferðar Bónus deildar karla, spáð í þak og gólf hvers liðs í vetur og settur saman fimm leikmanna listi leikmanna sem verða að yfirgefa lið sín. Þá er einnig umræða um önnur körfuboltapodköst ásamt því að Sigurður gerir upp tíma sinn með einu vinsælasta podkasti síðustu ára, Boltinn lýgur ekki.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lyki...
Ómar Sævars sérfræðingur Körfuboltakvölds kom í heimsókn til Sjötta mannsins og fór yfir upphaf tímabilsins. Farið er vel yfir Bónus deild karla, rennt létt yfir efstu deildir karla og kvennamegin í bland við fasta liði eins og góð vika/slæm vika og margt, margt fleira.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Helgi, David and Jeanne have a chat about what happened this summer and the Champion of Champions games that were played yesterday. We begin by talking about the games in the men and women's Champion of Champions title yesterday and what this title means to teams. After that we go into the first (and second) divisions and encourage people to write up games that they go to and send it into Karfan.is, all coverage is appreciated. We then go over what we think will happen in the first divis...
Sjötti maðurinn tóku upp þátt með öðruvísi sniði þar sem þeir fóru létt yfir meistara meistaranna. Einnig fóru þeir í nokkra skemmtilega liði t.d. byrja, bekkja og senda í Leifsstöðina, top 5 power rank og gætu þeir gert þetta á föstudags kvöldi á Höfn í Hornafirði. Undir lokin dröftuðu þeir í átta manna lið og rökræddu hvaða lið væri best.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Sjötti maðurinn tók upp frumraun sína í hlaðvarpsheiminum þar sem þeir tóku spá sjötta mannsins fyrir komandi bónus deildar tímabil, einnig fóru þeir yfir hverjir áttu slæma/góða viku í íslenska körfubolta samfélaginu. Undir lokin fóru þeir síðan yfir kraftröðun þeirra á könum deildarinnar.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Aukasendingin fékk Hannes S. Jónsson framkvæmdarstjóra KKÍ og varaforseta FIBA Europe í spjall um Bónus deildirnar, landsliðsumar yngri landsliða, verkefni A landsliða Karla og kvenna á komandi vetri, rödd Íslands í körfuboltaheiminum og margt fleira.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Aukasendingin fékk Hörð Unnsteinsson þjálfara KR í fyrstu deild kvenna og þáttarstjórnanda Bónus Körfuboltakvölds kvenna til þess að ræða fréttir vikunnar og lagskiptingu Bónus deilda karla- og kvenna. Þá er í stuttu máli farið yfir málefni KR.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Kjartan Atli Kjartansson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Kjartan Atli er í dag þjálfari Álftaness í Bónusdeild karla, en sem leikmaður lagði hann skóna á hilluna sem leikmaður þeirra árið 2021. Þrátt fyrir að vera upphaflega af Álftanesi, er hann þó líklega af flestum talinn að upplagi úr Stjörnunni, en ásamt þeim lék hann einnig fyrir yngri flokka Hauka. Á nokkuð sigursælum feril sínum...
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Logi Gunnarsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Logi er Njarðvíkingur að upplagi og eftir að hafa leikið upp yngri flokka félagsins hóf hann að leika með meistaraflokki þeirra 16 ára gamall árið 1997. Í þrigang varð hann svo Íslandsmeistari með félaginu á þessum fyrstu árum sínum í meistaraflokki og var hann valinn besti leikmaður deildarinnar árið 2001. Árið 2002 hélt hann í atvinnumen...
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og sérfræðingur Körfuboltakvölds Hermann Hauksson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Ferill Hermanns í meistaraflokki var frá 1990 til 2002, en á honum lék hann fyrir KR, Njarðvík og Saint Niklas í Belgíu, en árið 1997 var hann valinn besti leikmaður efstu deildar á Íslandi. Þá var hann einnig á þessum tíma, 1994 til 2000 lykilleikmaður í íslenska landsliðinu, en í heild náð hann 64 leikjum fyrir Ísland...
Aukasendingin fékk gamlan vin þáttarins Véfréttina Sigurð Orra Kristjánsson til þess að rýna í ótímabæra spá Körfunnar fyrir Bónusdeild karla, hverjir séu bestu leikmenn deildarinnar og yfirstandandi Ólympíuleika. Þá er undir lokin aðeins litið yfir leiki Íslands gegn Ungverjalandi, Ítalíu og Tyrklandi komandi vetur, en Ísland á góða möguleika á að tryggja sér sæti á lokamóti EuroBasket 2025.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.
Dominykas Milka ræðir við Veigar Pál Alexandersson samherja sinn hjá Njarðvík um nýliðið tímabil, háskólaboltann í Bandaríkjunum, Njarðvík og margt fleira. Veigar kom aftur til Njarðvíkur um mitt síðasta tímabil úr háskólaboltanum þar sem hann var á mála hjá Chowan Hawks í Norður Karólínu.Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Dominykas Milka ræðir við Davíð Eld ritstjóra Körfunnar um síðasta tímabil í Subway deildinni, lokahóf og verðlaunaafhendingar.Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Konstantinos "Kostas" Tsartsaris grikkinn úr Grindavík í viðtali, lyfjamál í körfuboltanum, útlendingar koma og fara eins og venjulega nema núna voru óvenju margir. Tómas Tómasson fór yfir þau mál með okkur. Falur Harðarsson fór yfir ferilinn sinn, hann sagði okkur frá því hvernig það kom til að spila körfubolta fyrir kirkjuna sína í USA. Friðrik Ingi Rúnarsson mætti einnig í viðtal til okkar og fór yfir sinn feril bæði sem leikmaður og þjálfari. Grindvíkingar reka sinn dáðasta son og fu...
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer þjálfarinn Arnar Guðjónsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur þjálfað á ferlinum. Eftir margra ára starf sem þjálfari verður Arnar í fyrsta skipti ekki með lið á næstu leiktíð, en hann yfirgaf Stjörnuna nú í lok þessa tímabils og er farinn að vinna fyrir KKÍ. Þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall má segja að Arnar hafi þjálfað ansi lengi. Fyrsta starf hans var hjá Sindra 2005, þaðan fór hann svo til FSu 2007, en 2009 lagðist hann ...
Helgi, David and Jeanne finally meet up a few days after the last game of the season. We begin by skimming over all games in the men and women's Subway league semifinals and go into the winners of the first division playoffs for who gets promoted. We finally discuss the finals and wrap everything up by going over the gossip and news. Enjoy!Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne SicatThe Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer KR-ingurinn Páll Kolbeinsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Páll var á sínum tíma einn besti bakvörður Íslands, en á feril sínum 1981 til 1998 lék hann fyrir tvö lið, KR, Tindastól og University of Wisconsin–Oshkosh Titans í bandaríska háskólaboltanum. Þá lék hann frá 1986 til 1992 43 leiki fyrir íslenska landsliðið. Besta tímabil Páls var líklega 1989-90, en þá var hann valinn leikmaður ársins eftir að hafa leitt sína...
loading