DiscoverÍ alvöru talað!
Í alvöru talað!
Claim Ownership

Í alvöru talað!

Author: Gulla og Lydía

Subscribed: 190Played: 3,243
Share

Description

Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi. 


Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása.  Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós.


Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt. 

54 Episodes
Reverse
Við stöndum á krossgötum með hlaðvarpið. Förum í saumana með það en fyrst og fremst spjöllum við um þakklæti og þakklætisiðkun. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
Ólöf Dröfn Eggertsdóttir er sálmeðferðarfræðingur hjá Samkennd heilsusetri. Hlustendur þekkja hana vel enda hefur hún áður komið til okkar. Í þetta skipti segir hún okkur frá þunglyndi og skammdegisþunglyndi. Hver er munurinn og hvað er til ráða? Erum við þunglynd þegar við erum í mikilli streitu eða kulnun? Ólöf hjá Samkennd Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á I...
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir, kvensjúkdómalæknir, er framkvæmdastjóri lækninga og stofnandi GynaMedica. Kvenheilsa er hennar hjartans mál og hún stofnaði þess vegna GynaMedica sem er lækninga- og heilsumiðstöð fyrir konur. Í þættinum ræðir Hanna Lilja um heilsu kvenna og breytingarskeiðið en leyfir sér líka að taka niður læknahattinn og vera persónuleg og segja sínar skoðanir á hlutunum. Vefsíða GynaMedica Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth...
Ása Ottesen kom til okkar. Hún sterk og falleg kona sem hefur ýmsa fjöruna sopið. Það sama mætti segja um systur hennar, Jónu. Þær misstu lítinn bróður sinn í umferðarslysi þegar þær voru unglingar en svo slasaðist Jóna alvarlega í umferðarslysi árið 2019. Ása segir Jónu ekki hafa fengið þá hjálp frá heilbrigðiskerfinu sem hún þurfti og þess vegna hafa vinir og fjölskylda hennar styrkt hana til þess að fara í endurhæfingu á Spáni sem hefur verið mjög hjálpleg fyrir hana. Hægt er að finna uppl...
Dr. Jenna Huld Eysteinsdóttir er húðsjúkdómalæknir og einn stofnanda Húðvaktarinnar og einn af eigendum Húðlæknastöðvarinnar. Hún mætti til þess að ræða húðumhirðu og húðheilsu, enda hokin af reynslu í þeim bransa. Gulla var alveg að pissa í sig af spenningi fyrir þessum þætti enda er hún sérstök áhugakona um húðumhirðu. Hér er fróðlegur og skemmtilegur þáttur, gjörið þið svo vel! Húðlæknastöðin Húðvaktin Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jort...
Kristín Þóra Haraldsdóttir, leikkona, er okkur flestum kunnug. Við höfum séð hana brillera á leiksviði og á skjánum undanfarin ár. Hún er þessi klassíska duglega íslenska kona, eins og við erum svo margar. Einn daginn gat hún ekki haldið áfram að vera dugleg, því líkami hennar gafst upp á streitunni og stoppaði hana af. Hún neyddist til þess að frá í slipp. Stoppa, fara í veikindaleyfi og hlúa að sér. Hún segir frá sinni sögu í þessum þætti ásamt sýningu hennar Á rauðu ljósi sem hefur verið s...
47. Hausttískan 2025

47. Hausttískan 2025

2025-08-2158:27

Þátturinn sem beðið hefur verið eftir! Gulla segir frá hausttískunni 2025. Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Jörht góðgerðar og bætiefni - OsteoStrong Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
Lára Rúnarsdóttir er stofnandi Móa stúdíó sem er jógastúdíó sem leggur ríka áherslu á andlega iðkun, efla sjálfsvitundina, virðingu fyrir líkamanum, innri hlustun & samkennd. Lára er jógakennari og tónlistarkona með kennaramenntun og mastersgráðu í kynjafræði. Við áttum við hana einlægt spjall meðal annars um mennskuna og mikilvægi þess að mæta sjálfum sér nákvæmlega eins og maður er. Vefsíða Móa stúdíó Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jor...
Halla Himintungl komn aftur í heimsókn. Í þetta skiptið las hún í stjörnukort Gullu og Lydíu, ásamt í stjörnukort hlaðvarpsins. Vefsíða Höllu Hinintungls Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - OsteoStrong - Jörht góðgerðar og bætiefni Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
44. Halla Himintungl

44. Halla Himintungl

2025-06-2601:17:09

Halla Himintungl kom í heimsókn. Það er ekki bara nafnið hennar sem er áhugavert og spennandi…hún er sjálf hrikalega merkileg kona sem á margar skemmtilegar sögur. Hún er hjúkrunarfræðingur, heilari og stjörnuspekingur. Mjög skemmtilegur og hjartnæmur þáttur! Vefsíða Höllu Hinintungls Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram ...
Lydía fer yfir viðbrögðin fjögur sem taugakerfið velur á milli þegar við erum í ótta- eða streituviðbragðinu. Þau eru fight, flight, freeze og fawning. Líkaminn er alltaf að vinna fyrir okkur og hann virkjar óttaviðbragðið til þess að verja okkur. Mjög hjálplegt er fyrir okkur að skilja þessi viðbrögð og læra að bera kennsl á það þegar við erum í þessum viðbrögðum. Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur ...
Hrafnheiður Valdís Baldursdóttir, sálfræðingur hjá Samkennd heilsusetri, kom í heimsókn. Við hana spjöllum við um hvernig það er að leita sér að maka á miðjum aldri, og þá sérstaklega hvernig það er að nota stefnumótaforrit. Það er á margan hátt mjög flókið, vekur upp alls konar flóknar tilfinningar og krefst sjálfskoðunar. Einlægt og skemmtilegt spjall um makaleit! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á...
Hér kemur þáttur sem átti að vera um eitthvað allt annað, en Gulla og Lydía detta hér í flæðið sem er oft svo gott. Lydía segir frá því hvernig hún er að læra að díla við tilfinningarnar sínar og líðan á annan hátt en með óhollum mat og svo ræða þær um sumarfríið. Það er nefnilega ekki endilega alltaf tækifæri fyrir ró og hvíld í sumarfríinu og sumar mömmur koma þreyttar úr sumarfríinu sínu. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafn...
Svanlaug Jóhannsdóttir eða Svana er kona margra hatta. Hún er stórskemmtileg og stútfull af hæfileikum á ýmsum sviðum. Hún hefur frá mörgu spennandi og skemmtilegu að segja eftir viðburðaríka ævi. Meðal annars segir hún frá fyrirtækinu sem hún rekur nú með manni sínum og heitir OsteoStrong. Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Balmain hárvörur - Jörht góðgerðar og...
Dögg Guðmundsdóttir mun útskrifast með master í klínískri næringarfræði í vor. Hún heldur úti instagram síðunni nutriment.rvk þar sem hún fræðir fólk um næringu og leiðir til þess að finna meiri gleði og ró í því að borða. Instagram Daggar Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Balmain hárvörur - Jörht góðgerðar og bætiefni Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
Gulla fær að tala um ástríðuna sína, tísku! Hún skoðar með okkur tískustrauma fyrir sumarið og gefur góð ráð um hvernig er hægt að lífga upp á fataskápinn fyrir sumarið með fötum og aukahlutum…samt bara ef þú vilt og þá kaupirðu bara það sem þér finnst fallegt og líður vel í. Hún bendir nefnilega á að við þurfum ekki að elta tískuna, nema bara ef við viljum. Mikilvægast að okkur finnist við flott og að okkur líði vel! Einnig skoða Gulla og Lydía saman spilið Rauðflögg sem er átaksverkefni á v...
37. Nokkrar lífslexíur

37. Nokkrar lífslexíur

2025-02-2001:25:14

Lydía og Gulla bera saman og ræða nokkrar lífslexíur sem þær hafa upplifað. Allir fara í gegnum lífið og læra eitthvað. Stundum er gaman að bera saman bækur og skoða hverjar þessar lífslexíur eru! Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Lúx hár og förðun, Faxafeni 14 - Balmain hárvörur - Jörht góðgerðar og bætiefni Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
Loksins fær Gulla að tala um eitthvað dónalegt! Áslaug Kristjánsdóttir er sprenglærður kynfræðingur og kynlífsráðgjafi með mikla og langa reynslu í faginu. Hún hefur einnig skrifað bók sem heitir Lífið er kynlíf og er núna í leyfi frá kynlífsráðgjöfinni til þess að skrifa bók númer tvö. Kynlíf og góð ástarsambönd hefur verið hennar ástríða og hún lýsir því sjálf að hafa alltaf haft áhuga á fólki og því sem ekki má tala um. Bráðskemmtilegur og fræðandi þáttur, gjörið svo vel! Vefsíða Áslauga...
Einlægt samtal við Heklu, eiganda Bandvefslosunar, um slys, áföll og hvernig er að koma aftur á vinnumarkað eftir 14 ár. Hekla Guðmundsdóttir er eigandi fyrirtækisins Bandvefslosun og bjó til æfingakerfi sem heitir Body Reroll. Hún lenti í áföllum og slysum ung sem varð til þess að hún gat ekki unnið í 14 ár. Einnig þurfti hún að losa sig við mjög ávanabindandi verkjalyf sem hún varð að taka vegna mikilla verkja eftir slys. Hún segir frá þessu öllu saman ásamt því hvernig hún komst á þann st...
34. Sambönd og samskipti

34. Sambönd og samskipti

2025-01-3101:08:32

Lydía og Gulla skoða saman hvaða máli sambönd og samskipti skipta fyrir okkur. Erum við að sinna þessari þörf okkar fyrir náin tengsl nógu vel? Hvað getum við gert til þess að eiga góð samskipti og náin sambönd? Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum? Í alvöru talað! á Instagram Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram Gulla á Instagram Þátturinn er í boði - Lúx hár og förðun, Faxafeni 14 - Balmain hárvörur Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
loading
Comments 
loading