Ólafur Loftsson - Afreksstjóri GSÍ
Update: 2025-05-06
Description
Ólafur Björn Loftsson er afreksstjóri Golfsambands Íslands og einn reyndasti kylfingur landsins. Ólafur á að baki glæsilegan feril sem landsliðskylfingur, þá var hann Íslandsmeistari í golfi og fyrsti Íslendingurinn til að keppa á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri PGA á Íslandi.
Í spjallinu fer hann yfir:
- Vegferð sína sem afrekskylfings, reynslu hans á bandaríska háskólakerfinu og hvernig hann aðstoðar ungt afreksfólk við að komast í skóla með golfstyrk.
- Hlutverk PGA á Íslandi og þróun golfíþróttarinnar hér heima.
- Starf hans sem afreksstjóri GSÍ, markmið sambandsins og verkefni á sviði afreksmála.
- Stærstu verkefni og mót sumarsins, bæði heima og erlendis.
- Golf14 verkefnið og mikilvægi fjölbreyttrar íþróttaiðkunar hjá börnum.
- Andlega og líkamlega þáttinn.
- Ráð til bæði kylfinga um hvernig bæta má leik sinn í sumar.
Þáttur sem enginn golfáhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Peppið var svo mikið að Silja fór að skoða golfkennara eftir þetta spjall.
Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk.
Comments
In Channel