Mennska

Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi.

Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light.

Some episodes are in Icelandic and some in English.

Tónlist/music: Axel Ingi Árnason

Grafísk hönnun/cover design: Emilía Ragnarsdóttir hjá Forlaginu.

www.bjarnisnae.com

Instagram: bjarni.snaebjornsson

Eins og hlustendur taka eftir þá eru engar auglýsingar í Mennsku og ég vil gjarnan halda því þannig. Ef einstaklingar eða fyrirtæki vilja styrkja hlaðvarpið þá býð ég upp á valkvæða millifærslu þar sem þið ráðið upphæðinni. Hægt er að biðja um greiðslukvittun með því að senda mér skilaboð hér og taka fram kennitölu einstaklings / fyrirtækis:  https://www.bjarnisnae.com/contact-me
Vinsamlegast skrifið "hlaðvarp" í skýringu á millifærslu.
kt: 0707785139
rn: 0111-26-269483
Með fyrirfram þökk, Bjarni

"Ég sætti mig ekki við að vera smættaður niður í eitthvað eitt" - Bjartmar Þórðarson

Bjartmar er magnaður listamaður og sprenglærður í þokkabót. Hann vinnur jöfnum höndum við að leika, syngja, leikstýra og kenna auk þess sem hann nýtur þess að gera upp íbúðir.Sameiginlegir snertifletir okkar tveggja eru margir í lífi og list þar sem við erum báðir hommar og leikarar. Við köfum djúpt í þann skrítna veruleika sem getur myndast þegar hið heterónormatíva samfélag vill setja okkur í box. Við ræðum ást okkar á söngleikjum, sem og leiklist í víðu samhengi og eigum hér yndislegt...

10-21
01:26:35

"I put my life into 23kg bag to come here" - Ray Milano

Ray left his home country of Venezuela because of persecution because there he is a well known out gay man and drag queen, and he didn't feel safe. He moved to Iceland last year and has already made a huge impact on the queer community here with his drag performance artistry and love. We talk about his background in his hometown in Venezuela, his dancing and drag. He tell me about how he stopped feeling safe in his country and how his journey to Iceland was. We talk about the gay life, coming...

10-12
01:20:41

"Við erum orka" - Jóhanna Jónas

Jóhanna Jónasdóttir er leikkona, heilar, þerapisti og dansari. Hún er móðursystir mín og hefur verið uppáhaldsfrænka frá því ég man eftir mér. Hún menntaði sig sem leikkona í Bandaríkjunum og átti mikilli velgengni að fagna í þeim bransa, fyrst í New York og Hollywood, en við heimkomu til Íslands var hún fastráðin við Borgarleikhúsið í nokkur ár. Í kjölfar algers hruns á líkama og sál tók við djúp heilunar- og sjálfsvinna sem leiddi hana í heilunarnám. í dag starfar hún sem heilari og samtals...

10-06
01:29:57

"Afsala ég mér mannréttindum mínum því ég á erfitt með gang?" - Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir

Kolbrún Dögg er sviðslistakona, höfundur, aktívisti og leikkona. Hún leikur nú í sínu eigin verki í Þjóðleikhúsinu sem nefnist Taktu flugið, beibí og þar segir hún frá lífshlaupi sínu, sigrum og hindrunum.Í spjalli vikunnar förum við vítt og breitt eins og vanalega og tölum að sjálfsögðu um listina, aktívismann, aðgengismál, mannréttindi, ritstörfin og drauma framtíðarinnar. Kolbrún er svo yndisleg og jarðtengd að ég öðlaðist stærra hjarta og mikla innri ró við að kynnast henni svona vel og e...

09-23
01:00:52

"Ég hugsa listina sem þjónustustarf" - Una Torfadóttir

Una þarf varla að kynna en hún hefur geirneglt sig inn í íslenskt tónilstarlíf á stuttum en kraftmiklum ferli frá því fyrsta lagið hennar kom út í mars 2022. Í þætti dagsins förum við yfir hvað leiddi hana að tónlistarferlinum og hvernig er umhorfs hjá henni í dag. Við ræðum einnig sviðslistir, klæðskerasaum, giggin og að sjálfsögðu nýjan söngleik hennar Storm, sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu snemma árs 2025. Þetta var svo gefandi og skemmtilegt spjall við konu sem gerir allt frá hjart...

09-14
53:04

"Ég nota öll fornöfn - ég vil aðallega vera sexý" - Sindri "Sparkle" Freyr

Sindri Sparkle (hún/hán/hann) er einstakt fjöllistakvár sem starfar við grafíska hönnun, uppistand, ljóðaskrif og myndlist. Í þætti vikunnar kynnist ég þessum stormsveip sem er uppfullt af húmor, gáska og hlátri. Við ræðum að sjálfsögðu hinseginleikann í allri sinni dýrð og förum vítt og breitt um heim listarinnar, hvernig við látutum hlutina gerast og þurfum líka að vinna tengiliðavinnu og plögga okkur. Svo mergjaður þáttur og það gustar alveg um stúdíóið í orkunni sem stafar af Sindra.Sindr...

09-06
01:04:59

"Gerðu það sem hjartað þitt segir" - Birna Rún Eiríksdóttir

Birna Rún er manneskja með marga hatta og hún er alveg svakalega góð í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Sem leikkona hefur hún sést á skjám landsmanna í fjölda ára og hlaut Edduna á sínum tíma fyrir Rétt. Hún hefur leikið mikið á sviði og flæddi lífrænt inn í það að verða mjög vinsæl á tiktok og instagram. Svo er hún uppistandari, veislustjóri og er nú að stíga sín fyrstu skref sem leikstjóri í gamanþáttaseríunin Flamingo Bar sem sýndur er á Stöð 2.í þættinum ræðum við bransann, lífið, ky...

08-31
01:27:49

"Ég vil alltaf vera fyrirmynd" - Kristín Taiwo Reynisdóttir

Kristín Taiwo Reynisdóttir (hún/hennar) er háskólanemi og einn af stofnendum Antirastistanna sem er hópur aktivista sem er með það markmið að fræða Íslendinga um rasisma. Hópurinn heldur úti instagram reikningnum @antirasistarnir og hefur gefið út hlaðvörp og staðið fyrir ýmiskonar fræðslu. Í þættinum segir Stína mér frá reynsluheimi sínum og hvernig það er að vera svört á Íslandi. Svo förum við yfir hvernig hvernig við getum mætt hvert öðru betur. Fyrir utan allt þetta læri ég líka um hverni...

08-26
01:00:21

"Við stóðum saman" - Einar Þór Jónsson

Einar Þór er einstakur aktívisti sem hefur staðið vaktina í málefnum hinsegin fólks og HIV smitaðra í áraraðir. Í þætti vikunnar förum við yfir æsku hans í Bolungavík og lærum hvernig sögur okkar tveggja eru að mörgu leiti líkar, þó 20 ár skilji okkur að. Einar segir okkur einnig frá ferðalagi sínu út úr skápnum og hann lýsir því hvernig alnæmisfaraldurinn var fyrir hann og hans samferðafólk. Svo tölum við auðvitað um tilfinningar og hann segir okkur hvernig hann passar upp á sig í gegnum líf...

08-16
01:06:16

"My mind is occupied" - Bashar Murad

Bashar Murad was the main guest at Reykjavík Pride this year performing both at the opening ceremony as well as on the big stage in down town Reykjavík for the 100.000 guests that showed up for the celebration.He is a Palestinian pop star who has been making a name for himself in Europe and beyond. In this episode he tells me about his childhood and how it was growing up under an occupation. We delve into the topics of pinkwashing and talk music, art, queerness and how we can come together an...

08-12
56:35

"Það er í lagi að skilja ekki" - Helga Haraldsdóttir

Helga Haraldsdóttir stendur í ströngu þessa dagana enda er hún formaður Hinsegin daga í Reykjavík (ekki "Íslands" eins og ég segi í þáttunum!). Hún er einnig magnaður kokkur og við tengjumst beint í gegnum nostalgískar æskuminningar frá Vestfjörðum.Í þætti vikunnar förum við yfir mikilvægi Hinsegindaga og tölum um hátíðina í ár sem er stórglæsileg að vanda. Hún segir mér frá skemmtilegu lífshlaupi sínu og hver hennar togstreita hefur verið í sambandi við hinseginleikann. Svo hlæjum við svo mi...

07-30
01:12:50

"Tengslin eru númer 1, 2 og 3" - Lilja Sif Þorsteinsdóttir

Lilja Sif er magnaður sálfræðingur sem heldur úti instagram reikningnum Heilshugar (@heilshugar_)Eftir tveggja vikna sumarfrí dembum við okkur á dýptina varðandi hvað tengsl eru mikilvæg fyrir okkur mannverur, hvernig við erum hópdýr og hvernig það er lífsnauðsynlegt fyrir okkur að eiga náin sambönd við annað fólk. Við ræðum líka sjálfsrækt og sjálfsvinnu og auðvitað komum við inn á kerfin sem maðurinn hefur skapað sem er að buga okkur felst; kapítalismi, kynjakerfið, rasismi og nýlendu...

07-27
01:10:54

“Especially in the arts, we have to hold each other accountable” - REC Arts Reykjavik

For this episode I welcome the amazing humans who are creators of REC Arts Reykjavik; Chaiwe Sól Patiswa Drífudóttir (she/her), Eva Yggrasil (she/they) and Rebecca Hidalgo (she/her). They are activists, artists, teachers and so many other beautiful things are fighting continuously to make the world a better place by highlighting stories and artistry of marginalised groupsWe go over many heartfelt topics that matters dearly to all of us like inclusion, how to create a community and a safe spac...

07-06
01:27:16

“Ég legg mig fram við það að vera í hárri þakklætis- og kærleikstíðni” - Ellý Ármanns

Í þætti vikunnar förum við Ellý Ármanns um víðan völl. Ellý þarf vart að kynna enda ein af eftirminnilegustu þulum RÚV og starfar m.a. í dag sem spákona og myndlistakona. Ég var svo spenntur að kynnast Ellý í gegnum þetta samtal og hér förum við í fullkomið flæði þar sem við ræðum þakklæti, lærdóm lífsins, listina, litlu börnin innra með okkur, leiðir til heilunar og margt margt fleira. Ellý á instagram: ellyarmannsdottir-----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisn...

06-28
01:04:16

"Listin er samfélagslega mótandi" - María Thelma Smáradóttir

María Thelma (hún) er mögnuð leikkona sem hefur komið víða við á sinni stuttu starfsævi; skrifað og leikið í sínum eigin einleik, leikið í Þjóðleikhúsinu og mörgum sjónvarpsþáttum og fengið tilnefningar til Grímunnar.Í þætti vikunnar ræðum við á dýptina um list leikarans, um stóra samhengi lista, fjölbreytileika og hvað það skiptir miklu máli að eiga dýnamískar fyrirmyndir. Við förum yfir hvað það þýðir að standa með sjálfri sér og hvernig lífið og listin eru í raun últramaraþon.María Thelma ...

06-22
01:16:46

"Við höfum öll rétt á því að líða vel" - Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir

Ugla er mögnuð kona sem hefur stigið fast til jarðar varðandi réttindi trans fólks frá unga aldri. Í þætti vikunnar segir hún okkur frá sögu sinni og hvernig hún datt inn í aktívisma. Við ræðum einnig stöðuna í dag í réttindamálunum og hvernig við þurfum að passa upp á það á hverjum degi að sjálfsögð mannréttindi okkar séu ekki tekin af okkur.Ugla á instagram: uglastefania----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonTónlist...

06-14
01:12:19

"Ástin sameinar því hún er mótspyrnan við hatri" - Ingileif Friðriksdóttir

Ingileif Friðriksdóttir er mögnuð kona sem framkvæmir hugmyndir sínar og hefur því komið víða við, t.d. sem aktivisti, framleiðandi og höfundur sjónvarpsefnis, áhrifavaldur, fjölmiðlakona og margt margt fleira. Fyrir stuttu gaf hún út sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Ljósbrot sem er mjög spennandi og grípandi bók sem hverfist um ástir kvenna.Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu um hinseginleikann, mikilvægi fyrirmynda, hvernig það er að skrifa heila bók, meðvirkni okkar, tilfinningagreind og h...

06-09
01:25:12

"Við erum öll heil" - Bjarki Steinn

Bjarki Steinn (hann) er ein af þessum manneskjum sem kemur inn í lífið manns og það er eins og við höfum alltaf þekkst. Hann er einstök fyrirmynd, opin og kærleiksrík sál sem segir mér frá lífi sínu og lærdóm í gegnum heilunarvinnu. Við ræðum hugvíkkandi efni, hinseginleikann, óttann, skömmina og mikilvægi þess að taka fagnandi á móti öllum tilfinningum okkar.Bjarki Steinn á instagram: https://www.instagram.com/bjarki_p?igsh=MXRuNjRmMHVjOTE4Nw==Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Menns...

05-31
01:15:28

"Við eigum ekki endilega að vera alltaf hamingjusöm" - Hulda Tölgyes

Hulda Tölgyes er sálfræðingur, rithöfundur og mögnuð kona. Í þættinum eigum við dásamlegt samtal um fjöldamörg málefni sem við elskum bæði, t.d. partavinnu, triggera, leiðir til að koma okkur í jafnvægi og hvernig við getum hlúð að litlu börnunum innra með okkur. Við ræðum auðvitað líka þriðju vaktina, feðraveldið og hvernig við getum hjálpað hvort öðru og börnunum okkar að upplifa að þau tilheyri.Vefsíða: www.thridja.isInstagram: hulda.tolgyesVefsíðan sem Bjarni segir frá í sinni djúpdáleiðs...

05-24
01:24:21

"Ég ákvað bara að ráðast í þetta" - Hafsteinn Þórólfsson

** Varúð váhrif / Trigger Warning. Í samtalinu við Hafstein eru mörg erfið málefni rædd eins og einelti, kynferðisofbeldi gegn börnum, nauðgun og sjálfsvígshugsanir. **-----Hafsteinn Þórólfsson (hann) er söngvari, tónskáld og einstakur listamaður. Í þætti vikunnar segir hann okkur frá mögnuðu heilunarferðalagi sem hann þurfti að fara í vegna mikilla áfalla sem hafa dunið á honum í gegnum ævina. Við ræðum leiðir til sjálfsástar og heilunar sem og um skömmina, hinseginleikann, ástina, húmorinn ...

05-18
01:58:12

Recommend Channels