DiscoverSpursmál
Spursmál
Claim Ownership

Spursmál

Author: Ritstjórn Morgunblaðsins

Subscribed: 672Played: 14,241
Share

Description

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14.

Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum
á mbl.is.
101 Episodes
Reverse
Steinþór Gunnarsson var dæmdur í fangelsi, bæði í héraði og af Hæstarétti. Framkvæmd var húsleit hjá honum og hann handtekinn fyrir framan son sinn. Að lokum kom í ljós að hann hafði engin lög brotið.Steinþór rekur sögu sína í dæmalausu viðtali á vettvangi Spursmála í dag þar sem ekkert er dregið undan.Listamenn og fréttir vikunnarÞá mæta á vettvang listamennirnir Magnús Jóhann Ragnarsson, píanóleikari og tónskáld og Kjartan Logi Sigurjónsson, grínisti. Þeir fara yfir fréttir vikunnar en ræða einnig áhugaverð verkefni sem þeir hafa unnið að á síðustu misserum.Þá takast þau á um hina umdeildu lóðasamninga sem Reykjavíkurborg gerði á sínum tíma við olíufélögin stóru, þau Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi alþingismaður.Á sínum stað er svo auðvitað yfirferð Ásthildar Hannesdóttur á stjórnmálunum eins og þau birtast okkur á samfélagsmiðlum. Þar er engin tæpitunga töluð.Hvað gerði borgin við lóðirnar?
Bók septembermánaðar í Bókaklúbbi Spursmála var Hagfræði í hnotskurn, eftir Henry Hazlitt, klassískt rit um málefni sem varðar alla. Af því tilefni settist Stefán Einar niður með Ásdísi Kristjánsdóttur hagfræðingi og bæjarstjóra í Kópavogi til að ræða um bókina og hagfræðina í víðum skilningi. Samtalið var hljóðritað þann 24. september í Fantasíusalnum á Vinnustofu Kjarvals.
Í fréttum vikunnar er rætt við fjölmiðlakonuna Sunnu Sæmundsdóttur og Björn Inga Hrafnsson, aðstoðarmann formanns Miðflokksins. Þau eru öllum hnútum kunnug í íslensku þjóðlífi en ræða einnig nýjan friðarverðlaunahafa Nóbels, friðarsamninga fyrir botni Miðjarðarhafs, brottfall verka Halldórs Kiljan Laxness úr skólakerfinu og versnandi efnahagshorfur.Hver verður kjörinn nýr varaformaður Miðflokksins á landsþingi hans á sunnudag?Þá mætir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi á vettvang Spursmála og svarar gagnrýni BSRB á hið svokallaða Kópavogsmódel sem innleitt var árið 2023 og miðar að því að bæta þjónustu við leikskólabörn í bænum. Nýverið gaf Varða, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins út rannsókn kynjafræðingsins dr. Sunnu Símonardóttur sem varpar ljósi á óánægju 20 foreldra í Kópavogi með þær breytingar sem innleiddar hafa verið á kerfinu.Að lokum sest hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson í settið og ræðir hreint ótrúlega stöðu sem iðnfyrirtækið Vélfag á Akureyri er komið í vegna þvingunaraðgerða sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra hefur gripið til gegn fyrirtækinu. 
Myndin er tekin að skýrast betur eftir fall flugfélagsins Play. Í dag er vika liðin frá gjaldþroti þess. En áhrifa fallsins gætir áfram og inngrip stjórnvalda kann að hafa ófyrirséðar afleiðingar.Viðmælendurnir þekkja vel til flugrekstrar en þó úr sitthvorri áttinni. Það eru þeir Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Icelandair og forstjóri og eigandi Bluebird, auk Sveins Andra Sveinssonar, sem er annar tveggja skiptastjóra þrotabús WOW air.
Gjaldþrot Play setti mikinn svip á samfélagsumræðuna í vikunni og ljóst að fall flugfélagsins er að hafa mikil áhrif á efnahagslífið í heild. Í nýjasta þætti Spursmála mæta til leiks tveir öflugir menn til að rýna í stöðuna en það eru þeir Jens Bjarnason forstöðumaður hjá Icelandair og Þórður Gunnarsson hagfræðingur.Þá verður umfjöllun um listamannalaun haldið áfram í þættinum en sú umræða hefur verið ansi lífleg í vikunni eftir að fjallað var um listamannalaunin í Spursmálum í síðustu viku. Metsöluhöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson mætir í settið til að ræða kerfi listamannalauna sem hann hefur verið mjög gagnrýninn á, en einnig ræðir hann nærri þriggja áratugalangan feril sinn á sviðinu.
Margir gera sig líklega í baráttunni um valdastólana í sveitarstjórnum landsins. Nafn Katrínar Júlíusdóttur hefur verið nefnt í því sambandi. Hún mætir í Spursmál ásamt Björgu Magnúsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmanni Einars Þorsteinssonar, þáverandi borgarstjóra. Björg er nú gengin til liðs við Viðreisn og er fastlega orðuð við oddvitaembættið í þeim flokki á vettvangi borgarinnar.Þá verða Evrópumálin rædd en þau hafa fengið byr undir báða vængi í kjölfar landsþings Viðreisnar sem haldið var um liðna helgi. Þar flutti Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands mergjaða ræðu og lýsti draumsýn um sameinað ríki Evrópu, heimsveldi eins og hann nefndi það. Þeim hugmyndum var tekið með dynjandi lófaklappi fundargesta. Til að ræða þessi mál mæta þeir Sverrir Páll Einarsson, forseti Uppreisnar, og Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur.
Gæti ríkissjóður hagnast um þúsundir milljarða á því ef olíuvinnsla hefst á Drekasvæðinu?Það fullyrða þeir Heiðar Guðjónsson og Haukur Óskarsson en þeir hafa í nærri tvo áratugi unnið að því að koma olíuleit og -vinnslu af stað á svæðinu. Þeir eru gestir Spursmála að þessu sinni og segja verkefnið að öllu óhættulaust fyrir ríkissjóð.En hver er hættan á umhverfisslysi og hversu langan tíma tæki að koma verkefni af þessu tagi á koppinn. Svara við þessu öllu verður leitað í þættinum.Áður en þeir mæta til leiks etja kappi þær Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins. Arna Lára er formaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins og hún situr sömuleiðis í fjárlaganefnd.Sigríður situr í velferðarnefnd þar sem kostnaðarþyngstu þættir fjárlaga liggja. Og það er einmitt af þeirri ástæðu sem þær eru kvaddar á vettvang. Til þess að ræða fjárlögin sem nú gera ráð fyrir því að útgjöld ríkissjóðs muni nema ríflega 1.600 milljörðum króna á næsta ári.Í lok þáttar verður farið yfir nýja fjártæknilausn fyrirtækisins Aurbjargar þar sem almenningi gefst kostur á að skilja betur en áður hvernig lífeyriskerfið virkar og hvað það þýðir að greiða iðgjöld sín í þennan sjóð fremur en annan. Gríðarlega miklu getur munað á ávinnslunni eftir sjóðum og breyturnar eru margar.Það eru þau Ásdís Arna Gottskálksdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Baldvin Egill Baldvinsson fjártæknisérfræðingur, sem fara yfir málið.
Stefán Einar og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ræða um bók ágústmánaðar í Bókaklúbbi Spursmála: Líf á jörðinni okkar eftir David Attenborough. Í bókinni eru lofstlagsbreytingar og þau áhrif sem mannfólkið hefur á lífríki jarðar í stóru hlutverki. Einar er einn af okkar reyndustu veðurfræðingum og hefur mikla og góða yfirsýn yfir málaflokkinn.
Heimur á heljarþröm myndu einhverjir segja þegar stjórnmálamenn eru teknir af lífi í beinni útsendingu og Rússar herða tökin gagnvart Evrópu allri. Móta þarf nýja varnarmála stefnu fyrir Ísland.Þetta er meðal þess sem rætt er á vettvangi Spursmála í dag þar sem tveir fyrrverandi utanríkisráðherrar, þær Lilja D. Alfreðsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mæta og ræða nýlegan yfirgang Rússa gagnvart Pólverjum, morðið á Charlie Kirk og tillögur þingmannahóps að mótun nýrrar varnarmálastefnu fyrir Ísland.Þá mæta þeir Skafti Harðarson og Róbert Bragason frá Samtökum skattgreiðenda og kynna nýtt mælaborð sem samtökin hafa komið á laggirnar. Það varpar ljósi á útgjöld ríkissjóðs tvo áratugi aftur í tímann. Þar kennir sannarlega ýmissa grasa og segja þeir félagar að mikil og augljós tækifæri séu til þess að bæta ríkisreksturinn.Að því viðtali loknu sest Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni niður með Stefáni Einari og fer yfir þá stöðu sem nú er komin upp í Vestmannaeyjum í kjölfar þess að fyrirtæki hans sagði upp 50 starfsmönnum í fiskvinnslu. Segir Binni að það sé afleiðing af hækkun veiðigjalda á útgerðarfyrirtæki landsins en Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra hafa sagt ástæðurnar allt aðrar.
Sí­fellt færri ung­menni geta lesið sér til gagns og veiðirétt­ar­haf­ar eru farn­ir að stífla laxveiðiár af ótta við slysaslepp­ing­ar lax­eld­is­ins. Hvar er í gangi í ís­lensku sam­fé­lagi? Þetta og fleira verður til umræðu í nýj­asta þætti Spurs­mála.Þegar horft er yfir umræðuna um ís­lenska mennta­kerfið mætti halda að allt hafi farið úr­skeiðis á síðustu árum. Magnús Þór Jóns­son, formaður Kenn­ara­sam­bands­ins er ekki sam­mála því en hann viður­kenn­ir þó að margt hefði mátt bet­ur fara.Hann mæt­ir á vett­vang Spurs­mála og ræðir nýja mennta­stefnu og aðal­nám­skrá seg­ir einn af pró­fess­or­um Há­skóla Íslands seg­ir að sé upp­full af lyg­um.Þá mæt­ir Daní­el Jak­obs­son, for­stjóri Arctic Fish á Ísaf­irði í þátt­inn og svar­ar fyr­ir slysaslepp­ing­ar fyr­ir­tæk­is­ins í Dýraf­irði sem urðu til þess að veiðirétt­ar­haf­ar í Hauka­dalsá brugðu á það ráð að stífla ána í því skyni að koma í veg fyr­ir óæski­lega fisk­gengd þar upp.Tel­ur Jakob að fisk­eldið, sem hef­ur vaxið gríðarlega á síðustu árum, bæði á Vest­fjörðum og fyr­ir aust­an, eigi sér framtíð á Íslandi?Áður en Magnús Þór og í kjöl­farið Daní­el mæta á vett­vang ætla þau Andrea Ró­berts­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Fé­lags kvenna í at­vinnu­líf­inu og Ein­ar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og nú borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins að ræða frétt­ir vik­unn­ar. Þar er víst að margt for­vitni­lega muni bera á góma.
Spurs­mál hefja nú göngu sína á mbl.is að nýju eft­ir stutt sum­ar­leyfi. Í upp­hafi fyrsta þátt­ar verður upp­lýst um nýj­ar vend­ing­ar í njósna­máli PPP ehf. sem teyg­ir sig djúpt inn í ís­lenskt stjórn­kerfi.Í frétt­um vik­unn­ar er rætt við þau Hjörv­ar Hafliðason eða dr. Foot­ball eins og hann er gjarn­an nefnd­ur og Maríu Sigrúnu Hilm­ars­dótt­ur, frétta­konu á Rík­is­sjón­varp­inu.Í síðari hluta þátt­ar­ins er rætt við þing­flokks­for­menn þriggja stærstu flokk­anna sem sæti eiga á Alþingi. Þau Guðmund Ara Sig­ur­jóns­son, frá Sam­fylk­ingu, Sig­mar Guðmunds­son, frá Viðreisn og Hildi Sverr­is­dótt­ur frá Sjálf­stæðis­flokki.Spurs­mál verða á dag­skrá alla föstu­daga kl. 14 í vet­ur og þar verður farið vítt og breitt yfir sviðið og Ísland í brenni­depli.
Það reynd­ist afar mik­il­vægt fyr­ir ís­lenska ríkið að nýta full­veld­is­rétt sinn þegar kröfu­haf­ar föllnu bank­anna sóttu á yf­ir­völd. Þetta seg­ir Sig­urður Már Jóns­son í viðtali á vett­vangi Bóka­klúbbs Spurs­mála.Í liðnum mánuði var bók­in Af­nám haft­anna - samn­ing­ar ald­ar­inn­ar? eft­ir Sig­urð Má tek­in fyr­ir á vett­vangi klúbbs­ins. Til­efnið var það að ný­lega voru 10 ár liðin frá því að risa­vaxn­ir samn­ing­ar náðust við slita­bú föllnu viðskipta­bank­anna sem leiddu til af­náms fjár­magns­hafta hér á landi. Samn­ing­arn­ir urðu einnig til þess að lækka skuld­ir rík­is­sjóðs um hundruð millj­arða króna.
Hús­fyll­ir var á Vinnu­stofu Kjar­vals á dög­un­um þegar ríf­lega 150 klúbbmeðlim­ir mættu til leiks á þriðja viðburð Bóka­klúbbs Spurs­mála. Þar sett­ist Kári Stef­áns­son, stofn­andi Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, niður með Stefáni Ein­ari Stef­áns­syni, ásamt klúbbmeðlim­um, og ræddi efni bók­ar­inn­ar 1984 eft­ir Geor­ge Orwell á hisp­urs­laus­an og líf­leg­an hátt eins og hans er von og vísa.Viðraði Kári til að mynda hug­mynd­ir um hvar hægt sé að sjá birt­ing­ar­mynd­ir af Stóra bróður í heim­in­um í dag. Er hann sann­færður um að víða glitti í það fyr­ir­bæri með bein­um eða óbein­um hætti.Bók­in var bók mánaðar­ins í Bóka­klúbbi Spurs­mála í júní­mánuði.Sjálf­ur las Kári bók­ina fyrst fyr­ir nærri hálfri öld síðan en efni henn­ar hafði áhrif á Kára, eins og fleiri, enda um eina áhrifa­mestu bók 20. ald­ar bók­mennta að ræða. Hef­ur hún frá fyrstu út­gáfu haft mót­andi áhrif á hug­mynd­ir manna um sam­spil rík­is­valds og ein­stak­lings­frels­is sem vel er hægt að heim­færa á sam­tím­ann sem við lif­um nú. Að mati Kára er bygg­ir saga Orwells á ýkj­um. Raun­ar þykir hon­um sag­an að mörgu leyti frá­leit því hún geng­ur eins langt og hugs­ast get­ur í því að lýsa sam­fé­lagi sem er í helj­ar­greip­um alræðis og svipt sjálf­stæðri hugs­un og frels­inu um leið. Sem í margra eyr­um kann reynd­ar að hljóma kunnu­lega. Það bar þó margt á góma í sam­tali þeirra Kára og Stef­áns Ein­ars. Má þar helst nefna upp­lif­un hans og reynslu af alræðis­sam­fé­lög­um dags­ins í dag, kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn, stjórn­ar­farið í Kína, rík­is­valdið hér á landi og lýs­ing­ar hans af sam­skipt­um sem hann átti við þáver­andi heil­brigðisráðherra, Svandísi Svavars­dótt­ur. Sagði hann að þar hafi stál­in stinn mæst en ein­hverj­ir myndu kannski frek­ar segja að þar hafi skratt­inn hitt ömmu sína - dæmi nú hver fyr­ir sig. Á annað þúsund manns hafa skráð sig í klúbb­inn á þeim fjór­um mánuðum sem hann hef­ur verið starf­andi og fjölg­ar þar enn. Nú í júlí­mánuði sitja klúbb­fé­lag­ar við og lesa bók Sig­urðar Más Jóns­son­ar, Af­nám haft­anna: samn­ing­ar ald­ar­inn­ar? sem er bók þessa mánaðar á vett­vangi klúbbs­ins. Af því til­efni fæst hún á sér­stöku til­boði í versl­un­um Penn­ans Ey­munds­son. Hægt er að skrá sig í klúbb­inn með því að smella hér.Sam­starfsaðilar Bóka­klúbbs Spurs­mála eru Sam­sung, Kerec­is, Brim og Penn­inn.
For­seti Alþing­is hef­ur beitt kjarn­orku­ákvæði þing­skap­ar­laga gegn minni­hlut­an­um á þingi. Starf­semi þess er í upp­námi í kjöl­farið. Aukaþátt­ur af Spurs­mál­um fer í að greina hina al­var­legu stöðu.Átök milli meiri­hluta og minni­hluta á þingi tóku nýja og óvænta stefnu í kjöl­far þess að Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins og einn af vara­for­set­um Alþing­is, frestaði þing­fundi á tólfta tím­an­um síðastliðið miðviku­dags­kvöld.Í kjöl­farið flutti Kristrún Frosta­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra, for­dæma­laust ávarp þar sem hún lýsti því yfir að meiri­hluti þing­heims hefði tek­ist á hend­ur það hlut­verk að verja ís­lenska lýðveldið gegn minni­hlut­an­um.Hild­ur Sverr­is­dótt­ir mæt­ir í Spurs­mál og ræðir aðdrag­and­ann að þess­ari at­b­urðarás og eft­ir­leik henn­ar.Reynslu­bolt­ar kallaðir á vett­vangAð loknu sam­tali við Hildi mæta þeir Guðmund­ur Árni Stef­áns­son, vara­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og fyrr­ver­andi ráðherra og Ein­ar K. Guðfinns­son fyrr­ver­andi ráðherra og for­seti Alþing­is.Þeir hafa marga fjör­una sopið í hinni ís­lensku póli­tík og þekkja sög­una langt aft­ur.Fróðlegt verður að heyra þeirra álit á þeim at­b­urðum sem nú hafa orðið og virðast ætla að móta alla stjórn­má­laum­ræðu í land­inu á kom­andi miss­er­um.Kristrúnu Frosta­dótt­ur var boðið í þátt­inn og gerð til­raun til þess að hafa sam­band við hana sjálfa og aðstoðarmann henn­ar. Það bar eng­an ár­ang­ur.
Það er í meira lagi raf­magnað and­rúms­loftið á Alþingi þessa sól­ar­hring­ana. Rík­is­stjórn­in er ekki að koma sín­um mik­il­væg­ustu mál­um í gegn og óvíst er hvenær þing get­ur farið í sum­ar­frí.Í nýjasta þætti Spurs­mál­a, og jafnframt þeim síðasta fyrir sumarfrí, er rætt við þrjá þing­menn stjórn­ar­and­stöðunn­ar og ljósi varpað á það hvernig staðan gæti þró­ast næstu sól­ar­hring­ana. En einnig hvernig þing­vet­ur­inn, sem teygðist inn á mitt sum­ar, hef­ur þró­ast.Guðrún Haf­steins­dótt­ir, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, mæt­ir á vett­vang ásamt Bergþóri Ólasyni þing­flokks­for­manni Miðflokks­ins og Ingi­björgu Isak­sen, formanni þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins.Spursmál verða aftur á dagskrá á mbl.is föstudaginn 15. ágúst klukkan 14.
Ólík­legt er að átök­in milli Írans og Ísra­els breiðist út í Mið-Aust­ur­lönd­um. Fyrr­nefnda ríkið virðist ein­angrað og án vina. Hins veg­ar er Banda­ríkja­for­seta vandi á hönd­um heima fyr­ir í ljósi þeirra yf­ir­lýs­inga sem hann hef­ur áður gefið um að hann vilji forðast að Banda­rík­in drag­ist inn í átök í fjar­læg­um álf­um. Þetta er mat Al­berts Jóns­son­ar, fyrr­ver­andi sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­un­um. Hann er gest­ur Spurs­mála þenn­an föstu­dag­inn og ræðir hin skæðu átök sem nú standa yfir milli Ísra­els og Íran.Í þætt­in­um er einnig rætt við Sig­urð Boga Sæv­ars­son, blaðamann á Morg­un­blaðinu, sem fyr­ir þrem­ur árum tók að ganga göt­ur Reykja­vík­ur og skrá hjá sér um­ferð þá. Fyrr í júní lauk hann svo við að ganga þær all­ar. Í viðtal­inu upp­lýs­ir Sig­urður Bogi hversu marg­ar göt­urn­ar eru og er ekki ólík­legt að ein­hverj­um komi á óvart hversu marg­ar göt­ur prýða land Reykja­vík­ur.Frétt­ir vik­unn­ar eru svo ekki langt und­an og á vett­vang mæta þau Sig­mar Vil­hjálms­son, at­hafnamaður í Minig­arðinum og víðar, og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, alþing­ismaður Sjálf­stæðis­flokks­ins. Hún legg­ur senn í vík­ing til Banda­ríkj­anna þar sem hún hyggst setj­ast á skóla­bekk. Þrátt fyr­ir það er póli­tík­in ekki langt und­an og umræðurnar fóru um víðan völl. Meðal annars að skemmtilegum stað í NY sem ber nafnið Swingers club.
Er­lend­ir vog­un­ar­sjóðir beittu öll­um ráðum til þess að hafa rík­is­stjórn Íslands und­ir þegar reynt var að lyfta gjald­eyr­is­höft­um. Þeir höfðu ekki er­indi sem erfiði. En eft­ir­leik­ur­inn var svaka­leg­ur.At­b­urðirn­ir sem náðu hápunkti í júní 2015 og mörkuðu efna­hags­lega stöðu Íslands all­ar göt­ur síðan eru mörg­um í fersku minni, en þó hef­ur fennt yfir margt á þeim ára­tug sem liðinn er síðan.Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra, rifjar upp þessa at­b­urði í Spurs­mál­um í dag og upp­lýs­ir um at­b­urði og at­vik sem ekki hef­ur verið sagt frá áður.Þá mæt­ir Jök­ull Júlí­us­son, leiðtogi hljóm­sveit­ar­inn­ar Kal­eo. Hann ræðir fer­il­inn og stór­tón­leika sem eru á teikni­borðinu í Vagla­skógi síðar í sum­ar.Syst­urn­ar Kamilla og Júlía Mar­grét Ein­ars­dæt­ur fara yfir frétt­ir vik­unn­ar á sinn ein­staka hátt.
Borg­ar­yf­ir­völd gera nú allt sem í þeirra valdi stend­ur til þess að eyðileggja starf­semi Aþenu í Breiðholti. Þetta seg­ir Brynj­ar Karl Sig­urðsson í sam­tali í Spurs­mál­um. Í því fel­ist kven­fyr­ir­litn­ing. Í þætti dags­ins er einnig rætt við Ásgeir Jóns­son, seðlabanka­stjóra. Nú munu marg­ar vik­ur líða þar til gluggi opn­ast að nýju á að lækka stýri­vexti. Þá mæta þeir einnig til leiks, Björn Ingi Hrafns­son, aðstoðarmaður Sig­mund­ar Davíðs Gunn­laugs­son­ar og Vil­hjálm­ur Birg­is­son formaður Verka­lýðsfé­lags Akra­ness og Starfs­greina­sam­bands­ins.
Þau Hulda Bjarna­dótt­ir, for­seti Golf­sam­bands Íslands, og Sölvi Tryggva­son, hlaðvarps­stjórn­andi og fjöl­miðlamaður, ræða frétt­ir vik­unn­ar. Ber þar margt á góma, meðal ann­ars sal­an á Íslands­banka þar sem þúsund­ir Íslend­inga keyptu fyr­ir litl­ar 20 millj­ón­ir hver eins og ekk­ert væri.Þá mæta þau til leiks Ólaf­ur Stephen­sen, fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­enda, og Mar­grét Ágústa Sig­urðardótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­taka Íslands. Þau tak­ast á um breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um og hvort rétt hafi verið að taka úr sam­bandi til­tek­in ákvæði sam­keppn­islaga þegar afurðastöðvar í kjötiðnaði eru ann­ars veg­ar.Stór orð hafa verið höfð uppi um það mál á und­an­förn­um mánuðum, ekki síst eft­ir að héraðsdóm­ur felldi dóm um að breyt­ing­ar á lög­gjöf­inni hefðu gengið í ber­högg við stjórn­ar­skrá lýðveld­is­ins. Hæstirétt­ur sneri þeim dómi fyr­ir nokkru og hafa ýms­ir þurft að éta ofan í sig stór­yrði sem byggðu á dómi hins lægra setta dómsvalds.Í lok þátt­ar­ins er rætt við Guðmund Fer­tram Sig­ur­jóns­son, for­stjóra og stofn­anda Kerec­is. Hann seg­ir dimmt yfir at­vinnu­mál­um á Vest­fjörðum í kjöl­far þess að rík­is­stjórn Kristrún­ar Frosta­dótt­ir til­kynnti að hún hyggðist tvö­falda veiðigjöld á út­gerðina í land­inu.En rætt er við Guðmund um fleiri spenn­andi mál, meðal ann­ars hvort ske kynni að annað fyr­ir­tæki á borð við Kerec­is leyn­ist meðal þeirra hundruða ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tækja sem starf­andi eru í land­inu.
Kúbudeilan 1962 eftir Max Hastings hefur verið bók mánaðarins í maímánuði. Hún kom fyrst út árið 2022 og setur magnaða atburði sem áttu sér stað fyrir rúmum sextíu árum í samhengi. Þá er merkilegt að sjá hversu margt sem er að gerast í nútímanum í samhengi við þá frásögn sem Hastings dregur fram.Það var Magnús Þór Hafsteinsson sem þýddi verkið og hann settist niður með Stefáni Einari á dögunum til að ræða um bókina og atburðarásina fyrir rúmum sextíu árum þar sem litlu munaði að stórveldin tvö; Bandaríkin og Sovétríkin hefðu lent í afdrifaríkum átökum.Bókaklúbbur Spursmála er í boði Samsung, Brim, Kerecis og Pennans.
loading
Comments